Víkurfréttir - 24.03.1988, Page 6
VÍKUR
6 Fimmtudagur 24. mars 1988
| (tittu
Nytsemi eða arðsemi?
orðvar
Einn lalaði um veg yfir vegleysur og hraun.
Einn vitnaði í samtök, er ynnu þyngstu raun.
Einn niældi fyrir vegi, og vissi upp á liár,
hvar vegurinn ætti að koma - svo liðu hundrað ár. (D. Stef.)
Um síöustu mánaðamót
flutti einn þingmaðurinn okk-
ar, Kolbrún Jónsdóttir, jóm-
frúrræðu sína á Alþingi. I'ar
talaði hún fyrir tillögu til
þingsályktunar um tvöföldun
Reykjanesbrautar. Svo
merkilega vildi til að um sama
leyti leiddi skoðanakönnun í
Ijós, að Borgaraflokkurinn er
nánast að hverfa af stjórn-
málasviðinu. En ef Kolhrún
kemur þessu áhugamáli sínu,
og raunar allra Suðurnesja-
manna, i framkvæmd, mun
orðstír Borgaraflokksins lifa í
hugum mannu alla næstu öld,
svo mikilvxgt er þetta mál-
efni. En því miður getur póli-
tíkin verið svo undarleg, að
Reykjanesbrautin verði ekki
hreikkuð næstu 10-20 árin,
einmitt vegna þessað Kolbrún
ýtti málinu af stað í jómfrúr-
ræðunni. Margir pólitískir
andstæðingar Kolbrúnar vilja
gjarnan eigna sér svo gimi-
lega atkvæðabeitu.
Reykjanesbrautin hefur
mikla sérstöðu í vegakerfi
landsins. Hún er mikilvæg i
varnarkerfinu. Ef til ófriðar
stórveldanna kemur, getur
mjög líklega þurft að flytja
alla íhúana af svæðinu á
nokkrum klukkutimum.
Keflavíkurflugvöllur er nefni-
lega eitt áhugaverðasta skot-
markið undir slíkum kring-
umstæðum. Breikkun braut-
arinnar er verkefni í almanna-
vörnum landsins og utan
vegaáætlunar. Þess vegna á
að fjármagna það samkvænit
því.
Allt millilandafiut fer nú
fram um Leifsstöð og verður
æ umfangsmeira nteð hverju
ári, sem þýðir aukna umferð
um Reykjanesbrautina. Um-
ferðin eykst enn meir þegar
innanlandsflugið fer að ógna
öryggi borgarstjórnar
Reykjavíkur í nýja ráðhúsinu
við Tjörnina og verður þá
væntanlega flutt hingað suð-
ureftir. Reyndar er núverandi
ástand brautarinnar, eitt sér,
næg ástæða til að tefja það
mál enn frekur.
Reykjanesbrautin er eng-
inn venjulegur dreifbýlisveg-
ur, því nú þegar fara rúinlega
8000 bílar um brautina á sól-
arhring. Fólki héðan að sunn-
an, sem ekið hefur hringinn í
kringum landið, ber saman
um að það niætir fleiri bílum
milli Keflavikur og Hafnar-
fjarðar, heldur en á öllum
hringveginuin. Slysatíðni er
ógnvekjandi, 160 umferðar-
slys á Reykjanesbrautinni
1987 segir blóðuga sögu, enda
er brautin talin einn hættuleg-
asti vegarkafli landsins. Lög-
boðin Ijósanotkun ökutækja
allan sólarhringinn er talin
kosta bíleigendur 600-700
milljónir árlega. Ef það dreg-
ur úr slysahættu og bjargar,
þó ekki verði nema einu
mannslifi á ári, er markmið-
inu náð og kostnaðurinn hé-
gómi, sem enginn minnist á.
Ofangreindar staðreyndir
ættu að nægja til að tvöföldun
Reykjanesbrautarinnar hefði
óumdcilanlegan forgang í
stærri framkvæmdum ríkisins.
Sérfræðingar Vegagerðarinn-
ar eru sammála um að stór
verktakafyrirtæki fengjust til
að tvöfalda brautina, þ.e.a.s.
byggja aðra akbraut við hlið-
ina á þeirri gömlu, fyrir um
400 milljónir króna. Það eru
miklir peningar, þegar
Reykjaneskjördæmi á í hlut.
Nú eru þessar framkvæmdir
ekki inni á fjárlöguin en áætl-
að er i tillögu Kolbrúnar að
byrja strax á verkinu og Ijúka
því fyrir árslok 1990,-en eng-
ir peningar til. Flest stærri
verktakafyrirtæki eiga við
árstiðabundið verkefnaleysi
að stríða og tækju þessum
framkvæmdum fegins licndi,
ef vinna mætti verkið í áföng-
um. Þannig gætu þau einnig
sætt sig við, að greiðslan færi
að mestu leyti fram með S ára
verðtryggðum ríkisskulda-
bréfum.
Oft á almenningur í mesta
basli með að skilja afstöðu
eða afstöðuleysi ráðamanna í
samgöngumálum. Menn virð-
ast tala i alvöru um brú yfir
Hvalfjörð eða jarðgöng undir
hann fvrir 2 milljarða, meðan
ekki er einu sinni byrjað á
jarðgöngum í Ólafsfjarðar-
múla eða á Vestfjörðum. Eitt
hefur forgang í dag, annað á
morgun.
Nytseini og arðsemi í fram-
kvæmdum ríkisins fara ekki
alltaf saman, af eðlilegum
ástæðum. Hér er hvoru-
tveggja fyrir hendi, ekki síður
en þegar brautin var steypt í
upphafi fyrir rúmum tuttugu
árum.
