Víkurfréttir - 02.11.1989, Blaðsíða 13
13
Fréttir
Yikurfréttir
2. nóv. 1989
Einn
tónlistar-
skóli fyrir
Suður-
nes
Aðalfundur Sambands sveit-
arfélaga á Suðurnesjum verður
haldinn á laugardag í sam-
komuhúsinu í Sandgerði. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa
eru tekin fyrir ýmis sameigin-
leg hagsmunamál fyrir Suður-
nesin.
Einna hæst ber þar umræðu
um hvort stofna eigi einn tón-
listarskóla fyrir Suðurnes. Þá
verða heilbrigðismál, öldrun-
armál og atvinnumál í brenni-
depli. Auk þess sem Héraðs-
nefnd Suðurnesja heldur sinn
fyrsta aðalfund, strax að lokn-
um fundi SSS.______
Mjög góð
sala hjá
Happasæli
Happasæll KE 94 gerði mjög
góða sölu á fiskmarkaði í Brem-
erhaven í Þýskalandi í síðustu
viku. Voru 87,3 tonn seld fyrir 7
milljónir króna.
Að sögn Rúnars Hallgríms-
sonar var hér mest um ufsa að
ræða. Meðalverðið nam á sölu-
degi 79,72'kr. Á hverja fiskteg-
und fékkst eftirfarandi meðal-
verð pr. kíló: Ufsi 76 krónur,
þorskur 130 kr., keila tæpar 75,
kr., karfi 10i( kr. ogfyrirlöngu
fengust rúmar 100 krónur.
Nýi björgunarbíllinn er af Benz-gerð og verður formlega tekinn í
notkun næstu daga. Ljósm.: epj.
Brunavarnir Suðurnesja:
Fullkominn björgun-
arbill kominn I flotann
Björgunarbíll af fullkominni
gerð er nú kominn í bílaflota
Brunavarna Suðurnesja. Er
bíllinn keyptur frá Þýskalandi
og er ónotaður að öðru leyti en
því að hafa verið sýningarbíll
hjá verksmiðjunum.
Bíllinn umræddi er algjör
bylting frá fyrri bílum slökkvi-
liðsins. I honum eru margvís-
leg tæki sem áður hafa ekki
verið hjá slökkviliðinu, auk
þess sem hann hefur að geyma
öll helstu tæki sem venjulegur
slökkvibíll býr yfir. Meðal
tækja í honum eru klippur til
að ná mönnum út úr ökutækj-
um við umferðarslys. Þá er
margvíslegur annar búnaður
s.s. ljósamastur til að lýsa upp
vettvang, byssa til að skjóta
vatnsbununni o.m.fl.
Verður bíllinn formlega tek-
inn í notkun á næstunni, en áð-
ur þarf að æfa mannskapinn á
hann og gera á honum lítils-
háttar breytingar.
SveinbjörgSH-317
tekin f landhelgi
Landhelgisgæslan tók á
mánudag fyrir rúmri viku
Sveinbjörgu SH 317fyrirólög-
legar veiðar með dragnót í
Sandvík og Hraunsvík.
Oskaði Landhelgisgæslan
aðstoðar lögreglunnar í
Grindavík, sem tók skýrslu af
skipstjóra Sveinbjargar eftir
að báturinn hafði verið sendur
í land.
Messur
L. ..*>
Keflavíkurkirkja
Sunnudagur 5. nóv.:
Allra heilagra messa.
Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá
Málfríðar Jóhannsdóttur og
Ragnars Karlssonar. Munið
skólabílinn.
Guðsþjónusta kl. 14. Kór Kefla-
víkurkirkju syngur. Organisti Örn
Falkner.
Sóknarprestur
Ytri-Njarðvíkurkirkja
Messa og barnastarf kl. 11.00.
Organisti Gróa Hreinsdóttir.
Séra Guðmundur Örn Ragnarsson
|liíH1
Kirkjuvogskirkja
Laugardagur: Fermingarstarf kl.
10. Barnastarf kl. 11.
Sóknarprcstur
Innri-Njarðvíkurkirkja
Barnastarf í safnaðarheimili Innri-
Njarðvikurkirkju kl. 11.00.
Séra Guðmundur Örn Ragnarsson
Grindavíkurkirkja
Allra heilagra messa. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Söngur, verkefni,
framhaldssaga og fleira.
Messa kl. 14. Minnst verður lát-
inna.
Bænasamkomur alla þriðjudaga
kl. 20:30. Æskulýðsstarf 10-12 ára
á miðvikudögum kl. 18.
Sóknarprestur
Hvalsneskirkja
Guðsþjónusta kl. 14. Fermingar-
börn taka þátt í athöfninni. Org-
anisti Oddný Þorsteinsdóttir.
Séra Hjörtur M. Jóhannsson
Utskálakirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Fermingar-
börn taka þátt í athöfninni. Org-
anisti Oddný Þorsteinsdóttir.
Séra Hjörtur M. Jóhannsson
Myllubakkaskóli:
NEMENDUR MEÐ
HLUTAVELTU
Laugardaginú 11. nóvemb-
er munu nemendur 4. og 5.
bekkja Myllubakkaskóla
standa fyrir tombólu í skólan-
um. Allur ágóði af tombólunni
rennur til styrktar Þroskahjálp
á Suðurnesjum.
Næstu daga munu nemend-
ur ganga í hús og safna fyrir
tombóluna. Bæjarbúar hafa
ávallt tekið vel á móti nemend-
um og vonum við að svo verði
einnig í þetta sinn.
Nemendur
Húseigendur athugið!
Getum tekið að okkur allskonar smíða-
vinnu, t.d. uppsetningu innréttinga, park-
etlagnir, viðgerðiro.fl. Uppl. ísímum 14918
(Jón) og 12385 (Siggi).
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA
Styrktarfélag aldraðra
á Suðurnesjum
SÖLUSÝNING
aldraðra verður sunnudaginn 5. nóvember
að Suðurgötu 12-14 í Keflavík og hefst kl.
15. Tekið á móti sölumunum á sama stað
laugardaginn 4. nóvember kl. 13-15. Uppl.
hjá Ingu í síma 11352 eða Soffíu í síma
11709.
Nefndin
BOKBAND
Námskeið í bókbandi verður haldið á veg-
um Styrktarfélagsins ef næg þátttaka fæst.
Leiðbeinandi Jón Sæmundsson. Upplýs-
ingar og innritun í síma 11709 (Soffía).
ORÐSENDING
til húsbyggjenda
frá Hitaveitu Suðumesja
Þeir húsbyggjendur, sem vilja fá hús sín
tengd hitaveitu eða rafveitu í haust og vet-
ur, þurfa að sækja um tengingu sem fyrst,
og eigi síðar en 10. nóvember nk. Hús
verða ekki tengd nema þeim hafi verið lok-
að á fullnægjandi hátt, gólfplata steypt við
inntaksstað og lóð jöfnuð í skurðstæðinu.
Með umsókninni skal fylgja afstöðumynd.
Ef frost er í jörðu þarf húseigandi að greiða
aukakostnað, sem af því leiðir að leggja
heimæðar við slíkar aðstæður.
Hitaveita Suðurnesja