Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.1989, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 31.08.1989, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 31. ágúst 1989 ÞÆR ERU KOMNAR -BJÖRK OG BRYNDÍS- Allt það nýjasta í erobikk og tækjasal Námskeiðin hefjast fimmtudaginn 31. ágúst. Morguntímar - dagtímar og kvöldtímar. KERFI 1: Ekkert hopp - áhersla lögð á maga, rass og læri. KERFI II: Erobikk + tækjasalur. KERFI III: Púl - mikil brennsla. TAKIÐ EFTIR! Þeir sem eru í erobikk hafa ótakmarkaðan aðgang að tækjasal. Hjóhaafsláttur- Hópafsláttur. Erum með sérstök tímakort fyrir vqktavinnufólk. Sólbaðs- og þrekmiðstöðin PERLAN Hafnargötu 32 - Keflavík Sími 14455 FETI FRAMAR Krabbameinsfélagið MERKJASALA Merkjasala Krabbameinsfélags íslands til ágóða fyrir öll krabbameinsfélög landsins fer fram dagana 1. til 3. september. Eru börn á Suðurnesjum hvött til að selja merki. Upplýsingar veita: Garður: Kristjana Vilhjálmsdóttir, sími 27050. Sandgerði: Heiða, sími 37538. Grindavík: Kolbrún Einarsdóttir, sími 68204. Keflavík: Berta Björgvinsdóttir, sími 14600, og Andreas Færseth, sími 12354. Hafnin Bogga Sigfúsdóttir, sími 16900. Njarðvík: Björgvin Lúthersson, símar 16900 og 14300. Innri-Njarðvík: Birna Valdimarsdóttir, sími 16050. Stjórn Krabbameinsfélags Suðumesja Búið er að steypa þrjár tjarnir í væntanlegum skrúðgarði ÍAV. Ljósm.: hbb I.A.V.: Umhverfi skrifstofunnar fegrað Hafnar eru framkvæmdir bak við aðalskrifstofur Is- lenskra aðalverktaka á Kefla- víkurflugvelli er miðast að því að gera þar skrúðgarð með tjörnum, sjávarmöl og trjá- gróðri, að sögn Ólafs Thors hjá IAV. Þá verður umhverfi svefnskálanna einnig snyrt en framkvæmdir þessar verða unnar á næstu tveimur árum og er Garðaþjónusta Suður- nesja með verkið. Ungbarn féll ofan af þriðju hæð - slapp með ólíkindum Tæplega eins árs gamalt barn féll ofan af svölum á þriðju hæð fjolbýlishúss við Sólvallagötu í Keflavík að morgni föstudagsins síðasta. Kom barnið niður á svala- handrið á fyrstu hæð hússins og síðan inn á svalirnar. Var og síðan inn á svalirnar. Varð slysið skammt frá lög- reglustöðinni og aðsetri sjúkrabifreiðanna, sem eru á slökkvistöðinni, og koin sjúkrabíllinn því skjótt á vettvang. Var barnið fyrst flutt á Sjúkrahúsið í Keflavík en síðan á Landsspítalann í Reykjavík til frekari að- gerða. Mun barnið hafa höf- uðkúpubrotnað og hlotið mar. Þykir með ólíkindum hvað barnið slapp vel miðað við það á hve slæmum stað það lenti og hve fallið var hátt. Barnið, sem er aðeins 10 mánaða gamalt, féll út af efstu svölunum hér, slóst síðan utan í handriðið á miðhæðinni og hafnaði inn á svöíunum á neðstu hæðinni. Er fallið taepir sex metrar og má því teljast með ólíkindum að það skyldi ekki slasast alvarlegar en raun ber vitni. Ljósm.: epj. ! 123 stútar við stýri það sem af er ári Fimm ökumenn voru teknir af lögreglunni í Keíla- vík um síðustuhelgi,grunað- ir um meinta ölvun við akst- ur. Þar með er tala slíkra ökumanna komin í 123 þar sem af er árinu. Miðað við að liðnar eru 34 vikur hafa að jafnaði fjórir verið teknir í hverri viku árs- ins, sem telst all hátt. Fatahreinsun til sölu Efnalaugin Kvikk, Hafnargötu 30, Kefla- vík, er til sölu. Gott fjölskyldufyrirtæki á góðum stað. Nánari upplýsingar á Fasteignasölunni, Hafnargötu 27, Keflavík, um söluverð og greiðsluskilmála (ekki í síma). Fasteignasalan, Hafnargötu 27, Keflavík, sími 11420.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.