Víkurfréttir - 02.11.1989, Blaðsíða 15
15
Lesendur
Víkurfinéttir
2. nóv. 1989
KEFLAVlK:
Bær fyrir fólk í
m
V
blóma
lífsins?
JZL
Nú hefur það heyrst að bæj-
aryfirvöld í Keflavík hafi söðl-
að yfir í D-álmu málinu. Nú
eigi að minnka D-álmuna um
helming og um leið að gleyma
því sem eftir er af fyrri ráða-
gerðum þar til að fjárveitinga-
valdinu I Reykjavík þóknast
að láta fé af hendi rakna til
þessa þarfa máls fyrir okkur
sem hér búum.
Það er kunnara en frá þurfi
að segja að Grindvíkingar hafa
aldrei verið í fararbroddi í
öldrunarmálum hér á Suður-
nesjum. Þeir hafa ekki tekið
þátt í þeirri uppbyggingu sem
hér hefur átt sér stað og þeir
hafa ekki fyrir sitt litla líf viljað
kannast við það sem hér hefur
verið gert.
En fljótt skipast veður í
lofti. Skyndilega virðast þeir
vera komnir í bílstjórasætiðog
þá er ekki að sökum að spyrja.
Fyrir nokkrum árum hófu
þeir byggingu íbúða fyrir aldr-
aða og að sjálfsögðu voru þeir
stórhuga og vel var byggt, en
það virðist einhvern veginn
hafa gleymst að spyrja bæjar-
búa þar hvort þeir myndu vilja
búa í þessu húsi. Núna virðist
vera að koma á daginn að ekk-
ert alltof margir vilja gera það
og þá eru góð ráð dýr. Ekki er
hægt að láta húsið standa autt,
eða láta það standa sem minn-
isvarða um stórhuga menn eða
gott málefni.
Hvað skyldi til bragðs taka?
Jú, aðsjálfsögðu skal fórna því
á altari „samvinnunnar“, sem
Suðurnesjamenn eru svo fræg-
ir fyrir og eins og allar fórnir,
þá krefst þessi fórn fórnar-
dýrs.
Eg vil koma þeirri spurn-
ingu á framfæri við bæjar-
stjórn Keflavíkur, hvers aldr-
aðir og sjúkir Keflvíkingar
eigi að gjalda? Á þeim að vera
fyrirmunað að fá að dvelja í því
bæjarfélagi sem þeir hafa lagt
svo mikið á sig til að byggja
upp? Það er ekki nóg að láta
prenta myndarlegan bækling í
tilefni af merkum tímamótum
í sögu bæjarins, þar sem sýnt
er fram á að hér sé blómleeur
bær.
Það fólk sem nú nálgast sitt
ævikvöld hefur unnið vel fyrir
okkar bæjarfélag og þjóðar-
skútuna og á tvímælalaust
kröfu á að fá að eyða sínu ævi-
kvöldi í sem mestri nálægð við
börn sín og barnabörn. Því er
það skýlaus krafa flestra Kefl-
víkinga að þau vandamál, sem
elli og sjúkleiki því miður kalla
fram, verði leyst hér í Keflavík
en ekki í sem mestri fjarlægð
héðan.
Ef fram fer sem horfir þarf
maður ekki að kippa sér upp
við það, að sett yrðu upp skilti
m
TT
é
ára og eldri
w óæskilegir
við bæjarmörkin, þar sem það
væri skýrt tekið fram að aldr-
aðir sjúkir væru óæskilegir i
þessu bæjarfélagi. Eða þá að
við skiltið sem tilkynnir að hér
sé 50 km hámarkshraði sé bætt
við skilti, þar sem fram komi
að 67 ára og eldri séu ekki vel
séðir.
Eg vona að bæjaryfirvöld t
Keflavík sjái sóma sinn í að
kynna bæjarbúum þessi mál
áður en þau binda hendur
sínar og fyrirgera rétti eldri
borgara til að fá að búa hér.
Með von um svör og fræðslu
um það sem til stendur að gera.
