Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.11.1989, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 09.11.1989, Qupperneq 1
\ 10. árgangur_________________________________________________________________________________Fimmtudagur 9. nóvember 1989 5KOðanakönn- un um samein- ingu samþykkt Drífa Sigfúsdóttir, Kella- vík, bar fram eftirfarandi til- lögu á aðalfundi SSS á Iaugar- dag: ,, Aðalfundur Sveilarfélaga á Suðurnesjum haldinn i Sam- komuhúsinu í Sandgerði samþ. að fela stjórn S.S.S. að láta fara fram kynningu á kostum og göllum sameiningar sveitar- félaga á Suðurnesjum (tveggja eða fleiri). Jafnframt verði því beinl til sveitarstjórna á svœð- inu að þcer látifara fram skoð- anakönnun um vilja íbúanna ti/ sameiningar sveitarfélaga. Drífa Sigfúsdóttir. Olafur Gunnlaugsson, Omar Jónsson, Björgvin Lúthersson. Steindór Sigurðsson, Soffta Ólafsdóttir, Jón Gröndal." Höfðu sameiningarmálin áður komið oft upp á yfirborð- ið í umræðum manna er tillag- an var borin upp, aðallega er rætt var um skýrslu stjórnar og fjárhagsmál. Að Iokum var til- lagan samþykkt með þorra at- kvæða gegn þrem. GRETTIR frumsýndur á morgun Leikfélag Keflavíkur frum- svnir annað kvöld, föstudags- kvöld, söngleikinn Gretti í Fél- agsbíói í Keflavík undir leik- stjórn Eddu Þórarinsdóttur. I söngleiknum Gretti taka þátt 24 leikarar og hljóðfæra- leikarar, en í uppsetningu verksins taka hátt á fjórða tug manna þátt. Höfundar verks- ins eru Olafur Haukur Símon- arson, Egill Olafsson og Þór- arinn Eldjárn, sem allir eru landsþekktir fyrir sín störf. Æfingar hafa gengið mjög vel og hópurinn er samstilltur, að sögn Omars Jóhannssonar, leikritaskálds, sem þátt tekur í sýningunni. Uppsetning Leik- félags Keflavíkur á Gretti er skemmtileg og sviðsmynd nýt- ist einnig vel. Nú þegar er uppselt á frum- sýningu verksins, en næstu sýningar eru i Félagsbíói á laugardag og sunnudag kl. 21. Greiðslustöðvun Eldeyjar hf.: Bjarg- ráða- nefnd skipuð Ákveðið hefur verið að skipa nefnd til að finna lausn á fjár- hagsvanda útgerðarfélagsins Eldeyjar h.f. Verða í nefndinni tveir fulltrúar Byggðastofnun- ar, einn fulltrúi frá Atvinnu- tryggingasjóði, frá stærstu lilut- höfum og jafnvel einn frá þing- mönnum. Hefur verið lagt til að full- trúar Keílavíkur og Njarðvík- ur í stjórn Eldeyjar verði einn- ig fulltrúar bæjarfélaganna i nefndinni. Að sögn Guð- mundar Malmquist, fram- kvæmdastjóra Byggðastofn- unar, verður lagt kapp á að flnna fljótlega lausn í málinu, bæði á vegum nefndarinnar og heima fyrir. Auk þessa hefur stjórn Eld- eyjar nú sagt upp öllum starfs- mönnum sínum til að hafa óbundnar hendur til endur- skipulagningar áður en greiðsiustöðvunin rennur út. Þá hefur lögmaður fyrirtækis- ins hafið könnun á því hvort kröfuhafar séu tilbúnir til að samþykkja aðeins 55% af kröfum sínum, svo takast megi að afstýra gjaldþroti. Jóliann Smári Sævarsson leikur löður (Jrettis, Ásmund, í uppfærslu Leikfélags Keflavikur. Ljósm.: hbb. -álman ekki úr sögunni í málflutningi Guðmundar Bjarnasonar, heilbrigðisráð- herra, á aðalfundi SSS um síð- ustu helgi sagði hann að D-álm- an væri ekki úr sögunni þó Grindavíkurhúsið yrði fyrir val- inu sem hugsanlegur næsti áfangi byggingar hjúkrunar- heimilis aldraðra á Suðurnesj- um. All miklar umræður urðu um málaflokk þennan. M.a. kom upp sú hugmynd að nær væri að breyta núverandi hús- næði Heilsugæslustöðvarinnar í Keflavík í einskonar D-álmu. Átti sú hugmynd litlu fylgi að fagna á fundinum. Ekki kom þó til þess að eitt eða neitt væri samþykkt varð- andi mál þetta. Þá var ekki heldur hægt að merkja hvort meirihluti sveitarstjórnar- manna væri meðmæltur því að fara með næsta áfanga til Grindavíkur, þar sem umræð- urnar voru frekar almenns eðl- is. Útboð Vatnsveitunnar: Lægsta tilboöiö 52% af áætlun Átta tilboð bárust í fyrsta út- boð Vatnsveitu Suðurnesja. Voru þau t svonefnda Fagra- garðslögn, sem er samtenging tveggja dreifikerfa í Keflavik. Er tilboðin voru opnuð á mánudagsmorgun kom í ljós að öli nema eitt voru nærri kostnaðaráætlun eða langt undir henni. Tvö lægstu voru frá Ellert Skúlasyni, upp á 6f,B%, og frá Guðmundi Bjarna Kristinssyni, upp á tæp 52%. Verða tilboðin nú skoð- uð nánar af verkfræðingum. Fjárveiting til Ferðamálasamtaka Suðurnesja: 400 þús. kr. „brunnu inni“ Framtíð Ferðamálasam- taka Suðurnesja var meðal umræðuefna á aðalfundi sam- takann á Hótel Kristínu í síð- ustu viku. Kom það aðallega til vegna fjárskorts en frá stofnun samtakanna hafa sveitarfélögin, sem áttu frum- kvæði að stofnun þeirra, ekki lagt fram neitt fjármagn til starfseminnar. Framkvæmda- stjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Guðjón Guð- mundsson, bætti gráu ofan á svart þegar hann upplýsti á að- alfundinum að 400 þúsund króna fjárveiting, sem hefði verið ætluð til starfsemi sam- takanna, hefði verið felld nið- ur. „Stjórn SSS taldisamtökin dauð og því má segja að fjár- veitingin hafi brunnið inni,“ sagði Guðjón. Miklar umræður urðu á að- alfundi samtakanna og allir fundarmenn á einu máli um að framtíð ferðamannaiðnaðar- ins væri björt og því þyrfti að efla starfsemi ferðamálasam- takanna. Ný 7 manna stjórn var kjörin, en hún er skipuð aðilum úr hópi sveitarstjórn- armanna og hagsmunaaðilum.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.