Víkurfréttir - 04.02.1988, Blaðsíða 4
\)iKur<
4 Fimmtudagur 4. febrúar 1988
NYTT SIMANUMER
TEKUR GILDI 15. FEBRUAR
V
Útvegsbanki íslands hf
HAFNARGÖTU 60 - KEFLAVÍK
Pípulagnir
Óska eftir starfsmanni við pípulagnir, helst
vönum, nemi kemur til greina.
Upplýsingar í síma 12006 á kvöldin.
Háseti
Vanur háseti óskast á Skagaröst, sem rær
með net frá Keflavík.
Upplýsingar í síma 12587.
Fiskverkun
Guðmundar Axelssonar
LÁTTU
LYFTU-
BÍLINN
OKKAR
létta þér
verkin
Sendibílar
1-41-41
Kraninn sem nú hefur þrengt götuna í á þriðja mánuð.
Ljósm.: epj.
Ibúar við Þórustíg í Njarðvík:
Óhressir með
umferðarmálin
Margir íbúanna við Þóru-
stíg í Njarðvík eru óánægðir
með umferðarmálin við göt-
una. Segjast þeir hafa kvart-
að fyrir daufum eyrum, bæði
hjá lögreglu og bæjaryfir-
völdum, en án árangurs.
En hvað er að? Gefum ein-
um íbúanum við götuna orð-
ið: „Þrátt fyrir að við báða
enda götunnar sé skilti sem
banni bílastöður vörubíla og
annarra stórra ökutækja við
götuna, þá hefur stór krani
staðið í einu bílastæðinu á
þriðja mánuð og valdið mikl-
um þrengslum við götuna.
En gata þessi er það þröng
fyrir að aðeins má leggja öðr-
um megin.
Var verið að nota kranann
í 1 /2 dag en síðan hefur hann
verið þarna og skapað stór
hættu. T.d. þróuðust mál
þannig í snjónum á dögun-
um að ökumenn völdu þann
kostinn að aka eftir gang-
stéttinni fram hjákrananum.
Var ekki á það bætandi að
fá þetta yfir sig, því þegar
Borgarveginum var lokað í
annan endann jókst umferð-
in hér um. Það hefur nú orðið
til þess að bannið við akstri
bíla við endanum á Grundar-
veginum, þar sem skólarút-
unni er einni leyft að aka út á
Sjávargötu, hefur verið virt
að vettugi og því aka menn
þar nú um. Erum við því að
vonum óhress með þessi
mál,“ sagði þessi viðmælandi
blaðsins.
Við báða endana á Þórustígn-
um eru skilti er banna lagn-
ingu stórra bíla við götuna.
Biblíudagurinn:
Keflavíkurkirkja:
Sunnudagaskóli í umsjá Ragnars
og Málfríðar. Munið skólabilinn.
Guðsþjónusta kl. 14.
Sóknarprestur
Ytri-Njarðvíkurkirkja:
Barnastarf kl. 11.
Sóknarprestur
Innri-Njarðvíkurkirkja:
Messa og barnstarf kl. 11. Organ-
isti Steinar Guðmundsson.
Sóknarprestur
Útskálakirkja:
Sunnudagaskólinn verður kl. 11.
Börn úr sunnudagaskólanum í
Keflavík koma í heimsókn og taka
þátt I samverunni.
Hjörtur Magni Jóhannsson
Hvalsneskirkja:
Laugardagur kl. 14:
Jarðarför Gunnlaugs Einarsson-
ar.
Sunnudagur kl. 14:
Guðsþjónusta ítilefni Biblíudags-
ins. Vænst er þátttöku fermingar-
barna og foreldra þeirra. Að lok-
inni guðsþjónustu verður fundur
með foreldrum fermingarbarna.
Hjörtur Magni Jóhannsson
Grindavíkurdeild
AL-ANON
Fundir haldnir mánudaga
kl. 21.
Byrjendafundir einnig á
sama tíma.
Fundarstaður: Víkurbraut 34
(Lágafell).
Al-Anon fjölskyldudeildirn-
ar eru félagsskapur ættingja
og vina alkóhólista, sem
samhæfa reynslu sína, styrk
og vonir, svo að þau megi
leysa sameiginleg vanda-
mál sín. Við trúum að
drykkjusýki sé fjölskyldu-
sjúkdómur og að breytt
viðhorf geti stuðlað að heil-
brigði.