Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.05.1989, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 25.05.1989, Blaðsíða 18
\)iKurt Fimmtudagur 25. maí 1989 Handavinnusýning á Garðvangi Handavinnusýning vistmanna á Garð- vangi og Hlévangi verður nk. laugardag, 28. maí, kl. 14-17 að Garðvangi, Garði. Kaffiveitingar - Allir velkomnir. Suðurnesjamenn, athugið! Framvegis verður afgreiðsla blaðsins opin sem liér segir: Mánudaga-fimmtudaga frá kl. 9-17 Föstudaga i'rá kl. 9-15 Ef þið þurfið að hafa samband við afgreiðsl- una á öðrum tímum, er benl á heimasíma ritstjóranna. Vll’UlrlMUit, Frá Grunnskóla Njarðvíkur Skólaslit verða í Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 31. maí kl. 14. Foreldrar og aðrir velunnarar skólans eru sérstaklega hvattir til að vera viðstaddir skólaslitin. Skólaslitin Sundnámskeið fyrir börn 5 ára og yngri hefjast 1. júní nk. Innritun hefst mánudaginn 29. maí kl. 10:00 í íþróttamiðstöð Njarðvíkur. Þátttökugjald (kr. 1500) greiðist við innrit- un. Allar nánari upplýsingar í símum. 12744 og 14567. Margrét Sanders, íþróttakennari. r Oskilamunir í vörslu lögreglunnar í Keflavík í vörslu lögreglunnar í Keflavík er nú mik- ill fjöldi óskilamuna, aðallega reiðhjól. Þess ér óskað að eigendur vitji munanna til lög- reglunnar nú þegar. Fimmtud. 1. júní n.k. kl. 17 verða þeir mun- ir, sem enn eru ósóttir, seldir á opinberu uppboði sem fram fer við lögreglustöðina í Keflavík. Uppboðshaldarinn í Keflavík Aðalfundur Iðnsveinafélags Suðurnesja verður haldinn í húsi félagsins miðvikudag- inn 31. maí kl. 20.00. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Önnur mál. Stjórnin G3 4» Opið á laugardögum kl. 14 - 16. Aðrir timar eftir samkomulagi. Upplýsingar i símum 13155, 11555 og 11769. Sundnámskeið fyrir börn 6 ára og eldri, hefst í Sundhöll Keílavíkur mánudaginn 29. maí. Kennt verður fyrir hádegi. Innritun á sundnámskeiðið hefst föstudaginn 26. maí. Sundhöll Keflavíkur Iþrótta- og leikjaskóli íþrótta- og leikjaskóli Keflavíkur hefst mánudaginn 5. júní, fyrir börn 6-12 ára. Hvert námskeið stendur yfir í 3 vikur. Inn- ritun hefst fimmtudaginn 1. júní. Nánar auglýst í næstu viku. íþróttaráð Keflavíkur Iþrótta- og leikjanámskeið fyrir börn 6-7 ára og 8-12 ára hefjast mánu- daginn 5. júní nk. Innritun verður föstu- daginn 2. júní milli kl. 13:00-15:00 í íþrótta- miðstöð Njarðvíkur. Þátttökugjald (kr. 1500) greiðist við innritun. Allar nánari upplýsingar í símum 14567 og 12744. Guðbjörg Finnsdóttir, íþróttakennari. Grindavík: Maður datt af bifhjóli Maður var fluttur fótbrot- inn á sjúkrahús eftir umferð- arslys i Grindavík nýverið. Slysið atvikaðist þann- ig að maður kom akandi á stóru bifhjóli aðmótum Vík- urbrautar og Hvassahrauns, en þegar að gatnamótunum kom missti ökumaðurinn stjórn á hjólinu og féll við það í götuna. Fótbrotnaði hann, eins og áður sagði, og rifnaði og skarst á fótum. Lögreglan eltist við fjórhjól Nú, um leið og vorið færist yfir, aukast þau útköll sem lögreglan fær vegna ólög- legra fjórhjóla á víðavangi og í byggð. Enda hafa slík út- köll ekki staðið á sér nú fremur en áður, að sögn lög- reglunnar. Þá hafa réttindalausir ökumenn á léttum bifhjólum einnig verið til ama svo og ökumenn á torfæruhjólum, að sögn lögreglunnar. Afmæli Þar kom að því. Hann Hilmar Bragi Bárðarson, „Bláa lóns hrellir", er 19 ára í dag. Að sjálfsögðu tekur hann á móti gestum í lóninu, þegar hann ætlar í fyrsta sinn að dýfa sér sjálfur ofan í. Hann mun því loksins sjá lónið öðruvísi en í gegnum linsuna. Af þessu tilefni óskar hann eftir ungum og falleg- um stúlkum með sér ofan í lónið. Blaðasnápar

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.