Víkurfréttir - 31.08.1989, Qupperneq 3
VIIKUR
juiUt
Fimmtudagur 31. ágúst 1989
Norræn Ijós-
myndasamkeppni
fyrir almenning
Félög í norrænu vinabæjakeðjunni
með Keflavík standa að keppninni.
Keflvíkingar hvattir til að vera með
Hinum megin við linsuna, f.v. Ragnar Axelsson (RAX), Páll Stefánsson, Martin Bell, Mary Ellen
Mark og Einar Falur Ingólfsson. Ljósm.: Páll Ketilsson
Á þessu ári eru liðin 150 ár
frá upphafi ljósmyndunar og
er þess minnst víða um heim
með margskonar ljósmynda-
sýningum.
í dag á allur almenningur
kost á að tileinka sér þá tækni
sem ljósmyndun er, en var á
árum áður einungis ætiuð at-
vinnuljósmyndurum. Sú hug-
mynd vaknað í vinabæ Kefla-
víkur í Svíþjóð, Trollháttan,
að efna til ljósmyndasam-
keppni og sameiginlegrar ljós-
myndasýningar innan vina-
bæjakeðjunnar.
Allir taki fram
myndavélarnar
Félögin í norrænu vinabæja-
keðjunni, sem Keflavík á aðild
að, hvetja alla áhugaljósmynd-
ara til að taka fram myndavél-
ar sínar þann 8. september nk.
og festa á filmu daglegt líf bæj-
arfélags síns eins og það kem-
ur þeim fyrir sjónir. Á sama
tíma og við veitum okkar um-
hverfi athygli, þá höldum við
upp á 150 ára afmæli ljós-
myndunar í heiminum.
Með því að taka þátt í ljós-
myndasamkeppninni eru þátt-
takendur einnig að auka tengsl
við vinabæi Keflavíkur á
Norðurlöndunum. Á þessu ári
eru liðin 50 ár frá því fyrsta
vinabæjasamstarfið hófst.
Markmið ljósmyndasam-
keppninnar er að hver ljós-
myndari myndi sitt nánasta
umhverfi, heimilið, fjölskyld-
una, dagheimilið, skólann,
leiðina til vinnu, vinnustaðinn,
frístundir og eigin áhugamál.
Þessar hversdagslegu nær-
myndir sem áhugamenn gjarn-
an sjá en atvinnumönnum
e.t.v. yfirsést.
Filmur hjá
Víkurfréttum
Þeir sem áhuga hafa á að
taka þátt í ljósmyndasam-
keppni þessari geta komið á
skrifstofu Víkurfrétta fimmtu-
daginn 7. september og sótt
svart/hvíta filmu sér að kostn-
aðarlausu, en umboðsaðili IL-
FORD á Islandi, David Pitt &
Co., býður Norræna félaginu
ftlmur með góðum afslætti.
Föstudagurinn 8. septemb-
er er DAGUR LJÓSMYND-
ARINNAR, þar sem viðkom-
andi ljósmyndari festirá filmu
allt það sem honum finnst per-
sónulega áhugavert í umhverft
sínu í Keflavík.
Skiladagur 9.
september
Laugardaginn 9. september
milli kl. 10 og 12 skal filmunni
skilað til Víkurfrétta að Vall-
argötu 15 í Keflavík. Filman
verður framkölluð og dóm-
nefnd velur úr þær myndir sem
sendar verða til Trollháttan í
Svíþjóð, þar sem þær verða
settar upp á sameiginlegri sýn-
ingu vinabæjanna fimm, Ker-
ava, Kristiansand, Keflavíkur,
Hjörring og Trollháttan. Ef
nægur áhugi verður er ætlunin
að setja sýninguna upp í öllum
vinabæjunum síðar. Ekki hef-
ur enn verið skipað í dóm-
nefnd, en fulltrúi Víkurfrétta
mun þó eiga þar sæti.
Það settu margir upp spari-
svipinn (og sumir vömbina
inn) þegar þrír af þekktustu
ljósmyndurum landsins, þeir
Ragnar Axelsson, Páll Stef-
ánsson og Keflvíkingurinn
Einar Falur Ingólfsson, litu
við í Bláa lóninu sl. laugar-
dag. Með þeim í för var engin
önnur en Mary Ellen Mark,
einn fremsti og virtasti ljós-
myndari heims, og eiginmað-
ur hennar, Martin Bell, kunn-
ur breskur kvikmyndatöku-
maður. Þeir þrcmenningar,
Ragnar, Páll og Einar Falur,
eiga það sameiginlegt að hafa
lært hjá Mary og buðu þeir
henni hingað til lands. ,,Þau
hjón eru geysilega hrifin af
landi okkar og þjóð og er Bláa
lónið þar engin undantekning.
Martin sagðist hafa mikinn
áhuga á að koma aftur og
gera auglýsingamyndir hér í
Ióninu,“ sagði Einar Ealur í
samtali við blm. Víkurfrétta.
■TORFÆRUB^^MHH^H
KEPPNI
m^mmmmm stakksb
SUNNUDAGINN 3. SEPT. KL. 14.00
VIÐ GRINDAVÍK
BYLTING í KEPPNISBRAUTUM
MIÐAVERÐ KR. 500
-frítt fyrir 12 ára og yngri
FORÐIST BIÐRAÐIR
MÆTIÐ TÍMANLEGA
BJÖRGUNARSVEITIN
STAKKUR
MERGJUÐ
DRULLUGRYFJA!