Víkurfréttir - 25.05.1989, Page 12
\>iKun
viKun
12
Fimmtudagur 25. maí 1989
jíUUí' i
{uíUt
Fimmtudagur 25. maí 1989 13
Fyrirtæki - Harðfiskur
Til sölu fyrirtæki sem framleiðir bitafisk.
Góð tæki og áhöld. Agætt húsnæði. Fyrir-
tækið er staðsett í Höfnum. Uppl. á skrif-
stofunni.
Fasteignasalan
Hafnargötu 27, sími 11420.
„Upphitun“
á Píanó-barnum
fyrir leik ÍBK og FH
sem er í kvöld kl. 20.
Já, er ekki tilvalið að ná upp
góðri stemningu fyrir leik-
inn hjá okkur, og eftir leik
kannski líka....?
Komdu og kíktu í könnu!
TJARNARGOTU 31a
Frækileg björgun við Sandgerði
Eins og fram kom á forsíðu
blaðsins í dag var frækilegt
björgunarafrek unnið við Sand-
gerði að morgni mánudagsins.
Hér á síðunni tökum við tali
menn er tóku þátt í björgun
þcssari cða urðu vitni að at-
burðunum. Menn þessir eru
Þorvaldur Reynisson, skipstjóri
á Stekkjarhamri, Arnar Nils-
sen, skipverji á þeim báti, sem í
raun var björgunarmaðurinn,
Grétar Sigurðsson, sem sá að
ekki var allt með felldu og lét
vita um atburðinn, og að lokum
Sigfús Axfjörð Sigfússon, sem
bjargaðist.
Grétar Sigurðsson:
„Ég var að horfa á eftir
þremur bátum, sem fóru út
innsiglinguna. Þ.á.m. varopin
trilla. Missti ég þá skyndilega
sjónir af henni og lét þá strax
vita upp á vigt og hófu þeir þá
þegar að kalla í Stekkjarham-
ar, en þeir svöruðu ekki. Fór
ég þá upp á grjótfyllinguna hér
og eins upp í eitt bryggju-
mastrið. En skömmu síðar,
eða eftir svona 10 mínútur, sá
ég að Stekkjarhamar kom á
staðinn," sagði Grétar Sig-
urðsson, er staddur var á
bryggjunni í Sandgerði er slys-
ið varð.
Þorvaldur Reynisson:
„Við vorum að fara út úr
höfninni er einn hásetanna sá
brak i sjónum. Fórum við þá
m
Þorvaldur Reynisson, skipstjóri
á Stekkjarhamri GK-37.
að athuga nánar hvað þetta
væri, er við sáum mann sem
hékk í fiskikari og keyrðum
því bátinn alveg upp að hon-
um og hentum til hans spotta
og náðum að draga hann inn.
Þá var hann alveg aðfara upp í
brimið, en við sáum aldrei til
bátsins, aðeins kassa og kar á
floti,“ sagði Þorvaldur Reynis-
son, skipstjóri á Stekkjar-
hamri.
-Erþað ekkigóð tilfinningað
bjarga manni?
„Jú, manni líður alltaf vel
að bjarga manni og þarna
mátti ekki tæpara standa.
Maðurinn varorðinn svo þjak-
aður að hann rétt náði að halda
í spottann þegar við drógum
hann að. Það er honum Arnari
að þakka, hvað hann var
snöggur. Þegar maðurinn
sleppti spottanum í sjónum,
greip hann í hann og svipti
honum inn.“
Arnar Nilssen:
„Það var mikið brim þarna
og fyrst er ég sá manninn hélt
ég að það væri selur við belg-
inn, enda vorum við nokkuð
langt frá. Síðan horfðum við
Valdi nánar á þetta, er ég sá
allt í einu hendi sem hann rétt
gat lyft upp. Þá sá ég strax að
þetta var maður og lét Valda
vita og sigldi hann bátnum
strax að manninum," sagði
Arnar Nilsson, björgunar-
maður Sigfúsar og skipverji á
Stekkjarhamri GK 37.
„Þá var hann orðinn all
þjakaður og gat varla haldið
sér i spottann sem ég henti til
hans og var raunar að missa
hann er ég náði í hendur hans,
um leið og báturinn tók smá
veltu. Sagði hann mér á leið-
inni í land að hann hefði tekið
belginn og bundið hann á sig
og sett síðan undir karið, eftir
að hann komst að því, og gat
velt því við svo það héldist á
floti.“
Arnar Nilssen ræðir við lögregluna að lokinni liinni frækilcgu björgun.
