Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.05.1989, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 25.05.1989, Blaðsíða 15
\>iKun \juiU% Fimmtudagur 25. maí 1989 15 ðvenjulegt ævintýri „suður með sjó Fyrir skömmu var ég beðinn um að koma til Njarðvíkur og prófdæma nokkra söngnem- endur Ragnheiðar Guðmunds- dóttur við tónlistarskólann þar. Málið var auðsótt, enda mér skylt. Skólinn í Njarðvík- um kom mér þægilega á óvart. Auðséð var að rækt var lögð við að búa sem best í haginn fyrir kennara og nemendur. Skólahúsnæði gott, andi innan skólans einnig og samstaða meðal kennara hlý og einlæg. Söngnemendur sem komu til prófs voru vel undirbúnir, skólanum og kennurum sínum til sóma. Skólinn, eins og ég sagði, kom mér þægilega á óvart en það á jú ekki að vera neitt óvenjulegt eða ævintýralegt við það, því þannig eiga skólar að vera. Ævintýrið gerðist seinna þennan sama dag, að ég fyrir tilviijum staldraði við í kirkjunni í Ytri-Njarðvík á leiðinni í bæinn og hlýddi á tónleika hjá einum af fyrrver- andi nemendum tónlistarskól- ans, Helga Maronssyni, tenór, og Krystinu Cortes, píanóleik- ara. Það sem ég heyrði var óvænt. Ég heyrði rödd svo fagra að ég man ekki eftir ann- arri eins nema til að líkja við hljómplötuupptöku af ungum Björling eða Gigli. Ég varð vitni að túlkun á borð við Schipa eða Tauber og söng- gleði eins og hjá John McCor- mack. Það er undarlegt að rekast óvart inn á tónleika í fámennu úú bæjarfélagi suður meðsjóáísi- lögðu landi norður í Dumbs- hafi og fá yfir sig slíka tilfinn- ingu. Að heyra rödd sem á heima einhversstaðar annars- staðar en suður með sjó með fullri virðingu fyrir „suður með sjó“!! En ævintýrin gerast ennþá og hið ótrúlega á sér engan vissan samastað. Ég óska Njarðvíkingum til hamingju með tónlistarskóiann sinn, tónlistarskólanum tii ham- ingju með fyrrverandi nem- anda sinn og söngvaranum Helga Maronssyni þakka ég fyrir minnisstæða tónleika. Já, það má segja að ég hafi óvænt upplifað óvenjuiegt ævintýri „suður með sjó“ fyrir skömmu. G.C. Kiddi Dan, umboðsmaður Sam- vinnuferða-Landsýnar í Keflavík, ásamt sigurvegurunum, Þóru Jóns- dóttur og Jóni Frímanni Smára- syni. Ljósm.: hbb. Ariston gæði - Ariston verð Bökunarofnar, margar gerðir. Helluborð, hvít eða stál. Helluborð, 4 hellur, 2 gashell- ur og 2 rafmagnshellur. Helluborð, 4 hell- ur, 2 halogen hellur, 2 venjulegt rafmagn. Hvað er halogen? Við útskýrum og sýnum. Margt annað til að skoða. Athugaðu líka verðið og kjörin. Kjölur hf., Víkurbraut 13, Keflavík, sími 12121. r Kjölur, Armúla 30, Reykjavík, símar 91-678891 og 91-678890. Unglingavinna Njarðvíkurbær mun starfrækja unglinga- vinnu í sumar fyrir unglinga fædda 1974, 1975 og 1976. Vinna verður með líku sniði og undanfarin ár. Skráning fer fram þriðju- daginn 30. maí í Fjörheimum kl. 9-12 og 13- 17. Allar nánari upplýsingar veitir for- stöðumaður á staðnum. Ferðast frítt í þrjú ár Lukkan lék svo sannar- lega við þau mæðgin Þóru Jónsdóttur og Jón Frímann Smárason síðasta fimmtu- dag, en þá var tilkynnt um það hjá Samvinnuferðum- Landsýn hverjir hinna fjöl- mörgu utaniandsfara, sem staðfest höfðu ferðir sínar hjá ferðaskrifstofunni, sigr- uðu í ferðaveislunni 1989. Eins og áður segir voru það mæðgin Þóra Jónsdóttir og Jón Frímann Smárason, til heimilis að Vatnsnesvegi 25 í Keflavík, sem duttu í lukkupottinn að þessu sinni, en þau versluðu ferðina hjá hinum eina og sanna Kidda Dan í Keflavík, en þau höfðu staðfest ferð til Benidorm seinna í sumar. Nú geta þau hins vegar farið til Benidorm í sumar fyrir 100 krónur og til einhverra af hinum fjöl- mörgu sólar- og sumarleyfis- stöðum Samvinnuferða- Landsýnar næstu tvö árin, fyrir 200 krónur til viðbótar. Vörubílastöð Keflavíkuv tilkynnir breytt síma- númer frá 1. júní: 15580 Keflavíkurbær - Ný þjónusta LOSUNARSVÆÐI Við Áhaldahús Keflavíkur hefur verið komið fyrir tveim gámum sem hægt er að losa rusl í utan opnunartíma Sorpeyðingarstöðvarinnar. Ofan Iðavalla, norðan við íþróttasvæði er merkt svæði og þar má losa jarðvegsefni (ekki rusl). r Nánari upplýsingar veittar í Ahaldahúsi Keflavíkur, síma 11552. Bæjarverkstjóri

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.