Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.02.1988, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 04.02.1988, Blaðsíða 7
viKun | ÍutUi Fimmtudagur 4. febrúar 1988 Bðtur í stað BERGÞÚRS Einar Magnússon, sem bjargaðist er m.b. Bergþór fórst á dögunum, hefur nú ásamt mági sínum, Vigni Demussyni, tekið á leigu 75 tonna bát. Bátur þessi, Dröfn RE-135, er í eigu Haf- rannsóknastofnunar og hefur verið gerður út sem haf- rannsóknaskip undanfarin ár, eða frá því hann var keyptur frá Keflavík. Hann var áður gerður út hér syðra undir nöfnunum Pólstjarn- an og Ingiber Olafsson. Er leigutíminn til 1. sept- enrber, þó nreð þeim fyrir- vara að ef leigutakar hafa áhuga á að kaupa hann, renni hluti leigugjaldsins upp í kaupverðið. Mun báturinn veiða út á aflakvóta Berg- þórs, undir skipstjórn Einars. Hraðfrystihús Keflavíkur hf Verulega slæm fjárhagsstaða Nýlega birtist í virtum fjöl- miðli frásögn að því að Hrað- frystihús Keflavíkur væri eitt af fimm verst settu frystihús- um Sambandsins hér á landi. Vegna þessa könnuðum við málið nánar og kom þá í ljós að fyrirtækið á við mjög al- varlegt vandamál að stríða. Eru einkum tvær ástæður taldar valda þessu. Er það nr.a. ein ástæðan að fram- legðin hafi verið nrjög slæm á síðasta sumri, þ.e. vinnslan ekki skilað því senr þurfti. Eins hefðu hvorugur togar- anna nýtt aflakvóta sinn. Mun ástand þetta hafa versnað mikið undanfarið og því væri reksturinn orðinn mjög þungur. Munum við hér á blaðinu fylgjast nánar með málum þessum. /f Ljósm.: pket. Verður gert hlé á bygg- ingu sundmiðstöðvar? Byggingarnefnd Sundmið- stöðvar í Keflavík hefur lagt til að bæjarstjórn efni til hug- myndasamkeppni um lista- verk á vegg Sundnriðstöðvar- innar við Sunnubraut. Þá hefur nefndin samþykkt að stefna að undirbúningi út- boðs næsta áfanga nú þegar, svo ekki komi til hlés á fram- kvæmdum og að hægt verði að taka laugina í notkun vorið 1990, eins og stefnt var að í upphafi. Bæði þessi mál voru til urnræðu á fundi bæjarstjórn- ar Keflavíkur í síðustu viku og tóku þar til máls Magnús Haraldsson, Ingólfur Fals- son og Guðfinnur Sigurvins- son. Síðan var samþykkt samhljóða að vísa þessum málum báðum til bæjarráðs. Af þeim viðræðum sem blaðið hefur átt við ýmsa bæj- arstjórnarmenn, virtist nokkuð vera ljóst að bæjar- ráð muni ekki samþykkja nrál þessi að svo stöddu, vegna íjárhagserfiðleika bæj- arfélagsins, en byggingar- kostnaður þessa áfanga er ekki undir 40 milljónum á verðlagi síðasta haust. Nýjung á Suðurnesjum! Veislueldhús Flugleiða, Flugstöð Veislumatur við hvers konar tækifæri. Smurt brauð og snittur Fundarsalir fyrir smærri fundi með veitingum í Flugstöð. Matarbakkar fyrir fyrirtæki. Sértilboð fyrir ferminguna - Kalt hlaðborð ■ Kjúklingar ■ Reykt grísalæri ■ Lambasteik ■ Rækjur í hlaupi ■ Graílax ■ Heitur pottréttur m/salati og hvítlauksbrauði.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.