Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.11.1988, Síða 10

Víkurfréttir - 24.11.1988, Síða 10
10 Fimmtudagur 24. nóvember 1988 Meðal þess sem sýnl var á opnu liúsi SK og HSS var myndasyrpa, þar sem fæðing með keisaraskurði var rakin. Sjúkrahúsið - Heilsugæslan: Góð kynning fyrir almenning Sjúkrahús Keflavíkurlækn- ishéraðs og Heilsugæslustöð Suðurnesja stóðu fyrir opnu húsi síðasta sunnudag. Kenndi þar margra forvitnilegra grasa, eins og sagt er. Var mjög vel að kynningarstarfinu á stofnunum þessum staðið en þó var synd hve fáir komu og nýttu sér tækifæri þetta til að fræðast um allt að því ótrúlega hluti. Þegar fólk hafði gengið um og skoðað stofnanirnar var boðið upp á kaffi, ávaxtasafa og meðlæti í eldhúsi sjúkrahússins. Þrátt fyrir dræma aðsókn bar Karl Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri SK og HSS, sig nokkuð vel og taldi aðsóknina þokkalega í samtaði við blað- ið. En aðeins um 250 manns af tæplega 15 þúsund íbúum svæðisins létu sjá sig. Meðfylgjandi myndir tók Ijósmyndari Víkurfrétta, Hilmar Bragi, við þetta tæki- færi. Hjúkrunarfræðingur fræðir gesti uni það hvernig dreifing fer fram og hvaða áhöld eru notuð við ýmsar aðgerðir. Jólaföndurdagur í Myllu- bakkaskóla á laugardag Jólaföndurdagur Myllu- bakkaskóla verður haldinn næstkomandi laugardag, 26. nóvember. Eins og síðastlið- ið ár er fyrsti sunnudagur í aðventu í nóvember og því ekki úr vegi að foreldrar, af- ar og ömmur komi með börnum sínum og eigi skemmtilega dagsstund sam- an áður en kveikt verður á fyrsta aðventukertinu. Skipting nemenda verður þannig að sex til átta ára nemendur mæta kl. 10-12 en níu til ellefu ára nemendur frá kl. 13 til 15. Ætlast er til að börn séu í fylgd með for- eldrum. Þeir foreldrar sem eiga börn í báðum hópum geta valið um tíma. Tónlistarskólinn í Kefla- vík mun setja hátíðarblæ á samkomuna með. flutningi hugljúfra jólalaga í flutningi tveggja sveita. Stjórn foreldra- og kenn- arafélags Myllubakkaskóla hvetur öll börn og foreldra þeirra, ömmur og afa til þess að mæta og vinna saman að jólaföndri. Holtaskóli: Léleg mæting foreldra Síðasta fimmtudag átti að halda aðalfund Foreldra- og kennarafélags Holtaskóla. En þótt foreldrar barna við skól- ann séu um 900 talsins mættu aðeins 15 manns á fundinn. Þar af voru kennarar og blaða- maður. Var þvi ákveðið að fresta að- alfundinum þar til næstkom- andi mánudag og hefst hann þá kl. 20.30 í sal Holtaskóla. Er vonandi að fleiri láti þá sjá sig. Allt fyrír aðventuna! Kransar og skreytingar í úrvaln Opið til kl. 21 öll kvöld til jóla, nema sunnudaga til kl. 18 KOSY Hafnargötu 6 - S: 14722 Tvær hæðir roðfullar af nýjum húsgögnum og veitum 10% staðgreiðsluafslátt Fimmtudagur 24. nóvember 1988 11 Glæsileg ensk borðstofuhúsgögn á ótrúlega hagstæðu verði. Hillusamstæður Frá kr. 49.320 Þýskur leður raðsófi - Miklir möguleikar í útfærslu - Ath. 15% staðgreiðsluafsláttur. Ut$kálar Vatnsnesvegi 14 - Keflavík - Sími 11755 Nokkrar hressar i „innkaupunr'. „Þetta eru ineiri vandræðin með þig, Hvað hcfur þú eiginlega fengið í hárið?“, gæti stelpan verið að hugsa. LIÐIN „Ó, beibí, æ lof jú“. Ambassador sófasett 3+1+1 159.120 kr. STAÐGREITT Vandamál þau sem komið hafa upp um helgar í Keflavík vegna fámenns hóps unglinga hafa vakið mikla athygli. Þá ekki síður fréttamyndir þær sem ljósmyndari blaðsins tók meðan róstumar stóðu yfir um þar síðustu helgi. Hinu má þó ekki gleyma að Þrír hressir krakkar á röltinu. hér er á ferðinni aðeins lítill hópur af þeim unglingum sem hópast niður við Hafnargötu um helgar. Stærsti hluti hóps- ins er nteð prúða framkomu og birtum við nú myndir af þeirri hliðinni. Ljósmyndari er sem fyrr Hilmar Bragi. 'W. 96...95...94...93... Það er farið að styttast í bjórinn „Við erum bara að taka svona bíó“, sagði kvikntyndagerðarmað- urinn og bílstjórinn brunaði í burtu.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.