Víkurfréttir - 09.11.1989, Blaðsíða 8
8
mdar
grin ■ gagnryni
^■vangaveltur-
un^sjón:*emil páll.*»
Vikurfréttir
9. nóv. 1989
Orðhvatur
Flautu-
konsert
framtíð-
arinnar
Á undanförnum dögum
hefur fólki orðið tíðrætt um of-
beldishneigð og uppivöðslu-
semi ungdómsins hér á Suður-
nesjum. Keyrði þó um þver-
bak þegar crtingjar þjóðar-
auðsins héldu ótilneyddir
flautukonsert fyrir íbúa elli-
og hjúkrunarheimila í Kella-
vík að næturlagí, auk þess að
bjóða bæjarstjóranum uppá
samskonar músikflutning.
Reyndar varð bæjarstjóri af
tónleikunum því að hann gisli
ekki heima hjá sér umrædda
nótt.
Orðhvatur skilur að vísu vel
biessaðan ungdóminn cnda
ekkert háaldraður sjálfur, en
þetta er ftillmikið af því góða.
Og lýsir þetta tónleikahald
engu nerna vanþroska fremj-
enda og það tniklum van-
þroska í raun að cðliiegt er að
spurt sé livort fólk þetta sem
hér urn ræðir hafi þroska til að
vera handlutfar ökuskírteina.
Hin hliðin á málinu er svo sú
hvort Iögreglan hafi gert rétt í
því að loka ákveðinni götu
btejarins. Skiptarskoðanireru
um þetta en þó verður að segj-
ast eins og er að lögregla á að
hafa það í valdi sinu hvort hún
lokar götum eður ei, og á fólk
ekki að komast upp með að
mótmæla því á nokkurn hátt,
allra síst með því að haida
vöku fyrir gamalmennum og
sjúklingum.
Ríkisfjölmiðlar og aðrir sem
sjálfir kalla sig „frjálsa’* fjöl-
miðla voru einkar áhugasamir
urn Keflavík þessa helgi sem
umrædd aðgerð lögreglu fór
fram, og færi betur að þessi
áhugi þessara stofnana héldist
og yrði viðlíka á öðrum mál-
um.
Er það von manna að ung-
dómurinn láti allt tónleika-
hald sem þetta liggja niðri í
framtíðinni, en þeir sem ekki
ráði við músíkhneigðsína snúi
sér til viðkomandi tónlistar-
skóla.
BRIDS
Nú stendur yfir hjá Bridsfélagi
Suðurnesja minningarmót um
Guðmund lngólfsson. Mótið er
sveitakeppni og taka 9sveitírþútt.
Staðan eftir 4 umferðir af 9 er þessi:
1. Sv. H. Heiðars Agnarssonar
(með vfirsetu), S4 stie.
2. Sveit G.S. 83 stig.
3. Sveit Björns Blöndal
(með yfirsetu), 74 stig.
4. Sveit Þórðar Kristjánss. 71 stig.
Spilað er í Golfskálanum í Leiru
livern mánudag og hcfst spila-
mennskan 1». 20.00. Spilarar cru
vinsainlegast beðmr um að mæta
timanlega. Áhorfendur eru vel-
komnir.
Stjórnin
Ellert, Jónína,
Garðar og María...
Þá er skoðanakönnun
íhaldsins lokið. Þar kom fram
að flestir þátttakenda vildu að
röð efstu manna á framboðs-
lista í komandi sveitarstjórn-
arkosningum yrði þessi: Ellert
Eiríksson, Jónína Guðmunds-
dóttir, Garðar Oddgeirsson og
María Valdimarsdóttir.
... er áfall fyrir suma
Þessi úrslit hljóta að vera
áfall fyrir suma þeirra sem
gáfu út stórar yfirlýsingar um
að áður birtar upplýsingar í
Molum væru einkaskoðanir
Molahöfundar og því algjör-
lega út í bláinn. Þar kom fram
sama röðun í 1. og 2. sæti og
þeir vildu sem þátt tóku i um-
ræddri könnun.
