Víkurfréttir - 24.03.1988, Blaðsíða 14
14 Fimmtudagur 24. mars 1988
\IÍKUK
julUx
VtKUtÍ
juiUt
Fimmtudagur 24. mars 1988 15
um
SKEMMTISTAÐUR
helgina
Hin frábæra hljómsveit Grétars
Orvarssonar heldur uppi
fjöri föstudags- og laugar-
dagskvöld kl. 22 - 03.
Aldurstakmark föstudag 18 ára
- 20 ára laugardag.
Páskabingó í Stapa
nrj 'Kfiwxpjzz
sunnudaginn 27. mars kl. 14.
Úrval góðra vinninga
s.s. hljómtæki, sjónvarp, örbylgju-
ofn, páskaegg og margt fleira.
Spjaldið kostar 75 kr.
AA A /I / I / I I I ■ m l\ I \ I \ l\
KNATTSPYRNUFELOGIN
VÍÐIR OG REYNIR
\
\
VÍKUR-fréttir
- hafsjór af fróðleik
frjálslegra fyrir áhorfandann
en gerir það að verkum að
húsið tekur mun færri í sæti.
Þar sem þetta tókst vel í haust
var ákveðið að halda þessu
áfram og mig grunar að þetta
verði framtíðin. Fólk virðist
njóta þess betur að bregða sér
út kvöldstund í frjálslegra leik-
hús“.
- Kostnaður við uppsetn-
ingu á svona verki?
„Kostnaðurinn við uppsetn-
inguna var um 250.000 krón-
ur og kostnaður við hverja sýn-
ingu er um 15.000 krónur. Að
sýningunni standa 16 - 17
aðilar. Aðsókn á frumsýningu
lofar góðu með framtíð þessar-
ar sýningar, þó svo að öllu
færa hafi verið á annarri sýn-
ingu á sunnudagskvöldið, en
við erum bjartsýn og það er
fyrir mestu. Ef fyrirtæki eða
hópar hafa áhuga á að koma á
sýninguna, þá erum viðtilbúin
að veita þeim sömu afslátt.
Einnig ef fólk hefur áhuga á að
starfa með félaginu eða hefur
áhuga á starfsemi þess, þá er
um að gera að koma á sýningu
og síðan að spjalla við leikar-
ana eftir sýningu, - það er
alltaf þörf fyrir fólk“.
- Eitthvað að lokum?
„Við viljum koma á fram-
færi þakklæti til allra þeirra
sem stutt hafa félagið og starf-
semi þess á síðastliðnum ár-
um“.
Að lokum minnum við á að
annað kvöld kl. 23.30 er mið-
nætursýning á gamanleiknum
Allra meina bót, í Samkomu-
húsinu í Garði (sjá nánar
auglýsingu á öðrum stað í
blaðinu).
SJAIMGULLID
V RESTAURANT
Ferskur matsölustaður með
glæsilegan matseðil.
Opið föstudag og laugardag
frá kl. 18.30. Borðapantanir
i sima 14040.
Lesendur - Auglýsendur
Nœsta blað kemur út á miðviku-
dag. Verið því tímanlega með
auglýsingamar.
Ingiberg Magnússon Grafík - 6.700
Mikið úrval af nýju VHS-efni.
Afsláttarkort - 10 spólur á 2000 kr.
____________TILBOÐ:__________
Tæki og 2 spólur 700 kr.
Tæki og 3 spólur 950 kr.
Tæki og 4 spólur 1200 kr.
Hafnargötu 16 - Keflavík - Sími 13006
GÆLUDÝRABÚÐIN
Hafnargötu 16 - Keflavík - Sími 13006
Nýkomið mikið úrval af fiskum
og ýmsum vörum fyrir gæludýr.
Ingunn Eydal
Grafík - 5.500
Sigrún Eldjám
Messotinita - 5.500
VANDAÐAR
fermingargjafir
„Ekki gráta, ég skal segja þér númerið
á hlaupareikningnum í Færeyjum“.
Sigfús Dýrfjörð og Unnsteinn E. Krist-
insson í aksjón.
Kjartan Guðjónsson
Teikning - 19.500
Úrval grafíkmynda og
kunna listamenn. lÍRjj INNRÖMMUN
Framtíðargjafir. M SUÐURNESJA
Anna María Guðmundsdóttir og Unnsteinn Kristinsson
í hlutverkum sínum.
Litla leikfélagið í Garði frumsýndi á föstudagskvöldið, fvrir fullu
húsi, gamanleikinn ALLRA MEINA BÓT eftir þá PATREK OG
PAL, í Samkomuhúsinu í Garði.
Níu persónur koma fram i sýningunni, fimm leikarar og fjórir
aukalega í kór.
