Víkurfréttir - 24.03.1988, Qupperneq 20
20 Fimmtudagur 24. mars 1988
Vélstjórafélag Suðurnesja
tilkynnir
í sambandi við 50 ára afmæli félagsins mun FAXI birta ágrip af
sögu þess í máli og myndum í næsta tölublaði, sem kemur út
um helgina 27. mars n.k.
Eintak af blaðinu verður póstsent til allra félagsmanna eldri
sem yngri, núverandi sem fyrrverandi.
Afmælishátíð félagsins verður í félagsheimilinu Stapa laugar-
daginn 2. apríl n.k. og hefst kl. 15.30 - hálf fjögur.
Eldri sem yngri, fyrrverandi sem núverandi félagareru hvattir til
að mæta á afmælishátíðinni. Hver félagsmaður má taka með
sér einn gest. - Góðar veitingar, enginn aðgangseyrir.
Skemmtinefndin
TILKYNNING
FRÁ PÓSTI OG SÍMA
KEFLAVÍK - NJARÐVÍK
Fermingarskeytaþjónustan verður með sama hætti og
undanfarin ár.
Sunnudaginn 27. mars verður fermingarskeyta-
móttakan opin kl. 10-19.
Skírdag, 31. mars, kl. 10 - 19.
2. í páskum, 4. apríl kl. 13 - 17.
Geymið^uglýsinguna StÖðvarStjÓrÍ PÓStS Og Síma
þjónustuna. Keflavík - Njarðvík
Fasteignagjöld
Þriðji gjalddagi fasteignagjalda 1988
var 15. mars sl. og er eindagi hans 15.
apríl n.k. Útsendir gíróseðlar óskastgreiddirfyrireindaga.
Eftir þann tíma falla seðlarnir úr gildi og dráttarvextir reikn-
ast á skuldina.
Bæjarsjóður - Innheimta
Ljósm.: epj.
NYR SJUKRABILL
Kominn er til Suðurnesja
nýr fullkominn sjúkrabíll í
eigu Rauða kross deildar á
Suðurnesjum. Bíll þessi er af
Ford Econoline 350 gerð og
hinn vandaðasti að allri gerð.
Um er að ræða háþekjubil
sem býður upp á þá mestu
tækni sem hægt er að bjóða
upp á fyrir sjúklinga í sjúkra-
bíl. Bíll þessi er bæði lengri og
hærri en sá bíll sem mest hefur
verið notaður fram að þessu.
Kemur sjúkrarými bílsins því
út sem stærra.
Að sögn Gísla Viðars Harð-
arsonar, formanns deildarinn-
ar, verður bíllinn afhentur
Brunavörnum Suðurnesja til
afnota nú næstu daga. En fyrir
á Rauða kross deildin tvo bíla
sem nú eru í rekstri hjá BS og
er hugmyndin að selja annan
þeirra, þann sem fram að
þessu hefur verið notaður sem
sjúkrabíll númer eitt.
Ferm i ngarskeyta-
sala Heiðabúa
Skeytasala Heiðabúa verður í
Skátahúsinu báða fermingardag-
ana 27. og 31. mars.
Húsið opnar kl. 10 og er opið til
kl. 19. Einnig höfum við móttöku í
Nonna og Bubba. Hólmgarði frá
kl. 13 til 19.
Aðstandendur þeirra barna sem
ekki verða heima á fermingardag-
inn eru vinsamlega beðnir að til-
kynna í Skátahúsið hvert á að
senda skeyti barna þeirra.
Skátarnir vonast eftir að bæjar-
búar styrki skátastarfíð með því að
kaupa skeyti hjá þeim.
Einu sinni skáti, ávallt skáti.
Skátakveðja
Heiðabúar
Kynningarfundur
um sorg og sorgarferli
Kynningarfundur um sorg
og sorgarferli verður haldinn í
Kirkjulundi í Keflavík mið-
vikudaginn 30. mars n.k. kl.
20.30.
Menn hafa greint sorgina á
fjóra vegu. Talað er um dæmi-
gerða, ,,eðlilega“ sorg, lang-
varandi (kroniska) sorg, inni-
byrgða sorg (inhibited) og síð-
búna sorg. Þessarskilgreining-
ar eru niðurstöður rannsókna
og gefa til kynna mikilvægi
sorgarferlisins. Sorg er alvar-
legt ástand sem getur haft af-
drifaríkar afleiðingar fyrir líf
og heilsu manna. Það er ekki
um að ræða afmarkað, ein-
angrað svið, heldur orsaka-
vald sem nær til allra þátta
mannlífsins.
Við stöndum frammi fyrir
því að takast á við þennan
veruleika lífsins án þess að af-
neita honum. Við verðum að
læra að lifa við ýmsar dökkar
hliðar lífsins. Efnt er til kynn-
ingarfundarins til þess að
kanna hve þörfin er brýn.
Frummælendur verða sr. Sig-
finnur Þorleifsson, prestur
Borgarspítalans, einn af stofn-
endum samtaka um sorg og sorg-
arferli og Konráð Lúðvíksson,
kvensjúkdómalæknir, sem
hefur kynnt sér viðbrögð fólks
við niissi.
Þeir sem misst hafa ástvini
og annað áhugafólk er vel-
komið á fundinn. Þátttaka er
ekki bundin við trúar- eða lífs-
skoðanir. Reynt verður að
mæta fólki eins og það er. Eftir
páska verður unnið í svo köll-
uðum nærhópum (10-12
manna) með einum leiðbein-
anda og stuðningsfólki, gjarn-
an fólki, sem hefur misst fyrir
tveimur eða enn fleiri árum.
Fundir verða einu sinni í viku
um 5 vikna skeið og þeim
fundinn staður, eftir þvi sem
hentar þátttakendum best hér
á Suðurnesjum. Síðan verður
tekin ákvörðun um hvort
fundir verða haldnir mánaðar-
lega yfir sumartímann eða
komið saman á ný i haust.
Um þetta verkefni hefur
tekist samstaða presta þjóð-
kirkjunnar á svæðinu og prests
Aðventista í Keflavík, Þrastar
Steinþórssonar, sem unnið
hefur að þessum málum og
kynnt sér þau sérstaklega er-
lendis. Við biðjum blaðamenn
að sýna okkur nærgætni og
viljum ekki að ljósmyndir séu
teknar á kynningarfundinum.
Það er fátt betur við hæfi en
að hefja umræðu um þessi mál
í kyrruviku. Sagt hefur verið
að „samtal sé sorgarléttir" og
ég vil að lokum minna á það
fyrirheit, að þeir sem feta
krossferil Krists í sorg eignast
hlutdeild í upprisu hans.
Olafur Oddur Jónsson