Víkurfréttir - 20.07.1989, Blaðsíða 6
\liKun
6 Fimmtudagur 20. júlí 1989
Hársnyrting fyrir dömur og herra
Hárgreiðslustofan
£L
Qúcn*
Vatnsnestorgi
Tímapantanir í síma 14848
SKIPAAFGREIÐSLA
SUÐURNESJA
KRANALEIGA
LYFTARALEIGA
SÍMI
14675
Auglýsingasímamir em
14717 og 15717.
Vh'MUlf/Uttí*
jutiit
molar Grín - Gagnrýni - Vangaveltur Umsjón: Emil Páll
Heimablaðið ekki
gjaldgengt.......
Nýverið var staða fram-
kvæmdastjóra Sjúkrahúss
Keflavíkuriæknishéraðs og
Heilsugæslustöðvar Suður-
nesja auglýst laus til um-
sóknar. Fráfarandi fram-
kvæmdastjóri sá um auglýs-
inguna og tók þá ákvörðun
að auglýsa eingöngu í Reykja-
.víkurblaði en ekki heima-
blaði. Gengu málin svo langt
að hann neitaði heimablaði
um birtingu, sem hlýtur að
teljast athugandi fyrir þau
sveitarfélög á Suðurnesjum
er standa að stofnunum þess-
um og eins hvort það sé ekki
á móti stefnu þeirra, að
senda fjármagnið eingöngu
til Reykjavíkur.
...kannski í samræmi
við brotið skilyrði....
Þessi afstaða framkvæmd-
astjórans fráfarandi er
kannski í takt við hans eigin
afstöðu, því þó það hafi verið
skilyrt í ráðningarsamningi
hans að har.n væri búsettur á
Suðurnesjum, eru iiðnir all
margir tnánuðir siðan hann
braut þetta skilyrði og flutti
burt.
...en þó er einn
sem fullnægir
Umrædd skilyrði um bú-
seti’. eru enn inni í umræddri
auglýsingu eftir nýjum fram-
kvæmdastjóra SK og HSS.
Þar ert’ einnig fleiri skilyrði
sem umsækjandi þarfaðfull-
nægja. Vegna þeirra benda
gárungarnir á að á Suður-
nesjum sé aðeins einn maður
sem fullnægi þeim öllum.
Hann hafi reynslu, þekk-
ingu, búsetu og sé að auki
flokksbróðir fjármálaráð-
herra, sem ráði að vissu leyti
fjármagni til stofnunarinn-
ar. Þessi maður er Eyjólfur
Eysteinsson, fyrrum ráðs-
maður....
Hvar er landinn?
Þótt nokkur reytingur hafi
verið í Bláa lóninu að undan-
förnu vekur það athygli hvað
landinn sækir lítið þessa
draumaparadís. Ferðafólk
kemur þangað hins vegar í
hópum og dásamar lónið.
Færi sólin að skína væri ekki
að spyrja að aðsókn landans,
en lónið stendur vel fyrir sínu
þó engin sé sólin. Það sann-
aðist um miðjan dag á laug-
ardag er allt var yfirfullt í
smátíma.
Fær Keflavíkurlög-
reglan stöðugildi
vallarins?
Heyrst hefur að svo geti
farið að fækkað verði um 24
stöðugildi í lögregluliði
Keflavíkurflugvaliar, er sú
lögreglusveit verður samein-
uð tollgæslunni í Lcifsstöð.
Því er spurning hvort ráða-
menn bæti ekki um leið úr
brýnni þörf og láti lögregl-
una í Keflavík hafa einhver
umræddra stöðugilda. Þó
ekki væri nema þriðjungur
eða helmingur þá kæmu þau
í góðar þarfir. Hér er verið að
ræða um stöðugildi en ekki
lögregluþjóna, því ekki er
víst að Keflavíkurlögreglan
hafi áhuga á þeim lögreglu-
þjónum sem nú missa at-
vinnu þar efra, ef af þessu
yrði, enda vinna manna þar
og hér í byggðinni ólík.
Veisla aldarinnar?
Afmælisveisla Birgis
Guðnasonar síðasta föstu-
dag var í huga margra veisla
aldarinnar á Suðurnesjum,
enda með eindæmum fjöl-
menn. Er jafnvel talið að á
fimmta hundrað manns hafí
heimsótt þennan fimmtuga
iðnaðarmann, enda hefur
hann víða markað spor sín í
félagslífinu. Séu tölur þessar
réttar hefur hann slegið vin-
sældamet Karls Steinars,
sem einnig varð fimmtugur
fyrir skemmstu.
Nú mega glann-
arnir vara sig
Þá er Keflavíkurlögreglan
búin að fá tvo góða farkosti i
bílaflota sinn. Báðir eiga þeir
auðvelt með að elta uppi
hraðakstursmenn, þó sér í
lagi annar, sem er sérbyggð-
ur sem lögreglubíll og með
mjög kraftmikla vél. Er því
betra fyrir glannana að halda
bensínfætinum uppi, vilji
þeir ekki láta góma sig, eða
hætta þar með þessari ljótu
glannaiðju.
ORÐHVATUR:
„Varnarliðið notar
aðeins púðurskof ‘
Svo mælti Friðþór Eydal
hér á dögunum og létti þá
um leið þungu fargi af okkur
Suðurnesjamönnum sem
hingað til höfum óttast skot-
gleði hermanna mjög.
Hitt er svo verra að vita
ekkert um það hvort þeir
skipta um skot í byssum sín-
um, soldátarnir, komi til
hernaðar.
Orðhvatur telur líklegt að
dátarnir okkar yrðu auð-
veldlega fallbyssufóður ef
nota ætti slík skot gegn
Rauða hernum, eða er það
ekki sá her sem alltaf er verið
að bíða eftir?
Nei, við Suðurnesjamenn
jafnt sem aðrir landsmenn
eigum heimtingu á að vita
hvenær skipt er um skotfæri í
„eldprikum“ kananna, svo
við getum áhyggjulausir rið-
ið út ellegar tínt veiðifjöllu-
egg án stöðugs ótta.
Svo eru menn undrandi á
því að þeir séu stoppaðir er
þeir nálgast flugvallargirð-
inguna ríðandi. Menn verða
að gá að því að hestar eru
alltaf mjög tortryggilegir í
sambandi við hernað, sbr.
Trójuhestinn forðum tið.
Þessi ameríkanagrey hefðu
getað haldið að trunturnar
væru hlaðnar öðrum gasteg-
undum og hættumeiri en
metangasi.
Nei,' við megum þakka
fyrir að fá að hafa blessaðan
herinn. Þeir eru dag og nótt
með íslenska hagsmuni í
huga. Þeir leggja sig alla
fram svo byggð megi haldast
hér á þessu landi.
Amen.
Á ÚTIMÁLNINGU - Stóraukin málningarþjónusta.
BETT, BECKERS,
VITRETEX OG
HEMPELS
málningarvörur.
Litaval
Baldursgötu 14 - Sími 14737