„Konan hefur bara unnið“
„Þó ég fylgist vel með ensku knattspyrnunni hefur mér
aldrei gengið neitt í getraunum. Hef meira að segja afrekað
það að fá engan réttan. Þú ættir eiginlega að tala við konuna
mína. Hún var með í getraunakeppninni hjá kennaraliðinu í
Fjölbrautaskólanum, lenti í öðru sæti, - og fékk 7 þús. kr.
vinning. Það er eini getraunavinningurinn sem hefurkomið
inn á þetta heimili“, segir Eiríkur Hermannsson, skólastjóri
í Garði, sem ætlar að reyna fyrir sér þessa vikuna.
„Leeds hefur alltaf verið mitt lið. Ég var þar í námi 1974-
'15. Þá var liðið á toppnum með marga góða leikmenn eins
og t.d. Norman Hunter, sem ég hélt mikið upp á. Liðið lék
m.a. til úrslita um Evrópubikarinn, en tapaði fyrir Bayern
Munchen, óverðskuldað. En nú eru mínir menn á uppleið
þannig að ég er bjartsýnn".
Eiríkur hefur einu sinni komið á Wembley og segist til-
búinn að fara aftur. „Ég sá West Ham og Fulham. Það var
frekar slakur leikur. Gamla kempan Bobby Moore lék þá
undir lok síns ferils með Fulham ásamt Alan Mullery. Þeir
höfðu þó ekki erindi sem erfiði, því West Ham vann 2:0“.
Heildarspá Eiríks:
Charlton - Oxford ....... 1
Chelsea - Southampton ... 1
Derby - Arsenal ......... X
Man. Utd. - West Ham ... 1
Newcastle - Coventry .... 1
Norwich - Sheff. Wed.... 1
Portsmouth - Q.P.R......2
Tottenham - Nott’m For. . 2
Watford - Everton ....... 2
Barnsley - Man. City .... 1
Bournemouth - Leeds .... 2
Plymouth - Blackburn ... X
Hafsteinn með sex
Hafsteinn Guðmundsson náði þokkalegum árangri í síð-
ustu leikviku, fékk 6 rétta. Það dugar þó ekki í úrslitakeppn-
ina, sem hefst í byrjun apríl. Við minnum á verðlaunin,
Wembley-ferð á bikarúrslitin með Samvinnuferðum-Land-
sýn. Ekki skemmir að allt útlit er fyrir stórleik . . .
molar
Veislu-
þjónustan hí.
IðavöJJum 5
Sími 14797
Skrifstofustjóraskipti
hjá Stóru milljón
Molum hefur borist til
eyrna að Georg Elíasson,
sem verið hefur skrifstofu-
stjóri hjá Stóru milljón, sem
að vísu heitir Hraðfrystihús
Keflavíkur h.f., sé á förum úr
því sæti. I stað hans tekur Jó-
hanna Sigurðardóttir sæti
hans.
Miklir erfið-
leikar hjá HK
Sögur herma að miklir
fjárhagserfiðleikar séu nú
hjá Hraðfrystihúsi Keflavík-
ur h.f. Hafa aðilar, sem eiga í
viðskiptum við fyrirtækið,
kvartað mjög yfir því við
Mola að illa gangi að fá pen-
inga, sem oftast bendir til að
erfiðleikar séu hjá viðkom-
andi. Vitna menn einnig í
upplýsingar sem komu fram
nýverið um að fyrirtækið sé
með verst settu frystihúsum
samvinnuhreyfingarinnar
hér á landi.
Urbræðsla orsak-
aði aftanákeyrslu
Smávægileg aftanákeyrsla
átti sér stað á Garðvegi í síð-
ustu viku, en af mjög óvana-
legum orsökum. Þennan dag
var skyggni mjög slæmt og
því var ökuhraðinn aðeins
um 40 km/klst. Fljótlega
myndaðist því röð 5 bíla og
er röðin var komin fram hjá
Gufuskálum á leið í Garðinn
urðu þeir sem voru í bíl nr. 2
varir við að fyrsti bíllinn
reykti óvenjulega mikið og
ágerðist reykurinn, sem var
bláleitur. Stuttu síðar stöðv-
aðist fremsti bíllinn allt í einu
og hvarf í reykjarmökk, því
hann hafði orðið úrbræddur
þarna og því stöðvaðist
vélin. Við þetta skyndilega
stopp tókst þremur næstu
bílum að stoppa, en hinn síð-
asti náði því ekki og ók því
aftan á. Má því segja að or-
sök aftanákeyrslunnar hafi
verið úrbræðsla.
Nýtt bakarí að
fæðast í Hólmgarði
Um næstu mánaðamót
mun nýlt bakarí taka til
starfa í væntanlegri verslun-
armiðstöð að Hólmgarði 2 í
Keflavík. Eigandi þess er
Sigurjón Héðinsson, sem
starfað hefur að undanförnu
hjá Sveini bakara í Reykja-
vík, en er annars frá Kefia-
vík og nam m.a. hjá Ragnari
Eðvaldssyni. Er því ljóst að
Suðurnesjamenn þurfa ekki
að kvarta yfir lélegu úrvali af
bakkelsi á næstunni, enda
hefur það ekki verið þó bak-
aríum fari nú enn fjölgandi.
Sæþór í
Kjötmiðstöðina
Sæþór Fannberg, fyrrum
bæjarritari og bókhaldari
hjá Glaumbergi, hefur nú
skipt um sæti og gerst bók-
haldari í Kjötmiðstöðinni.
Mynd-
gátan
Lausn gátunnar, sem unnin er úr fréttum
blaðsins, má finna á öðrum stað í blaðinu.
P-70