Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.1989, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 02.11.1989, Blaðsíða 2
2 ÞETTA VERÐUR ÞÚ AÐ LESA Nú eru það gömlu dansarnir í KK-húsinu, uppi, laugardaginn 4. nóvember frá kl. 22- 03. Allir í fjörið! Þingeyingafélagið Kökubasar í Njarðvík Á morgun, föstudaginn 3. nóvember, selur 9. bekkur heimabakaöar kökur við blóma- bílinn frá kl. 13. Ágóðinn rennur íferðasjóð nemenda. 9. bekkur Njarðvíkurskóla Fréttir VÍkurfréttir 2. nóv. 1989 Þannig var umhorfs í Grindavíkurhöfn að morgni þriðjudagsins. Ljósm.: hpé/Grindavík Grindavík: Byggðasafn Suöurnesja Opið á laugardögum kl. 14 - 16. Aðrir timar eftir samkomulagi. Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769. Viltu fá greitt fyrir hressingargöngu? Víkurfréttir óska eftir hressu fólki til að bera út blaðið í Njarðvík. Um er að ræða svæðið frá Reykjanesvegi og niður að sjó. Áhugasamir aðilar hafi samband við skrifstofuna í síma 14717 eða 15717. Víkurfréttir SÍLD - SÍLD Starfsfólk óskast til síldarsöltunar. Fiskverkun Guðmundar Axelssonar Framnesvegi 23 Sími 15987 ATVINNA Starfskraftur óskast í Efnalaug Suðurnesja allan daginn. Uppl. á staðnum. Svírabryggja önýt Hin svonefnda Svírabryggja í vesturhöfninni í Grindavík er ónýt eftir veðurofsa scinnipart mánudags. Á seinna flóðinu flaut dekkið ofan af bryggjusúl- unum, en hér er um gamla tré- bryggju að ræða. Þá féll einnig stálþil niður á hafsbotn. Á þriðjudagsmorgun var þegar hafist handa við að tjar- Íægja þær rústir sem eftir stóðu. Einnig stóð til að senda kafara niður til að kanna ástand stálþilsins. Starfsmaður hafnarvogar- innar í Grindavík sagði í sam- tali við blaðið á þriðjudag að mikill missir væri að Svíra- bryggjunni, þar sem hún hefði veitt mikið skjól í vesturhöfn- inni, en nú kæmist aldan óhindruð inn í höfnina. Hafnargötuvandamálið er Suðurnesjamál Ófriðurinn sem skapaðist víða um Keflavík aðfaranótt laugardagsins í kjölfar þess að rúnturinn um Hafnargötuna var brotinn upp og götunni lok- að er mikið til umræðu manna á meðal þessa dagana. Flestir viðmælenda blaðsins eru á því að hér sé um vandamál að ræða sem aðalfundur SSS um helg- ina verði að fjalla um, enda eru hér á ferðinni ekki síður krakk- ar úr nágrannabyggðunum eins og Keflavíkingar. Karl Hermannsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn, sagði að það hefðu verið mistök að loka rúntinum og beina umferðinni þannig inn í íbúðarhverfin. En lögreglan hefði alls ekki gert sér grein fyrir hve mikill bíla- fjöldi þarna væri um að ræða. Sagði hann að ljóst væri að hér yrðu bæjaryfirvöld á Suður- nesjum að grípa sameiginlega inn í. Sjálfur teldi hann að setja mætti einstefnu á Hafnargöt- una, svo lögregla, leigubílar og aðrir aðilar, er þarna þurfa að komast um, ættu greiðan að- gang þrátt fyrir að krakkar safnist þarna fyrir. Guðfinnur Sigurvinsson sagði að málin væru nú til um- ræðu í hinum ýmsu nefndum og ráðum bæjarfélagsins, en hér væri á ferðinni mál sem ræða ætti t.d. á aðalfundi SSS um helgina, sökum þess að krakkarnir sem þarna ættu hlut að máli ættu heima víða um Suðurnesin. Einn viðmælandi, sem vildi ekki láta nafns síns getið, taldi vandamálið vera það að bæjar- yfirvöld hefðu sofið þyrnirós- arsvefni varðandi unglinga- málin að undanförnu. Eins sakaði ekki fyrir lögreglu að láta sjá sig meira á göngu um miðbæinn um helgar. Eins og sést á mynd þessari eru það aðallega krakkar í yngri kant- inum, sem sækja Hafnargötuna um helgar. Þó finnast eldri krakkar eins og sá sem hér er að reyna að fjarlægja eina hindrunina sem lok- aði rúntinum. Ljósm.: hbb. Utgefandi: Víkurfréttir hf. Afgreiösla, ritsljórn og auglýsingar: Vallargötu 15, simar 14717,15717, Box 125. 230 Keflavik. - Ritstjórn: Emil Páll Jónsson, heimas. 12677. bilas. 985-25916. Páll Ketilsson, heimas. 13707, bilas. 985-25917. - Fréttadeild: Emil Páll Jónsson, Hilmar Bragi Bárðarson. - Auglýsingadeild: Páll Ketilsson. - Upplag:5600eintöksemdreifterókeypisum öll Suöurnes. - Aöili aö Samtökum bæja- og héraösfréttablaöa og Upplagseftirliti Verslunarráös. - Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annaö er óheimilt nema heimildar sé getiö. Setning, tilmuvinna og prentun: GRÁGÁS HF.. Keflavik

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.