Víkurfréttir - 31.08.1989, Blaðsíða 18
VÍKUR
18 Fimmtudagur 31. ágúst 1989
4*au*
Ná Vfðismenn
að tryggja sér
1. deildarsæti?
• Margir Njarðvíkingar
eru ekki par hrifnir af þwí að
nú skuli sameiginlegt sund-
lið Njarðvíkur og Keflavíkur
keppa undir öðru félags-
nafni, þ.e. Sundfélagsins
Suðurnes, og vera jafnframt
innan vébanda ÍBK. Þeir
benda á það að í mörg ár
fengu Keflvíkingar afnot af
grasvellinum í Njarðvík til
æfinga og keppni og einnig
æfðu keflvískir körfuknatt-
leiksmenn lengi vcl í íþrótta-
húsinu í Njarðvík, og það án
þess að þurfa að keppa undir
merkjum Njarðvíkur.
• Keflvíkingar, niargir
hverjir, benda hins vegar á
að stór hluti sundfólks
UMFN og stjórnarfólks
undanfarin ár hafi verið og
séu Keflvíkingar og þeir hafi
um árabil haldið uppi merki
UMFN. Nú verði aftur á
móti æft í útilauginni í Kefla-
vík og því hafi verið sann-
gjarnt að keppa undir merki
IBK, þar sem UMFN komi
nánast ekkert nálægt sund-
málunum lengur.
Víðismenn eigan þungan
róður framundan eftir að
hafa beðið lægri hlut fyrir
Stjörnunni í Garðinum á
fimmtudag, 1:4. Það var
markaskorarinn Grétar Ein-
arsson sem gerði eina mark
Víðismanna snemma í leikn-
um og kom þeim reyndar
yfir. Þá var sem allt loft væri
úr liðinu og Stjarnan yfir-
keyrði allt.
Næsti leikur er gegn Ein-
herja á Vopnafirði á laugar-
dag, síðan við Breiðablik í
Garðinum og lokaleikur
deildarinnar verður á Sel-
fossi, gegn Selfossi.
Það vill Víðismönnum
e.t.v. til happs að Stjarnan og
Eyjamenn eiga eftir innbyrð-
is viðureign. Eyjamenn eru
búnir að missa góða leik-
menn til náms erlendis og
einnig munu tveir taka út
leikbann, þannig að aðeins
ætti að birta yfir i toppbar-
áttunni, þó ekki sé endan-
lega ljóst hverjir fara með
sigur af hólmi.
Klemens Sæmundsson hefur
staðið sig vel með Víðismönn-
um í sumar. Hann var einn af
betri mönnum Víðisliðsins gegn
Stjörnunni fyrir síðustu helgi.
Ljósm.: hbb.
ÍBK
leikur við
Víking á
laugardag
Keflvíkingar verma botn-
sæti 1. deildar íslandsmóts-
ins í knattspyrnu eftir 0:1 tap
gegn Skagamönnum á Akra-
nesi. Útlitið er ekki bjart því
Þór og Fylkir eru komin með
15 og 13 stig. Keflvíkingar
verða því örugglegtrað fá í
það minnsta 5-6 stig úr
þremur síðustu leikjunum í
mótinu til að eiga fræðilega
möguleika á að halda sér
uppi.
Næsti leikur liðsins er við
Víking, sem er í 4. neðsta sæti
deildarinnar, nk. laugardag
kl. 14 í Keflavík.
Bikarkeppni Frjálsíþróttasambandsins:
..Fáum vonandi
að fagna
2. deildar sæti“
„Leikurinn við Hvergerð-
inga leggst nokkuð vel í
mig,“ sagði Pálmi Ingólfs-
son, leikmaður með Grind-
víkingum, en þeir eiga þýð-
ingarmikinn leik við Hver-
gerðinga í Grindavík á laug-
ardag. Þar ræðst hvort
Grindvíkingar eða IK fer
upp í 2. deild að ári. Ef svo
skildi fara að Grindvíkingar
ynnu leikinn 1:0, þá þarf IK
að vinna sinn leik gegn
Reyni, Sandgerði, 9:0.
Við tökum þennan leik
eins og hvern annan leik í
deildinni en vonandi fáum
við að fagna 2. deildarsæti á
árshátíð okkar þennan sama
dag,“ sagði Pálmi ennfrem-
ur.
Engin meiðsli hrjá leik-
menn Grindavíkurliðsins og
því ekki annað að gera en að
hvetja alla Grindvíkinga og
aðra Suðurnesjamenn til að
fjölmenna á völlinn í
Grindavík.
Ibúð óskast
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs óskar
eftir 3ja herbergja íbúð til leigu fyrir starfs-
mann sinn. Góðri umgengni heitið ásamt
skilvísum greiðslum.
Þeir sem hafa áhuga eru vinsamlegast beðn-
ir um að hafa samband við framkvæmda-
stjóra í síma 14000.
Nú dusturn við rykið
af hjuðunum
OPIÐ
mánudaga til
föstudaga kl.
