Víkurfréttir - 04.02.1988, Blaðsíða 9
\>imn
jttUh
Hver er Eldeyjar-Boði?
Ég er mikill áhugamað-
ur fyrir útgerð hér á Suð-
urnesjum og fagnaði því
mjög stofnun Eldeyjar hf.
og kaupum þess á fyrsta
skipinu, sem Morgun-
blaðið sagði mér að héti
Eldeyjar-Boði KE-132.
Síðan hef ég lesið í þessu
sama blaði frásagnir af
því að nú væri Eldeyjar-
Boði farinn til veiða og að
Eldeyjar-Boði væri kom-
inn úr fyrstu veiðiferðinni.
Einnig hef ég lesið auglýs-
ingu um það í þessu sama
blaði að menn vantaði á
Eldeyjar-Boða, sem þá
var að vísu kominn með
númerið GK-24, en ekki
KE-132.
Með þetta allt í huga
varð ég hissa er ég skrapp
í fjölskyldurúnt niður á
Njarðvíkurbryggju á laug-
ardag og sá að eitt af skip-
unum í höfninni hét Boði
GK-24 frá Njarðvík.
Fannst mér þetta skips-
nafn einkennilegt þar sem
ég hélt að það væri ein-
mitt þetta skip sem ég var
búinn að lesa um a.m.k.
þrisvar í Morgunblaðinu
að héti Eldeyjar-Boði, að
vísu ýmist KE-132 eða
GK-24.
Virðist því vera að
menn séu búnir að gefa
skipinu nýtt nafn, þ.e. í
huganum, án þess að
koma því í framkvæmd,
því erfitt á ég með að trúa
því að Mogginn hafi tekið
þetta upp hjá sér sjálfur.
Vil ég því skora á forráða-
menn Eldeyjar að nota
rétta nafnið, þ.e. það
gamla, á meðan skipið ber
það, og síðan hið nýja eftir
að búið er að ganga frá
málum, því annað er
smekkleysa hin mesta.
Félagi
Mikið fjölmenni við
minningarathöfnina
Mikið fjölmenni fylgdist
með minningarathöfninni
um skipverjana tvo, Magnús
Geir Þórarinsson og Elfar
Þór Jónsson, sem fórust með
Bergþóri KE-5. Var Kefla-
víkurkirkja yfirfull, auk
mikils fjölda fólks sem fylgd-
ist með athöfninni úr Kirkju-
lundi og tveimur langferða-
bílum sem staðsettir voru
utan við kirkjuna.
Fyrir altari þjónuðu sókn-
arprestar Keííavikur-^ og
Njarðvíkursókna, þeir Olaf-
ur Oddur Jónsson og Þor-
valdur Karl Helgason. Kórar
beggja sóknanna sungu, en
organistar og söngstjórar
voru Siguróli Geirsson og
Gróa Hreinsdóttir. Þá lék
Haraldur Haraldsson á
básúnu og Steinn Erlings-
son söng bæði einsöng og
með kórunum.
Grindavík:
Fyrsti hafnsögu-
bátur Suðurnesja-
manna kominn
Gengið hefur verið frá
kaupum Grindavíkurhafnar
á hafnsögubátnum Haka frá
Reykjavík og hefur hann
hlotið nafnið Villi, í höfuðið
á Vilmundi Ingimundarsyni,
fyrrum hafnarverði í Grinda-
vík. Kaupverðið var rúmar
2 milljónir.
Þótt ótrúlegt sé mun þetta
vera fyrsti alvöru hafnsögu-
báturinn sem höfn á Suður-
nesjum eignast. Að vísu er
hafnsögubátur í Landshöfn-
inni Keflavík/Njarðvík, en
sá bátur er opinn trillubátur í
eigu einstaklinga í Keflavík.
Villi er hins vegar 21 tonna
þilfarsbátur, smíðaður úr eik,
sem hafnsögubátur árið 1947
og hefur verið notaður í höf-
uðborginni þangað til fyrir
skemmstu, að nýtt skip leysti
hann af hólmi.
+50- 000
• •
HAVAXTAKJOR OG
YFIRDRÁTTAR-
HEIMILD
LANGBEST
A EINUM STAÐ
einfaldlega á tékkareikningi.
Nú bjóðast viðskiptamönnum Samvinnubankans tvær þýðingar-
miklar nýjungar á kjörum tékkareikninga.
Almennir
sparisjóðsvextir
Tékkareikningar með Hávaxtakjör-
um bera nú sömu vexti og almenn
sparisjóðsbók, eða 22%. Þannig
nýtur þú enn betri kjara og losnar
þar að auki við allar óþarfa milli-
færslur milli reikninga.
Yfirdráttarheimild
Þú átt kost á allt að 50.000 kr. yfir-
dráttarheimild hafir þú fengið
greidd laun eða tryggingarbætur
inn á reikning í bankanum í a.m.k.
3 mánuði.
Ert þú búin(n) að sækja um?
Launavelta - Lán fyrir launafólk
Viðskiptamenn bankans sem kost eiga á yfirdrætti, eiga jafnframt
rétt á Launaveltuláni. Upphæð og lánstími ræðst af
tímalengd viðskipta sem hér segir:
Eftir 3 mán. viðskipti, lán kr. 40.000 til 3ja mán. á víxli eða skulda-
bréfi að vali umsækjenda.
Eftir 6 mán. viðskipti, lán kr. 80.000,00 til 18 mán.
Eftir 12 mán. viðskipti, lán kr. 150.000,00 til 24 mán.
Eftir 24 mán. viðskipti, lán kr. 200.000,00 til 24 mán.
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF.
HAFNARGÖTU 62 - KEFLAVÍK - SÍMI 11288