Vignir kvikmynda-
gerðarmaður
Þá er lokið fyrstu Islands-
meistarakeppni í kvikmynda-
gerð áhugamanna. Þareignuð-
ust Suðurnesjamenn fulltrúa í
efstu sætum, Vigni Haralds-
son, sem lenti í þriðja sæti með
leikna kvikmynd, þar sem einn
þekktasti penni Víkurfrétta,
gub, lék hlutverk. En Vignir
hefur að undanförnu tekið
nokkuð af fréttamyndum fyrir
sjónvarpsstöðvarnar. Auk
Vignis komst einn fyrrum Suð-
urnesjamaður, Sigurður .ló-
hannsson, í eitt af 10 efstu sæt-
in. Umræddur Sigurður átti
m.a. heima í foreldrahúsum í
kjallaranum að Vallargötu 161
Keflavík, sonur Öldu og Jó-
hanns Sigurðssonar, en er
löngu fluttur norður yfir heið-
ar.
Sigurbergur
heitir hann
Sú misritun varð í síðustu
Molum að stjórnandi flotta
mötuneytisins í Seðlabankan-
um var sagður heita Sigur-
björn Jónsson. Hér átti að
sjálfsögðu að standa Sigur-
bergur Jónsson. Uni er að
ræða mann, ættaðan úr Kefla-
vík. Leiðréttist þetta hér með.
Höfðu þeir ekki vald?
Á fundi D-álmu samtak-
anna í Grindavík á dögunum
boðaði bæjarstjórinn í Kefia-
vík að hann og kollegi hans í
Grindavík myndu fá fjárhags-
nefnd SSS til að halda fund um
málið strax í vikunni, fyrir að-
alfund SSS. Nú hefur komið í
ljós að sá fundur var ekki hald-
inn. Því hlýtur sú spurning að
koma upp hvort umræddirað-
ilar hafi veið að lofa upp í erm-
ina á sér, máli sem þeir réðu
ekki yfir.?
Keðjurnar slást
sjálfar undir
I hinum nýja björgunarbíl
sem Brunavarnir Suðurnesja
taka senn í notkun er margur
tæknibúnaður sem áður hefur
ekki verið hjá umræddum að-
ila. Þó er það eitt tækniundrið,
sem flestir verða hissa á, þó
það sé alls ekki margbrotið.
Um er að ræða sjálfvirkan
búnað sem setur keðjur undir
afturdekkin, þegar það þarf að
gera. Já, þó einhver kynni að
halda að jóetta væri vitleysa er
það svo sannarlega ekki.
Allir Garðmenn,..
Aðalfundir SSS og Héraðs-
nefndar Suðurnesja voru
haldnir í Sandgerði á laugar-
dag. Mættu flestir sveitar-
stjórnarmanna af svæðinu, en
þó misvel. Aðeins Garðmenn
mættu með alla kjörna full-
trúa, næstir voru heimamenn
og Grindvíkingar en þó vant-
aði einn fulltrúa hjá hvorum
aðila þó varamenn væru kall-
aðir inn. Hin sveitarfélögin
mættu misvel og virtist algengt
að tvo fulltrúa vantaði úr hin-
um sveitarfélögunum, hverju
fyrir sig.
... en þögulir
Grindvíkingar
Grindvíkingum tókst þó að
slá nýtt met á umræddum
fundum og það raunar tvö að
tölu. Hið fyrra var að vera allir
farnir er aðalfundur Héraðs-
nefndarinnar hófst. Hitt var
að við umræður á fundi sam-
bandsins tók enginn kjörinna
sveitarstjórnarmanna til máls
allan fundinn, aðeins þeirra
bæjarstjóri, sem þó er ekki
kjörinn, tók til máls á fundin-
um. Trúlega er þetta algjört
einsdæmi, að sjömanna sendi-
nefnd sé alveg þögul á aðal-
fundi sem þessum. Höfðu
menn á orði að ástæðan væru
hugmyndir um að sjúkir aldr-
aðir færu til Grindavíkur.