11:30-23:30.
laugardaga og
sunnudaga kl.
13.00-23.30.
KNATTBORÐSSTOFA SUÐURNESJA
Grófinni 8 - Sími 13822
UMFK í fjórða sæti
Frjálsar íþróttir hafa verið í
lægð síðastliðin þrjú ár og sýn-
ir árangur okkar Í U.M.F.K. í
Bikarkeppni F.R.Í. það einna
best. Þegar frjálsíþróttastarfið
var endurvakið með tilkomu
landsmótsins 1984 unnumvið
3. deildina og þremur árum
seinna kepptum við í 1. deild.
Sá kjarni sem myndaðist við
landsmótið var að mestu hætt-
ur að æfa og endurnýjun á
fólki ekki til staðar. Leiðin nið-
ur á við var því hröð í sumar og
keppum við aftur í 3. deild.
Bikarkeppnin var að þessu
sinni haldin á Húsavík 19.
ágúst. Lið U.M.F.K. gerði sér
ekki miklar vonir fyrirfram.
Var það skipað mjög ungum
og efnilegum krökkum og svo
var fyllt uppí með eldri og æf-
ingalausum mönnum, fyrir
utan þá Má Hermannsson og
Unni Sigurðardóttur, en þau
hafa æft mjög vel undanfarið.
Fyrsta grein mótsins var 110
m grindahlaup karla og þar
keppti Jón Páll Haraldsson.
Með glæsilegum stíl og mikl-
um hraða tókst Jóni að ná
þriðja sæti af fjórum keppend-
um, sá fjórði datt.
Jón Páll keppti einnig í
kringlukasti og kúluvarpi. Þar
hafnaði hann í fjórða og sjötta
sæti. Það er víst að ekki er nóg
að heita Jón Páll.
Jóna Agústsdóttir, 14 ára,
var sá keppandi sem kom hvað
mest á óvart í okkar liði. Fyrst
keppti hún í 100 m grindar-
hlaupi og þó hún sé ekki há í
loftinu þá sigraði hún örugg-
lega á ágætum tíma, 17,6 sek.
Jóna keppti einnig í 100 m
hlaupi og langstökki. Hún
náði öðru sæti í báðum þessum
greinum og var það vel af sér
vikið í keppni við þó nokkuð
eldri stelpur.
Birgir Bragason keppti í 100
m hlaupi og langstökki og
hafnaði í 4. sæti í báðum þess-
um greinum. Með smá heppni
hefði hann getað gert enn bet-
ur.
Unnur Sigurðardóttir sá um
kastgreinarnar hjá kvenfólk-
inu. Hún vann spjótkastið,
Unnur Sigurðardóttir
i spjótkasti.
36,86 m, og hafnaði í 3. og 4.
sæti í kringlu og kúlu. Unnur
hefur æft vel síðasta ár og má
eiga von á enn betri árangri hjá
henni á næstunni.
Lárus Gunnarsson er nú
ekki þekktur fyrir að æfa mik-
ið og hafði hann á orði að þetta
væri hans fyrsta æfingí sumar.
Þrátt fyrir æfingaleysi náði
Lalli öðru sæti í spjótkasti og
þrístökki. I hástökki náði
hann 3. sæti.
Jóna Ágústsdóttir (næst okkur)
í 5000 m hlaupi sigraði Már
Hermannsson og var hann
ekki nema einum hring á und-
an næsta manni. I 1500 m
hlaupi varð Már að láta í minni
pokann fyrir Arngrími Guð-
mundssyni, sem er aðfluttur
Keflvíkingur, en keppir fyrir
U.N.D.
Unnar Þórsson, 14 ára,
keppti í 400 m hlaupi og þó
hann ynni ekki til verðlauna
kom hann mjög á óvart með
góðu hlaupi. Sigurbjörg Jó-
hannesdóttir keppti í hástökki
og náði hún 4. sæti; Aslaug
Skúladóttir keppti í 1500 m
hlaupi og hafnaði hún í 5. sæti.
Þjálfari okkar, Linda Björk
Ólafsdóttir, keppti í 400 m
hlaupi og hafnaði hún í 5. sæti.
I 4x100 m boðhlaupi kvenna
náðum við 3. sæti.
Þegar þessi grein var búin
voru stigin þannig að UMFK
og HSH voru jöfn í 2.-3. sæti
og var þá einungis 1000 metra
boðhlaup karla eftir. Þrátt fyr-
ir heiðarlega tilraun þá urðum
við að sætta okkur við fjórða
sæti en HSH fagnaði sigri í
boðhlaupinu og hafði um leið
tryggt sér annað sætið í keppn-
inni og þátttöku í 2. deild
næsta sumar ásamt HSÞ.
Eftir þennan nauma ósigur
erum við ákveðin að gera enn
betur næsta sumar og vinna 3.
deildina.
Texti og myndir: J.R.H.
í starti í 100 m hlaupi.