Sigfús Axfjörð Sigfússon:
Er við ræddum við Sigfús
var hann kominn heim, degi
eftir slysið, og var óðum að ná
sér af volkinu. Líkamshiti
hans hafði komist niður í 31
gráðu og því var hann all kald-
ur er honum var bjargað. En
hvernig segir hann frá óhappi
þessu?:
„Það var alls ekki svo slæmt
veður er ég fór út og ég hef oft
farið út í verra veðri en þessu.
Er ég var kominn út fyrir
bauju lagðist báturinn undan
kviku, er kom frá broti, og
fylltist af sjó. Lenti báturinn
þversum og því gat ég ekki
keyrt hann upp í. Liðu aðeins
15-20 sekúndur frá því að ég sá
hvað var að gerast og þar til
báturinn fór á hliðina. Síðan
rétti hann sig við á ný og þá
komst ég frá honum og gat
synt að belg og hnýtt hann ut-
an um mig ogskömmusíðarsá
ég karið og synti að því, en þá
var báturinn sokkinn.
Á meðan ég var að sigla út
horfði ég á eftir öðrum báti og
ætlaði að sæta lagi eins og
hann, en það tókst ekki rétt á
bárunni og því fór sem fór.
Það er ekki hægt að meta til
fjár björgun eins og þessa.
Þetta er alveg stórkostlegt,
hvað menn sýndu eldsnögg og
rétt handbrögð. Enda var
Sigfús Axfjörð
þarna mínútuspursmál og því
á ég ekki nægjanlega sterk orð
til að lýsa yfir þakklæti mínu
til björgunarmanna. Vil ég
einnig flytja sjúkraflutnings-
mönnunum oghjúkrunarfólk-
inu sérstakar þakkir."
Trillan Brvnhildur KE-69 hét áður Farsæll úrGarði, og þá varþessi
mvnd tckin.
Viðtöl:
epj.
Myndir:
epj., hbb.
og HG.
Sumarfagnaður
Perlunnar í Glaumbergi
föstudaginn 2. júní
Húsið opnar 19:30 fyrir matargesti og
kl. 21:00 fyrir skemmtidagskrá.
DAGSKRÁ:
Fordrykkur. Glaumberg hefur á boðstólumléttan
kvöldverð, sem er súpa í forrétt og lasagne 1 aðal-
rétt. Verð aðeins 800 kr.
Tískusýning - það nýjasta í sportfatnaði.
Erobikksýning - sýningarhópur frá Perlunni.
Líkamsræktarsýning - gestir frá Reykjavík ásamt félögum úr Perlunui.
Happdrætti - góðir vinningar.
KYNNIR: VIKTOR KJARTANSSON. Snyrtivöruverslunin GLORIA
sér um að gestir fái sýnishorn af snyrtivörum.
Sólbaðs-
og þrek-
miðstöðin
Matargestir panti í síma 14040
fyrir fimmtudaginn 1. júní.
PERLAN
SNYRTIVORUVERSLUN
GlðUM*
BERO
P.S. Eyðið með okkur ánægjustund.
30 2LY2L fermíngarhörn Síðasta sunnudag híttist hópur fólks, sem fyrir 30 árum fermdist í Hvalsneskirkju.og urðu ánægjulegir
o 1 endurfundir. Af þessu tilefni færðu þau tvær gjafir, peninga til safnaðarheimilis í Sandgerði og bóka-
' T TT:n|cnnrl-írl.'íll gjöf Grunnskólans í Sandgerði. Með þeim á myndinni er séra Hjörtur Magni Jóhannsson, sóknar-
1 XIVítlallcSKll KJU prestur kirkjunnar. Ljósm.: Nýmynd
Munið
Getraunir
og
IBK
Auglýsing
frá
Sjómanna-
dagsráði
Sjómannadagsráð hvetur fólk til þátttöku í
hátíðarhöldum dagsins þann 4. júní.
Skráning í keppnisgreinar, þ.e. kappróður,
koddaslag, stakkasund og reiptog, fer fram
á skrifstofu Verkalýðs- og sjómannafélags
Keílavíkiir og nágrennis frá kl. 9-16, sími
15777.
SJÓMANNADAGSRÁÐ
Iðnaðarhúsnæði til leigu
Til leigu iðnaðarhúsnæðið Grófinni lOc,
Keflavík, um 270 fermetrar að stærð. Upp-
lýsingar í símum 985-25726 og 12667.
SPARISJÓÐURINN
í KEFLAVÍK
vill minna fyrirtæki og einstaklinga
sem stunda atvinnurekstur
á heimild laga til að
leggja i fjárfestingarsjóð.