Hefðu þær hugmyndir ekki
verið uppi hefði tónn Grind-
víkinga verið meira áberandi.
Helgarpakki til
Keflavíkur
Nú um áramót, þegar reglu-
bundið innanlandsflug hefst
milli Keflavíkur og Akureyr-
ar, gætu hótelin á Suðurnesj-
um tekið upp nýtt tilboð, þ.e.
boðið norðlendingum upp á
helgarpakka til Keflavíkur.
Ný Leifsstöð?
Með tilkomu innanlands-
fiugs frá Keflavík er spurning
hvort ekki verði að byggja nýja
fiugstöð á Kefiavíkurfiugvelli.
Hvað er maðurinn að fara?
hugsar sjálfsagt einhver. En
það er þó staðreynd að hönnun
Leifsstöðvar miðast eingöngu
við utanlandsflug. í þeim und-
antekningartilfellum sem
Flugleiða-Fokker hefur þurft
að lenda í Kefiavík, hafa far-
þegar þurft að hírast úti í vél,
þar til rútur hafa komið á stað-
inn til að aka þeim á brott.
Lítið um
ákvarðanatöku...
Lítið var um stórar ákvarð-
anatökur á nýliðnum aðal-
fundi SSS. Þó var rætt nokkuð
um þá málafiokka sem teknir
voru á dagskrá, en án stefnu-
markandi samþykkta.
... sameiningarmál
og fjármál...
Undir umræðum um slæma
skuldastöðu einstakra sveitar-
félaga urðu nokkrar umræður
um sameiningarmál. Voru það
einkum fulltrúar Kefiavíkur,
Hafna og Vatnsleysustrandar-
hrepps sem töldu að nú væri
kominn tími til að ræða sam-
einingu sveitarfélaga af al-
vöru.
... og villuráfandi
sauðir
Eitt var þó það mál sem
virðist hafa valdið mikilli
vonsku meðal sveitarstjórnar-
manna á Suðurnesjum. Það
voru ummæli Jóns E. Unn-
dórssonar, framkvæmdastjóra
Atvinnuþróunarfélags Suður-
nesja, í Kastljósi sjónvarpsins
nú nýlega, er hann nefndi
sveitarstjórnarmenn á Suður-
nesjum „villuráfandi sauði“.
Þrátt fyrir afsökunarbeiðni í
síðasta tölublaði dugði það
skammt og fékk hann harð-
orðar ákúrur á fundinum og
þess m.a. krafist að hann segði
af sér. Höfðu menn á orði að
ljótt væri að ráðast svona á
mann sem væri ekki á fundin-
um, enda sumir fundarmanna
mjög grófir í hans garð. Þó
töldu menn að ef Jón hefði ver-
ið á fundinum hefði umræðan
orðið enn hvassyrtari.
Feðgar í stjórninni
I nýkjörinni stjórn Fiskifél-
ags Islands sitja feðgar úr
Grindavík, Eiríkur Tómasson
og Tómas Þorvaldsson. Auk
þeirra er Keflvíkingurinn
Kristján Ingibergsson í stjórn-
inni og raunar er fiskimála-
stjóri Suðurnesjamaður þó
hann búi á höfuðborgarsvæð-
inu. Sá heitir Þorsteinn Gísla-
son og er ættaður úr Garðin-
um.
Verður Jón Gröndal
einn áfram?
Bæjarbót, sem gefin er út í
Grindavík, birti í síðasta blaði
hugrenningar um það hverjir
núverandi bæjarfulltrúa hygg-
ist halda áfram og gefa kost á
sér við næstu kosningar. Að-
eins einn bæjarfulltrúi gaf af-
dráttarlaust svar um áfram-
hald. Það var annar af fulltrú-
um krata, Jón Gröndal. Hinir
sex að tölu, höfðu annað hvort
ekki tekið afstöðu til málsins
eða kváðust ekki vonast til að
þeir færu fram. Að vísu var
það Guðmundur Kristjáns-
son, íhaldsmaður, sem tók svo
til orða.