ESS
Pollyanna skrifar:
Það stefnir í gjaldþrot
II
TatvupfippiPi
sem er sniðinn fyrir
allt atvinnulíf Suöumesja.
e
Eflum atvinnulíf hér heima.,
Ekki flytja það í burtu
GRAGAS HF. Eina prentsmiðjan
Vallargötu 14 - 230 Keflavik á Suðurnesjum, sem
Simar 11760, 14760 framleiðir tölvupappír.
SUÐURNESJAMENN
- Verslum heima. -
VlKURFRÉTTIR
Ég held að það sé að stefna í
gjaldþrot hjá mér. Hvað ætli sé
til ráða? Ég sest niður og
hugsa. Það sem ég hef verið að
gera undanfarið er það að
breyta skuldum, þannig að ég
tek lán hér til þess að borga
skuld þar. Þetta er auðvitað
engin lausn og kallar bara á
fleiri lántökur.
Munið þið þegar kálfurinn
datt í brunninn og Einbjörn
togaði í kálfinn og Tvíbjöm
togaði í Einbjörn og Þríbjörn
togaði í Tvíbjörn o.sv.frv. en
ekki haggaðist kálfurinn?
Kálfurinn minn er líka alveg
fastur ennþá, en ég held að ég
geti losað hann. Ég bý í einbýl-
ishúsi. Ég ætla að selja það
vegna þess að lífið er of dýr-
mætt til þess að sóa því í enda-
lausar fjármálaáhyggjur, ég
hef nóg annað við það að gera.
Ég á mér fjölda áhugamála
sem ég þarf að sinna.
Þegar ég er búin að selja
húsið mitt kaupi ég mér hús-
næði sem ég ræð leikandi létt
við að borga.
í þessu draumahúsnæði
mínu, sem bíður mín þarna í
rósrauðri framtíðinni, munu
allir mínir draumar rætast,
áhugamálin verða ekki lengur
höfð útundan, því að loksins
hef ég öðlast sálarró til þess að
einbeita mér að þeim.
Hugsið ykkur bara, í þetta
sæluríki mitt kemur aldrei bréf
frá lögfræðingi, engar hótanir
um að borga strax svo komist
verði hjá frekari aðgerðum. Ég
verð frjáls og kettir útí mýri
geta aftur sperrt upp stýri
vegna ævintýris sem endaði
vel._
Ástar- og baráttukveðjur til
allra sem eru með eignir sínar í
uppboðsdálkunum.
Ykkar einlæg,
Pollyanna.
Tilkynning til þunga-
skattsgreiðenda
Gjaldendum vangoldins þungaskatts er
bent á að þungaskattskröfum fylgir lögveð-
réttur í viðkomandi bifreið, sbr. 2. mgr. 10.
gr. laga nr. 3/1987.
Verði vangoldnar þungaskattsskuldir eigi
greiddar fyrir 2. desember nk. mun, skv. 1.
gr. laga nr. 49/1951, fyrirvaralaust verða
krafist nauðungaruppboðs á bifreiðum
þeim, er lögveðrétturinn nær yfir, til lúkn-
ingar vangoldnum kröfum auk dráttar-
vaxta og kostnaðar.
Bæjarfógetinn í Keflavík,
Grindavík og Njarðvík.
Sýslumaður Gullbr.sýslu.
HUNDAEIGENDUR ATHUGIÐ!
Hundahreinsun er lokið á Suðurnesjum. Þeir hundaeigendur sem
ekki hafa sinnt fyrirmælum Heilbrigðiseftirlitsins, og fært hunda sína
itl bandormahreinsunar, gefst kostur á að koma með þá í hreinsun
mánudaginn 6. nóvember nk. kl. 17-19, að Vesturbraut lOa, Kefla-
vík.
Vanræksla á að færa hund til bandormahreinsunar telst alvarlegt
brot á gildandi samþykkt um hundahald og missir viðkomandi
hundaeigandi leyfi til að halda hund.
Hunda, sem ekki er leyfi fyrir, er heimilt að taka og aflífa án frekari
viðvörunar.
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja