Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.11.1989, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 09.11.1989, Blaðsíða 21
Skóla- og félagsmál Málaskólinn með ferðamálanámskeið Málaskólinn í Borgartúni bryddaði í haust upp á skemmti- legri nýjung í starfsemi sinni er hann bauð upp á Ferðamálanám- skeið. A námskeiðinu er lögð áhersla á að kynna nemendum hin ýmsu störf sem tengjast ferða- mannaþjónustu. Sú mikla aukn- ing sem orðið hefur i ferðamanna- straumi til íslands undanfarin ár hefur leitt til þess að vantað hefur fleira hæftfólktilaðsinnastörfum tengdum ferðamannaþjónustu. Með þetta í huga fékk Málaskól- inn til samstarfs við sig fólk með langa reynslu í störfum við ferða- mannaþjónustu, fólk sem unnið hefur á ferðaskrifstofum við af- greiðslu farþega í flughöfnum og einnig fólk sem hefur stundað nám í erlendum ferðamannaskólum til að skipuleggja námskeið og miðla nemendum af reynslu sinni. Út- koman varð 176 stunda námskeið þar sem kennt er m.a. skipulagn- ing og þróun ferðamála, störf tengd flugi og flugafgreiðslu, störf á ferðaskrifstofu, markaðsfræði, innlendir og erlendir ferðamanna- staðir og tungumál. Nú þegar hafa tvö námskeið hafið göngu sina en hugmyndin er að fara af stað með eitt slíkt námskeið í Keflavík innan tíðar. Inn í námskeiðið er fléttað vett- vangsheimsóknum í ýmis fyrir- tæki í ferðaþjónustu. Síðastliðinn sunnudag var fólk af námskeiðinu í starfskynningu upp í Leifsstöð og var ekki annað að sjá en að áhug- inn skini af hverju andliti. Sindri Sveinsson, afgreiðslustjóri Flug- leiða, sem jafnframt kennirá nám- skeiðinu, var í óðaönn aðlýsa fyrir nemendum þeim atriðum sem þeir þyrftu að þekkja við bókun far- þega. Við stóðumst ekki mátið og spjölluðum við tvo þátttakendur héðan af Suðurnesjum sem hafa sótt námskeiðið alla leið til Reykjavíkur. Málaskólinn hefur ákveðið að vera með eitt ferðamálanámskeið hér i Keflavík þar sem mjög marg- ar fyrirspurnir um námskeið hafa borist til þeirra héðan af Suður- nesjum. Kynningarkvöld fyrir námskeiðið verður haldið í Flug Hótelinu á fimmtudagskvöld klukkan hálf níu. Jóhanna Þórarinsdóttir, gjald- keri í Landsbankanum: Eg hef allt- af haft mikinn áhuga á ferðamálum, allt í kringum ferðamannaþjónustu hcfur ávallt heillaðmig. Þegarégsá auglýsinguna frá Málaskólanum hringdi ég strax og fékk sendan bækling um námskeiðið. Eg lét skrá mig á námskeiðið með hálfunt huga, hélt að e.t.v. fengi ég lítið út úr þessu. En það get ég sagt þér að ég varð svo sannarlega ekki fyrir von- hrigðum, námskciðið er í einu orði sagt frábært. Við fáum mjög góða kcnnslu um hin ýmsu störf i ferða- þjónustu og cinnig er félagsskapur- inn æðislcgur. 21 VÍkurfnRttir Guðmunda Helgadóttir, hús- móðir: Þegar ég sá ferðamálaaug- lýsinguna frá Málaskólanum hringdi ég strax og lét skrá mig. Eg get hiklaust tekið undir með Jó- hönnu. Eg er alveg viss um að nám- skeiðið á eftir aðkoma mér að mikl- um notum ef ég fer að starfa við ferðamannaþjónustu, t.d. á ferða- skrifstofu eða við flugafgreiðslu. Fyrir fólk sem hefur áhuga á þess- um málum mæli ég hiklaust með þessu námskeiði auk þess er þetta svo bráðskcmmtilegt, ég hlakka til hvers einasta tíma. Vetrarstarf Bjarma Eins og flestum er kunnugt er Bjarnii, félag um sorg og sorgarferli á Suðurnesjum. Vetrarstarfið er hafið af fullum krafti. Nýverið kom Álfheiður Steinþórsdóttir, sálfræðingur, á fund hjá félaginu og fjallaði um skilnað og missi. Kynningarfundur í Grindavík Mánudaginn 13. nóv. verð- ur starf félagsins kynnt í safn- aðarheimilinu í Grindavík og hefst fundurinn kl. 20.30. Ný- kjörin stjórn Bjarma kemur á fundinn, kynnir starfið og sit- ur fyrir svörum. Formaður fél- agsins, Ólafur Oddur Jóns- son, flytur erindi sem hann nefnir: í návist dauðans. Grindvíkingar og aðrir Suður- nesjamenn eru velkomnir á fundinn. Samverustundir í Kirkjulundi í Keflavík Nærhópur verður síðan starfandi í Kirkjulundi, efri sal, og kemur hann saman einu sinni í viku, 5 vikur í röð, fyrst miðvikudaginn 15. nóv. k). 