Víkurfréttir - 09.11.1989, Qupperneq 16
Kynnmg
mtudaoÁnr Flug°'
a. 21.00 O riug
Ferdamálanám
Hefur þú áhuga á störfum
lum ferðaþiónustu ?
!^r! Málaskólinn
Starfsemi ferðaskrifstofa, tungumál, erlendir og inn-
lendir ferðamannastaðir, flugmálasvið, rekstur fyrir-
tækja í ferðamannaþjónustu og heimsóknir í fyrirtæki.
AUar nánari upplýsingar eru veittar í síma
91 - 62 66 55. Hringdu strax því fjöldi þátt-
takenda verður takmarkaður.
Meðal námsgreina í Kennt verður
ferðamálanáminu eru: í Keflavílc
Hefur þú áhuga á að starfa
að spennandi og fjölbreyttum
störfum íferðaþjónustu hér
heima eða erlendis? Vissir
þú að ferðamannaþjónusta
er í örum vexti á Islandi?
w
Ablaðamannafundi sem Ferða-
málaráð hélt nýverið kom fram
að heildarvelta ferðaþjónustu þessa
árs hér á landi yrði á milli 9 og 10
milljarðar króna. Áætlað er að um
135 þúsund ferðamenn heimsæki
Island í ár og miðað við aukninguna
frá 1984 munu um 300 þúsund
ferðamenn sækja ísland heim á ári
hverju um næstu aldamót.
Á blaðamannafundinum kom einnig
fram að nú eru 6 þúsund ársstörf hér
á landi tengd ferðaþjónustu og
reikna mætti með verulegri fjölgun
þeirra á næstu árum.
Með þetta í huga hefur Málaskól-
inn, í samvinnu við Viðskipta-
skólann, nú skipulagt námskeið fyrir
fólk sem hefur áhuga á að takast á
við hin margvíslegu verkefni sem
bjóðast í ferðamannaþjónustu.
Námið er undirbúið af fagmönnum
og sérfræðingum á ýmsum sviðum
ferðamála. Sérstök áhersla er lögð á
lausn raunhæfra verkefna.
ámið tekur alls 176 klst. og
I stendur yfir í 11 vikur.
Kennarar á námskeiðinu hafa
allir unnið við störf tengd
ferðaþjónustu og hafa mikla
reynslu á því sviði.
Víkurfréttir
9. nóv. 1989
Gömlu símstöðinni
í Keflavík:
Breytt í
stafræna
símstöð
Fengist hefur Ijárveiting frá
Pósti og síma til breytinga á
gömlu símstöðinni í Keflavík yf-
ir í stafrxna símstöð. Þar með
er allt símkerfið á Suðurnesjum
orðið stafrænt nema í Grinda-
vík.
Að sögn Björgvins Lúthers-
sonar, símstöðvarstjóra, er
stöðin í Grindavík hálf tölvu-
stýrð og mjög fullkomin.
Varðandi breytinguna á
gömlu símstöðinni í Keflavík
og þar með símanúmerum er
nú byrja á tölustöfunum 10..,
11..., 12... og 13... er gert ráð
fyrir að breytingin komist í
gagnið á vordögum 1990.
Akureyrarflug
um Keflavík
Samgönguráðherra hefur
sem kunnugt er veitt Flugfél-
agi Norðurlands leyfi til áætl-
unarflugs til Akureyrar frá
næstu áramótum. Það sem er
óvenjulegt við flug þetta er að
þó um innanlandsflug sé að
ræða, er það ekki frá Reykja-
vík heldur Keflavík eða öllu
heldur Leifsstöð.
Vegna þessa verður að gera
einhverjar ráðstafanir við
stöðina, því eins og hún er
hönnuð er ekki gert ráð fyrir
að innanlandsflug fari um
hana.
Landhelgisbrot-
ið sent vestur
Mál skipstjórans á bátnum
sem færður var inn til Grinda-
víkur fyrir skömmu vegna
landhelgisbrots, og greint var
frá í síðasta blaði, hefur verið
sent vestur á Snæfellsnes. Er
ástæðan sú að skipstjóri báts-
ins var kominn vestur í Olafs-
vík þegar taka átti málið fyrir.
Umræddur skipstjóri hafði
verið að veiðum með dragnót í
Sandvík og Hraunsvík á
Sveinbjörgu SH 317.
Bugtinni lokað
aftur í viku
Þrátt fyrir að um næstsíð-
ustu helgi hafi vikulöngu
veiðibanni á línuveiði á til-
teknu svæði í Faxaflóa verið
aflétt, var veiðibann sett á ný á
umræddar veiðar í viku, frá og
með síðasta föstudegi. Núver-
andi bannsvæði er innan línu
er dregin er frá Garðskagatá
að Bessastaðakirkju.
Sem fyrr er þetta gert vegna
mikils hluta af smáýsu í afla
bátanna.