Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.11.1989, Síða 10

Víkurfréttir - 09.11.1989, Síða 10
Fegurð Á myndinni er Ell'a Hrund í gallafatnaði og skyrtu frá versluninni Póseidon í Keflavík. „Skemmtiient en oft erfitt - segir Elfa Hrund Guttormsdóttir, Fegurðardrottning Suðurnesja 1989 úú Hér er Elfa Hrund i kjól og jakka frá versluninni Kóda í Keflavík. „Ég mundi ráðleggja öllum stúlkum sem fá tækifæri til að taka þátt í fegurðarsamkeppni að sleppa því ekki. En þær verða áður að gera sér grein fyrir hinni miklu vinnu sem þátttök- unni fylgir og vera tilbúnar að leggja hana á sig, því eins og þetta getur verið skemmtilegt er þetta oft mjög erfitt,“ segir Elfa Hrund Guttormsdóttir, Fegurðardrottning Suðurnesja 1989, 18 ára Njarðvíkurmær og nemi í Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Skipuleggja tímann „Sumum finnst fegurðar- samkeppnir ekki eiga rétt á sér og auðvitað má fólk hafa þá skoðun, en eftir að hafa gengið í gegnum allt sem fylgir þátt- töku í fegurðarsamkeppnum þá tel ég mig hafa þroskast og lært mikið á stuttum tíma. En þátttaka í svona keppnum, bara eins og í Suðurnesja- keppninni, er mjög tímafrek og þvi er nauðsynlegt að skipu- leggja tímann vel. Ef það hefði ekki komið verkfall kennara sl. vor hefði ég ekki boðið í einkunnirnar mínar. Allavega var ég mjög fegin að prófin frestuðust því ég vildi ekki dragast á eftir í náminu." -Hvers konar ,,vinna“ fylgir þátttöku í fegurðarsam- keppni? „Það er mikið í kringum lík- amsrækt, við þurfum t.d. að fara sex sinnum í viku í ero- bikk og svo voru langar gönguæfingar á laugardögum. Ofan á þetta bætist svo snyrt- ing og hárgreiðsla. Við lærum að snyrta okkur og svo þarf í mörgum tilfellum að gera eitt- hvað við hárið. Nú og ekki má gleyma öllum myndatökun- um. Þá fórum við einnig á sér- stakar slökunaræfingar fyrir Islandskeppnina kl. 8 á laug- ardagsmorgnum. Það varsvo- lítið sérstakt, hlustað á jóga- tónlist og gerðar æfingar til að kenna okkur að slaka á.“ Talað og spekúlerað -Nú er talsvert „umstang" í kringum keppnina á Suður- nesjum. „Já, þegar kynningarnar komu í Víkurfréttum var mik- ið talað og spekúlerað, bæði úti í bæ og í skólanum. Stundum langaði mann nú bara að vera heima þegar umtalið var mest en yfir heildina þá var þetta í góðu lagi. Mérfannst mjög vel að Suðurnesjakeppninni stað- ið og þegar við sögðum hinum stúlkunum í Islandskeppninni frá undirbúningnum og sýnd- um þeim umfjöllunina í blað- inu þá ráku þæruppstóraugu. Ekki einu sinni í Fegurðar- samkeppni Reykjavíkur er staðið svo vel að hlutum og hér er gert.“ Akureyrarferðin eftirininnileg -Hvað var eftirminnilegast á árinu? ;,Við fórum allar stelpurnar í Islandskeppninni til Akur- eyrar og vorum með tískusýn- ingu í Sjallanum og gistum eina nótt á hóteli. Ferðin var hugsuð í þeim tilgangi að við gætum kynnst innbyrðis. Það var tekið á móti okkur með blómum, svo fórum við í sjón- varpsviðtal hjá Stöð 2, þannig að það var margt sem þessi ferð skildi eftir sig.“ -Hvernig gekk svo loka- kvöldið á Hótel Islandi? „Það gekk allt eins og í sögu enda gífurlegur undirbúning- ur sem lá að baki. „General- prufan“, kvöldið fyrir krýn- ingarkvöldið vorum við að til kl. 3 um nóttina en þurftum síðan að vera mættar kl. 11 morguninn eftir. Þar sem þessu var sjónvarpað þurfti að æfa dagskrána mjög vel.“ -Nú liggur leiðin oft út í fyr- irsætustörf hjá fegurðar- drottningum. Gætirþú hugsað þér að prófa slíkt? „Það væri eflaust gaman að reyna sig á því sviði en ég er ekki viss um að þetta sé öllum stúlkum gefið.“ -Að lokum, Elfa Hrund, ertu búin að finna næstu Feg- urðardrottningu Suðurnesja? „Nei, ég get ekki sagt það en ég heid að við verðum ekki í neinum vandræðum með það...“ Viðtal: Páll Ketilsson Myndir: Haukur Ingi Hauks- son - Ljósmyndastofan Mynd- arfólk.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.