Víkurfréttir - 24.03.1988, Page 11
MlKUn
jUUU
Fimmtudagur 24. mars 1988 11
Núverandi eigendur prentsmiðjunnar Grágásar ásamt Steingrími á þessum merku tímamótum. F.v.
Sigurjón R. Vikarsson, Steingrímur Lilliendahl og Stefán .lónsson. Ljósm.: epj.
Starfsmaður Grágásar í 20 ár
Nú á mánudag náði einn
starfsmaður Grágásar h.f.
þeim merka áfanga að hafa
starfað hjá fyrirtækinu í 20 ár.
Sá sem náði þessum áfanga er
Steingrímur Lilliendahl.
Af því tilefni var honum
færð peningagjöf og blóma-
karfa á vinnustað en gefendur
voru núverandi eigendur Grá-
gásar h.f., þeir Sigurjón R.
Vikarsson og Stefán Jónsson.
Sparisjóðurinn:
Gjafabréf
fermingargjafa
Sparisjóðurinn bryddaði
upp á þeirri nýjung í fyrra að
bjóða sérstök gjafabréf til
fermingargjafa. Eru þau
hugsuð fyrir þá sem hafa hug
á að gefa fermingargjöf í
formi peninga. Að sögn
Magnúsar Ægis Magnússon-
ar í hagdeild Sparisjóðsins
var þessari nýjung mjög vel
tekið. „Það voru um 300
fermingarbörn sem fengu
svona gjafabréf oggreinilegt
að ungt fólk hugsar vel um
peningana sína, því aðeins
örfáir reikningar hafa verið
eyðilagðir af þessum þrjú
hundruð," sagði Magnús
Ægir.
Gjafabréfið er þannig út-
búið að gefandinn, sem getur
verið hver sem er, opnar
trompreikning í Sparisjóðn-
um í nafni þess sem gjöfina á
að fá. Gefandinn leggur svo
inn á reikninginn hverja þá
upphæð sem hann vill.
Starfsfólk Sparisjóðsins
útbýr þá gjafabréf þar sem
fram kemur nafn þess sem
gjöfina hlýtur og nafn gef-
anda. Gjafabréfið erókeypis
og eingöngu ætlað að gera
gjöfina veglegri en ella.
Sá fyrrnefndi á aðeins eftir um
tvo 'mánuði í þennan sama
áfanga, en þeir réðu sig báðir
eins og raunar hinn eigandinn
til starfa hjá fyrirtækinu þegar
það var í eigu þeirra Runólfs
Elentínussonar og Jóhanns
Vilbergs Arnasonar.
,l\lú hefur þú góðar
ástæður til að fara
út að borða í hádeginu/
Veitingahúsið Glóðin við Hafnargötu
býður meira en vinalegt umhverfi.
i hádeginu er lögð sérstök áhersla á
smárétti, súpur og salatbar. Þar getur
þú valið allt frá rjómalagaðri spergilsúpu
upp í hvitlauksritstaða humarhala.
Efþú vilt þjálfa bragðlaukana, kynnast
vinnufélögunum og fransk-íslenskri
matargerðarlist þá er ekkert betra en
að hittast á Glóðinni í hádeginu.
Hafnargötu 62. sími 11777.
Fróðleikur á fimmtudögum
- auðvitað í Víkur-fréttum
ATHUGIÐ BREYTT SÍMANÚMER:
15777
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágr,
Verkakvennafélag Keflavlkur og Njarðvlkur
Ný stjórn
í Lögreglu-
mannafélagi
Gullbringu-
sýslu
Lögreglumannafélag Gull-
bringusýslu, sem er félag
þeirra lögreglumanna sem
starfa við embætti bæjarfóget-
ans í Keflavík, Njarðvík og
Grindavik og sýslumannsins í
Gullbringusýslu, hélt aðal-
fund sinn 14. mars s.l. A fund-
inum var kosin ný stjórn og er
hún þannig skipuð:
Formaður Gunnar Vil-
bergsson, varaformaður Rún-
ar Lúðvíksson, gjaldkeri Stef-
án Thordersen, ritari Heiðrún
Sigurðardóttir og meðstjórn-
andi Jóhannes Jensson.
A Suðurnesjum eru tvö lög-
reglumannafélög og starfar
hitt félagið fyrir þá sem starfa
við embætti lögreglustjórans á
Keflavíkurflugvelli. En allir
aðrir lögreglumenn á Suður-
nesjum eru í Lögreglumanna-
félagi Gullbringusýslu.
ÓDÝRT - ÓDÝRT
TRÉ-X
SPÓNAPARKET
NÚ AFTUR
FYRIRLIGGJANÐI.
I
I '7
TRE-X byggingavörur
Iðavöllum 7 - Keflavík
Sími 14700