20.30. Samverustundunum lýkur 13. des. Leiðbeinendur verðá Hjörtur Magni Jó- hannsson og Ólafur Oddur Jónsson. Ekkjur og sorg Miðvikudaginn 29. nóv- ember kl. 20.30 heldur Ólöf Ólafsdóttir, prestur og kenn- ari, erindi um ekkjur og sorg í Kirkjulundi. Ólöf skrifaði sér- efnisritgerð við guðfræðideild H.í. vorið 1987, þar sem hún fjallaði um sorg og sorgarferli, einkum stöðu ekkjunnar í samfélaginu. Allir sem finna þörf hjá sér eru velkomnir á fundi Bjarma. Stjórnin mun senda frá sér fél- agsbréf, svo starfið fari ekki fram hjá félagsmönnum og þeir geti kynnt það öðrum sem það á brýnt erindi við. Ólafur Oddur Jónsson smá auglýsingar Til leigu Herbergi með snyrtingu og sér inngangi. Upplýsingar í sim- um 12985 og 14484 eftir kl. 19. 2ja herbergja íbúð að Þórustíg 24A í Ytri-Njarðvík. Upplýsingar í síma 12896 eftir kl. 19. 3ja herbergja íbúð á góðum stað í bænum. Mánaðar- greiðslur. Upplýsingar í síma 11859 eftir kl. 19. íbúð til leigu 2ja herbergja. Uppl. í síma 12716 eftir kl. 20. Einbýlishús á rólegum stað í Grindavík. Uppl. í síma 68653. Leiga/sala Einstaklingsíbúð. Upplýsingar í símum 91-678946 eða 91-41466. 2ja herbergja ibúð í Njarðvík. Uppl. í síma 12604. Til sölu Góður klæðaskápur Upplýsingar í síma 11859 eftir kl. 19. Sófasett vel með farið 3+2+1 með pluss- áklæði. Verð ca. 30 þúsund. Úppl. í síma 11863 eftir kl. 18. Rafmagns eldunarhella lítið notuð (2 saman) á kr. 5.000. Einnig Monroe 473m reiknivél á kr. 10 þúsund. Uppl. 1 síma 14605 eftir kl. 18. Borðstofuborð notað, stólar, hansahillur, skápar, loftljós og ýmislegt fleira. Upplýs- ingar 1 síma 12329 eftir hádegi. Hjónarúm vel með farið, gott verð. Uppl. í síma 11520. Isskápur fimm ára, tvískiptur. Verð ca. 25 þúsund kr. Uppl. í síma 13084. Barnavagn Silver Cross, stærri gerð, verð kr. 20.000. Einnig fururúm, 120X200 sm., verð kr. 10.000. Uppl. í síma 68643. Emaliunga kerra á 4.000 kr., barnarúm á 2.000, Hókus Pókus stóll á 1.500, Britax bílastóll á 1.000 og Baby Björn stóll á kr. 1.000. Uppl. i síma 14946. Borðstofusett og sex stólar Vel með farið. Uppl. í síma 15181 eftir kl. 20. Sóluð vetrardckk ónegld, til sölu, stærð 165X13. Selst mjög ódýrt. Upplýsingar í síma 15992. Ódýr bíll en mjög góður, Fiat 127 station. Mjög hentugur vinnubíll. Upplýs- ingar á Víkurfréttum. Notað sjónvarp ekki minna en 22ja tommu óskast, auðvitað ódýrt. Upplýsingar í síma 14717 eða 13707 á kvöldin. Ýmislegt I.O.O.F. 13=17111138'/2 = EI. Borðstofusett óskast Borð og sex stólar óskast á lágu verði til að gera upp. Uppl. í síma 15194 eftir kl. 20. Barnapössun Hef leyfi. Uppl. 1 síma 13317. Alhliða trésmíðavinna Tek að mér alhliða trésmíðavinnu. Uppl. í síma 11543. Valþór Sigþórsson, húsasmiðameistari. Þorv. Ari Arason hrl. veitir alhliða lögfræðiþjónustu að Lyngbraut 10, Garði, sími 27224. Óskast til leigu Rúmgott geymsluherbergi óskast til leigu fyrir búslóð. Upp- lýsingar í síma 11281 (Hulda)eftir kl. 17. Köttur tapaðist Grá bröndóttur köttur tapað- ist frá Greniteig þriðjudaginn 7. nóv. Þeir sem hafa orðið hans varir vinsamlegast hringið í síma 12873. ATVINNA Vélvirki, plötusmiður eða maður vanur dieselvélum óskast. Einnig óskum við eftir verkamönnum. Mikil og örugg framtíðarvinna. Upplýsingar í síma 68699. FISKIMJÖL OG LÝSI HF. Vélsmiðja í Sandgerði til sölu í fullum rekstri. Ca. 230 m2 eigið húsnæði. Upplýsingar í símum 37454 og 37854 á vinnutíma og 37606 á kvöldin (Sól- veig). Verkamannabústaðir/ Kaupleiguíbúðir Óskað er eftir umsóknum um verkamanna- bústaði eða félagslegar kaupleiguíbúðir, sem úthlutað verður í Njarðvík á árinu 1990. Umsækjendur hafi samband við skrifstofu stjórnar Verkamannabústaða Njarðvík, Hafnargötu 80, fyrir 24. nóv. nk. Verkamannabústaðir/ Kaupleiguíbúðir Óskað er eftir umsóknum um verkamanna- bústaði eða félagslegar kaupleiguíbúðir, sem úthlutað verður í Keflavík á árinu 1990. Umsækjendur hafi samband við skrifstofu stjórnar Verkamannabústaða Keflavík, Hafnargötu 80, fyrir 24. nóv. nk.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.