Víkurfréttir - 24.03.1988, Síða 22
\)IKUR
22 Fimmtudagur 24. mars 1988
Hækjukarlar ÍBK, f.v.: Axel Nikulásson, Matti Ó. Stefánsson, Ólafur Gottskálksson, Guðjón Skúla-
son og Gylfi Þorkelsson.
Fyrri leikur UMFN
og ÍR í kvöld
Dregið var í undanúrslit bikarkeppni KKI um síðustu helgi.
Njarðvíkingar lentu á móti IR og verður fyrri leikur liðanna í
kvöld í Iþróttahúsinu í Njarðvík og hefst kl. 20.
MÖRK
FRÁ
Una Steinsdóttir var í miklu
stuði þegar IBK vann Aftureld-
ingu i 2. deild handboltans um
sl. helgi. Una skoraði 12 mörk í
yfirburðasigri ÍBK, 24:13.
Staðan í leikhléi var 14:10.
Leikurinn var jafn framan
aí', en þegar staðan var 7:6 fyrir
UMFA settu Keflavíkurstúlk-
urnar í annan gír og skoruðu 7
mörk gegn einu áður en
I BUNU
UNU
flautað var til hálfleiks. Una
Steinsdóttir skoraði 9 mörk í
fyrri hélfleik. Yfirburðir ÍBK
héldu áfram og í lokin var
munurinn orðinn 11 mörk,
24:13.
Þegar yfir lauk hafði Una
skorað 12 mörk og var lang-
best hjá IBK. Næstar í marka-
skorun voru Elísabet með 4
mörk og Anna María með 3.
UMFN
úrvals-
deildar-
meist-
arar
UMFN gjörsigraði UMFG
101:64 í Njarðvík sl. föstudag
og tryggðu þeir sér þar með úr-
valsdeildarbikarinn í körfu-
bolta. Staðan í leikhlé var
58:31.
Njarðvíkingar léku við
hvern sinn fingur, tóku leik-
inn í sínar hendur strax á
fyrstu mínútunum og náðu
góðu forskoti, 10:7 og 24:13.
Grindvíkingar áttu sér aldrei
viðreisnar von, náðu aldrei
upp góðu spili og hittu illa.
Njarðvíkingar höfðu yfirgnæf-
andi forystu allan leiktímann
og voru Grindvíkingar aldrei
nálægt því að jafna.
Stigahæstu menn UMFN:
Teitur Örlygsson 25, Valur
Ingimundarson 20 og Hreiðar
Hreiðarsson 20.
Stigahæstu menn UMFG:
Hjálmar Hallgrímsson 15,Jón
Páll Haraldsson 14 og Guð-
mundur Bragason 12.
Dómarar: Ómar Scheving
og Kristinn Albertsson, og
dæmdu þeir ágætlega.
Una skorar hér eitt af 12 mörkum sínum. Ljósm.: ómj.
I juau
Hækjulið
Keflvíkinga
Urvalsdeildarlið Keflvíkinga í körfunni á ,,bágt“ um þessar
mundir. Fimm af fastamönnum liðsins eru meiddir og leika lík-
lega ekki með IBK í úrslitakeppninni. Sjúkralistamennirnir eru
Axel Nikulásson, Matti Ó. Stefánsson, Ólafur Gottskálksson,
Guðjón Skúlason og Gylfi Þorkelsson. í 10 manna byrjunarliði
IBK, sem leikur gegn Þór um helgina verða sjö annars flokks
strákar og aðeins þrír eldri leikmenn.
Síðasta umferðin í úrvalsdeildarkeppninni verður um helgina,
en síðan tekur úrslitakeppnin við. Líklega lendir UMFN gegn
KR eða Val og IBK gegn Haukum.
Handbolti kvenna:
4. FL. ÍBK
í 2. SÆTI
4. flokkur ÍBK í kvenna-
flokki lenti í 2. sæti í Islands-
mótinu í handbolta. Urslita-
keppnin fór fram á Selfossi um
síðustu helgi. IBK-stúlkurnar
töpuðu í úrslitaleik gegn
heimamönnum 3:2.
Þrátt fyrir fá mörk var mikil
spenna og fjör í úrslitaleikn-
um. Áhorfendapallarnir voru
þétt setnir af 300 heimamönn-
um sem hvöttu sitt lið óspart.
ÍBK komst í 2:0 en Selfoss-
dömurnar jöfnuðu og skoruðu
sigurmarkið í lokin og urðu
því Islandsmeistarar. Mörk
IBK skoruðu Sigrún Haralds-
dóttir og María Reynisdóttir.
Bæði liðin unnu sitt hvorn rið-
ilinn en ÍBK lenti gegn mun
erfiðari liðum og sigraði þau
öll. Freyr Sverrisson er þjálf-
ari liðsins og sagðist hann vera
ánægður með árangurinn og
að stúlkurnar ættu framtíðina
fyrir sér.
3. flokkur kvenna hjá ÍBK
er kominn í 10 liða úrslit, sem
fara fram í Vestmannaeyjum
um næstu helgi. IBK mun þó
ekki mæta til leiks þar sem
nokkrar stúlknanna eiga að
fermast um helgina. Þessi ár-
angur í kvennaboltanum er
engu að síður ánægjulegur og
vonandi aðeins byrjunin á
uppsveiflu í handboltanum í
Keflavík.
3 meistaratitlar UMFN
Eftir leik UMFN og UMFG á föstudaginn voru Njarðvíking-
um afhent sigurlaun í Islandsmótinu í þremur flokkum: úrvals-
deildarbikarinn, í 2. flokki og svo lávarðadeild. Tveir Islands-
meistaratitlar og einn deildarbikar. Allt útlit er fyrir að fleiri eigi
eftir að bætast í safn UMFN áður en tímabilinu lýkur.
Ljósm.: Ægir Már