Það er ekki ætlunin að rekja söguþráðinn í sýningunni hér, heldur
viljum við gefa fólki kost á að sjá sýninguna og dæma um hana
sjálft. Þó verður ekki hjá því komist að þakka leikurunum fyrirfrá-
bæra kvöldstund, með bæði söng og leik, sem tókst vel.
I stað frásagnar af gamanleiknum ætlum við að kynnast þvi
hvernig svona sýning er sett á laggirnar og hversu mikill tími fer í
uppsetningu á svona verki.
Blaðamaður Víkur-frétta tók tali tvo leikara úrsýningunni, þau
Sigfús Dýrijörð, en hann leikur leynilögregluna í Allra meina bót,
og Önnu Maríu Guðmundsdóttur, sem leikur Höllu, hjúkrunarkonu
á Ríkisspítalanum.
„Það hafa verið 36 æfingar á
Allra meina bót, 4 klukku-
stundir í einu“, var svarið við
fyrstu spurningu blm. varð-
andi tímann við æfingar á
verkinu. „Leikstjórinn, Jón
Júlíusson, var ráðinn í lok
janúar, en þá hafði að vísu
verið valið annað verkefni til
sýninga, en það var „Sá sem
stelur fæti verður heppinn í
ástum“ eftir Dario Fo, en það
verkefni var bæði lengra og
mannfrekara, og síðan kom í
ljós að það gekk ekki eins vel
að manna það verk og það sem
við erum að sýna núna. Að
vísu kemur það á móti í þessu
verki að í því eru söngvar, sem
ekki voru í hinu, sem gerði það
að verkum að þeir leikarar sem
eru í þessu eru bundnir allan
tímann við æfingar, en geta
ekki verið að koma og fara“.
- Það er sem sagt mikil
vinna á bak við þetta og allt
unnið kauplaust?
„Það er óhætt að segja það.
Fólk getur gefið sér það sem
dæmi að vinna fjóra tíma
aukalega á dag og sex tíma á
laugardögum í sex vikur. Það
er náttúrlega alltaf spurning
hvort við erum að vinna kaup-
laust, því okkar laun er ánægj-
an af því að sýna verkið, svo
ekki sé talað um þegar fólkið
stendur upp og klappar til að
sýna ánægju sína“.
- Svo við snúum okkur nú
aftur að undirbúningnum og
vinnunni á bak við eina upp-
setningu. Nú var t.d. erfitt að
fá fólk í „Sá sem stelur fæti “?
„Það gekk ágætlega að fá
fólk í þetta verkefni, það voru
margir prófaðir í hlutverkun-
um, þar sem leikstjórinn er
körfuharður, og það var búið
að prófa marga áður en Jón
varð ánægður með hlutverka-
skipan“.
- Það fer mikið fyrir söng í
Allra meina bót, hvernig gekk
Á frumsýningu var sýnt fyrir fullu húsi. Hér má sjá hluta frum-
sýningargesta ræða málin fyrir sýningu.
Ólafur Ólafsson, Kolbrún Sigurðardóttir, Ólafur Sigurðsson, Ástþór B. Sigurðsson, Þórný Jó-
hannsdóttir og Óskar Örlygsson í lokaatriði gamanleiksins.
- Sýningar í kaffihúsastíl?
„Já, við tókum upp þá ný-
breytni í haust að reyna sýn-
ingar í kaffihúsastíl. Það sem
er átt við með þessum kaffi-
húsastíl er það, að fólk getur
sest við uppdekkuð borð og.
fengið sér kaffi og með’í á
meðan á sýningu stendur.
Þannig verður þetta miklu I
að fá hljóðfæraleikara til
samstarfs? '
„Það verður að segjast eins
og er, að það gekk alveg hræði-
lega. Við höfðum örugglega
talað við flest alla á svæðinu,
þegar hún Gróa Hreinsdóttir
miskunnaði sig yfir okkur og
tók að sér undirleik. litla leik-
félagið þakkar henni og mann-
inum hennar innilega fyrir
aðstoðina við uppsetning-
una“.
- Einhverjir tala um að alltaf
séu sömu andlitin á sviðinu?
„Það er nokkuð til í því, en
það ber ekki sð skilja það sem
svo, að við viljum ekki aðra.
Fólki óar við öllum þeim tíma
sem fer í svona uppsetningu og
það eru fáir sem hafa tíma í
þetta. Annars er áhugi á leik-
list farinn að aukast og áhorf-
endum fjölgar, það sést á því
að félagið er að koma úr lægð
og fólk er farið að vilja kom-
ast meira út aftur og vera inn-
an um annað fólk. Við höfum
trú á því að nú fari að sjást ný
andlit í leiklistinni sem og
áhorfendur”.
W
ALLRA MEINA BÓT í GARÐI:
„VIÐ ERUM
BJARTSÝN“
- „Það er fyrir mestu“