Víkurfréttir - 20.07.1989, Side 7
Guðlaug Stefánsdóttir hefur skorið fyrstu sneiðina af glæsilegri rjómatertu, sem bökuð var af þessu til-
efni. Ljósm.: hbb.
27 ár í eldhúsinu
Eftir tuttugu og sjö ára
starf í eldhúsi Sjúkrahúss
Keflavíkurlæknishéraðs lét
Guðlaug Stefánsdóttir,
Hringbraut 65 í Keflavík, af
störfum sl. fimmtudag.
I tilefni af þetta löngum
starfsaldri bauð samstarfs-
fólk hennar til kaffisamsætis
á matsal sjúkrahússins,
þegar hún lauk síðasta
vinnudeginum. Var Guð-
laugu afhent blómaskreyt-
ing frá stofnuninni og þá
færðu starfsmenn henni
óvænta gjöf, sem tók á móti
henni þegar hún kom heim
að lokinni vinnu.
Meðfylgjandi ljósmynd
var tekin þegar Guðlaug tók
fyrstu sneiðina af glæsilegri
tertu sem bökuð var í tilefni
af þessum merka degi.
Árnað heilla
Gefin voru saman í hjónaband
þann 24. júní í Keflavíkur-
kirkju, af séra Tómasi Sveins-
syni, brúðhjónin Ingunn Ped-
ersen og Þorvarður Guð-
mundsson. Heimili þeirra er
að Hátúni 1, Keflavík.
Ljósmynd: Nýmynd
Afmæli
Ólafur Þorgils Guðmundsson,
málarameistari, verðurfimmt-
ugur mánudaginn 24. júlí.
Kona hans er Guðlaug F.
Bárðardóttir. Þau ætla að taka
á móti gestum í Safnaðarheim-
ili Innri-Njarðvíkur, sunnu-
daginn 23. júlí kl. 18-20.
UTSALA
r
ÖLLUM FATNAÐU
SKOR FRA 500-990 KR.
FATAVAL
Hafnargötu 31 Keflavík
Fimmtudagur 20. júlí 1989 7
DISKO
föstudagskvöld kl. 22-03 og
laugardagskvöld kl. 23-03.
Elli G. og Nonni þeyta skífum.
(5/^WO
BEWG
Dúndrandi diskóstuð.
18 ára og eldri föstudag
en 20 ára og eldri laug-
ardag. 700-kall inn.
Jói og Gugga sýna rosa rokkdans og kynna
væntanlega rokkskemmtun.
Ótrúlega skemmtilegur veit-
ingastaður. Opið föstudag
og laugardag frá kl. 18.30.
Lifandi tónlist, góður matur
og mikið fjör
Rúnar, Tryggvi, Sara, 7und og óvæntir
gestir... Hvað er eiginlega að gerast... ?
Þetta er ekkert „smá lið“ sem skemmtir á Píanó-
barnum, enda hefur fjörið undanfarið verið með
ólíkindum.
Rúnar og Tryggvi skemmta á fimmtudagskvöld,
Sara leikur Ijúfa tóna föstudags- og laugardags-
kvöld og eldhressir Eyjapeyjar úr 7und mæta föstu-
dags- og laugardagskvöld. - Svo koma óvæntir
gestir líka um helgina .. .
Það er vissara að
panta borð um helgar.
Helgarsteikurnar
okkar eru gómsætar.
Smáréttaseðillinn sí-
vinsæli og góðar
pizzur.
bsirimt
TJARNARGOTU 31a