Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.01.1989, Side 12

Víkurfréttir - 19.01.1989, Side 12
12 Fimmtudagur 19. janúar 1989 Stofnfundur Bjarma, félags um sorg og sorgarferli á Suðurnesjum, verður miðvikudagskvöldið 25. janúar kl. 20.30 í Kirkjulundi. Dagskrá fundarins verður sem hér segir: Ávarp. Kosning fundarstjóra og fundarritara. Lög félagsins samþykkt. Kórsöngur: Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnar Falkner. Sr. Sigfinnur Þorleifsson, prestur á Borg- arspítala, flytur erindi um þarfir syrgj- enda. Umræður. Kórsöngur og samsöngur. Félagið stendur öllum opið og eru allir sem áhuga hafa boðnir velkomnir á fundinn. Undirbúningsnefnd. GAMAR Hreinsunarþjónusta Leigi út litla og stóra ruslagáma, opna eða lokaða. Verð frá kr. 3000 á mánuði með losun. GÁMAR sf. sími 68567. Fiskverkunarhús til sölu Hluti af fiskverkunarhúsi nr. 1 við Básveg í Keflavík er til sölu. Tilboð sendist Landsbanka íslands fyrir 3 0. janúar n.k. Allar nánari upplýsingar veitir útibússtjóri. Landsbanki Islands Útibúið Sandgerði Samvinnuferðir - Landsýn Vegna vetrarleyfis umboðsmanns frá 6. jan. til 30.jan. verða upplýsingar veittar í síma 91-691010 (aðalskrif- stofa). Guðjón Stefánsson mun einn- ig veita upplýsingar í síma 15416 og annast afgreiðslu farseðla. Hluti þátttakcnda í tciknimyndasamkcppninni, ásamt fulltrúum Lionshreyfingarinnar og mynd- mcnntakennara Holtaskóla. A myndina vantar m.a. sigurvegarann, Helgu Magnúsdóttur. Ljósm.: hbb. Holtaskóli: 51 nemandi í alþjóð- legri teiknimynda- samkeppni Lionshreyfingin á íslandi sá á s.l. hausti um framkvæmd al- þjóðlegrar teiknimyndasam- keppni, sem hreyfingin gekkst fyrir, um friðarveggspjald undir kjörorðinu „Peace will help us grow“, eða „Friður færir okkur þroska". Þátttakendur voru nemend- ur 5„ 6. og 7. bekkja grunn- skóla landsins. Lionessuklúbbur Keflavík- ur og Lionsklúbburinn Óðinn sáu um framkvæmd keppn- innar í Holtaskóla í samvinnu við myndmenntakennara skólans, Ólinu Björnsdóttur. 51 nemandi 6. og 7. bekkjar Holtaskóla, 35 drengir og 16 stúlkur, tóku þátt í keppninni. Veitt voru þrenn verðlaun fyrir bestu myndirnar, auk þess sem allir þátttakendur fengu viðurkenningar. Fyrstu verðlaun hlaut Helga Magnúsdóttir 6-D, önnur verðlaun Andrés Breiðfjörð I Agnarsson 7-A og þriðju verð- laun Sigurbjörn Arnar Jóns- | son 6-B. Andrés Breiðfjörð Agnarsson varð í öðru sæti ogtekur hérviðverð- launum úr hcndi fulltrúa Lionshreynngarinnar. 0PIÐ HÚS HJÁ LITLA LEIKFÉLAGINU Litla leikfélagið ætlar að hefja starfsemi sína aftur eftir gott jólafrí. I haust sem leið var tekið til sýningar hjá félaginu Himna- ríki Hitlers, 3 einþáttungar eft- ir Bertholt Brecht. Sýningar urðu 6 talsins. Þótt þetta verk hafi verið í þyngra lagi vakti það áhorfendur til umhugsun- ar um uppgang nasismans á 3ja áratugnum og má segja að viðtökur hafi verið góðar og samdóma álit manna að vel hafi til tekist. Litla leikfélagið ætlar að hefja starfsemi sína á seinni hluta leikársins með opnu húsi á föstudagskvöld, 20. janúar, kl. 21 í húsi félagsins að Iðn- görðum 8, Garði, þar sem félagar hafa verið með húsnæði á leigu undir búninga og til fundastarfsemi frá því í sumar sem leið. Ekki er búið að ákveða hvaða verkefni verði tekið fyr- ir en með opnu húsi er von manna að upp komi góðar hugmyndir. Er það ósk stjórn- arinnar að sem flestir sjái sér fært að mæta og láti ljós sitt skína, því það er aldrei að vita hvað kemur út úr fjörugu spjalli yfir góðum kaffibolla. Stjórn Litla leikfélagsins.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.