Hvorki Grindavíkur-
heimilið né sameigin-
legur tónlistarskóli
Þrátt fyrir orð fyrir aðal-
fund SSS á dögunum, um að
fundurinn myndi taka afstöðu
til þriggja mála, sem brenna
nú á vörum manna, varekkert
samþykkt um málin á fundin-
um. Raunar eitt málanna ekki
einu sinni rætt á fundinum, en
það var Hafnargötuvanda-
málið í Kefiavik. Hin voru urn
hjúkrunarheimili aldraðra í
Grindavík og einn tónlistar-
skóla á Suðurnesjum.
Vandræðaunglingarnir
verði teknir...
Nú loks virðast margir ungl-
inganna sem stunda Hafnar-
götuna um helgar vera farnir
að sjá, að það geti ekki gengið
öllu lengur að örfáir einstakl-
ingar fái að brjóta rúður og
láta ófriðlega á kostnað hinna.
Sameinist unglingar, bæjar-
yfirvöld og lögregla í því að
taka umrædda unglinga úr
umferð er fátt sem kemur í veg
fyrir það að aðrir og sómakær-
ir unglingar fái að vera þarna í
friði.
... og settir á
upptökuheimili
Virðast fiestir einnig vera á
þeim buxunum, að það eigi að
láta viðkomandi afbrotaungl-
inga greiða fyrir það tjón sem
þeir valda með rúðubrotumog
öðru. Séu viðkomandi undir
lögaldri eigi aðauki að vista þá
um stundarsakir á upptöku-
heimili og hina eldri í fangelsi.
Eina leiðin sé að sýna fulla
hörku ef uppræta á þá fáu
unglinga sem skemma fyrir
hinum.
Með allt niðrum sig
Allmiklar umræður urðu
um skuldir einstakra sveitar-
félaga á aðalfundi SSS á dög-
unum. Kom fram að Keflvík-
ingar skulduðu á 3ja þúsund
krónur á hvern íbúa. Tóku
menn misjafnlega á málinu og
ræddu um að hér væri alvar-
legt mál á ferðinni, en þó töldu
aðrir að eina lausnin væri að
sameina sveitarfélögin. Sig-
urður Bjarnason, Sandgerði,
var manna orðljótastur og
sagði að á sínum tíma, þegar
Miðnesingar hefðu átt erfitt
með að standa í skilum, hefðu
Keflvíkingar sagt að þeir væru
með allt niðrum sig. Gæti hann
ekki betur séð en að Kefivík-
ingar væru þannig nú. Af
þessu tilefni tók Stefán Jón
Bjarnason, sveitarstjóri þeirra
Miðnesinga, til máls og benti
mönnum á að skuld Miðnes-
inga hefði verið um 25 þúsund
á hvern íbúa á sínum tima en
skuld Keflvíkinga væri, eins og
áður segir, aðeins á 3ja þús-
und.
Breiður vegur
upp að kirkju
Jón Karlsson, útgerðarmað-
ur og eigandi Brynjólfs hf. í
Njarðvík, var ekki að draga úr
hlutunum á fundi með sjávar-
útvegsráðherra á Glóðinni.
Jón „akut í allar áttir", á ráð-
herra, bæjaryfirvöld og kol-
lega sína í sjávarútveginum.
Jón sagðist m.a. hafa þurft að
leggja alla vegi að sínu fyrir-
tæki, sjá sér sjálfur einnig fyrir
vatni og leggja skolpleiðslur.
Síðar á fundinum upplýstist að
Njarðvíkurbær hefði keypt af
honunt þriggja metra „strimil"
frá skrifstofubyggingu Brynj-
ólfs upp að kirkju, en vegur-
inn sjálfur er 10 metrar á
breidd. Ráðherra sagðist síðan
eiga erfitt með að skilja af
hverju Jón hefði byggt svona
breiðan veg alla leið upp að
kirkju . . .