Víkurfréttir - 09.11.1989, Page 24
Konur vilja hárgreiðslu
en karlar snjómokstur
Lokið er könnun á högum
aldraðra í þeim sveitarfélögum
á Suðurnesjum er aðild eiga að
DS, þ.e. ölluni nema Grinda-
vík. Kcmur ýmislegt forvitni-
legt framíkönnunþessari.M.a.
vilja flestir aldraðir karlmenn
þjónustu á sviði snjómoksturs
og túnsláttar meðan konurnar
vilja flestar þjónustu á sviði
liárgreiðslu og fótsnyrtingar.
Þá kemur fram að flestir
hinna öldruðu vilja festa kaup
á hlutdeildaríbúðum í sínu
byggðarlagi. Aðallega er það
fólk á aldrinum 67-76 ára,
sem það vill.
Er könnun þessi mjög vel úr
garði gerð en yfirumsjón með
henni höfðu Jórunn Guð-
mundsdóttur, Sandgerði, Jón
Olafur Jónsson, Keflavík, og
Jón A. Jóhannsson læknir.
Var markmið könnunarinnar
að athuga almenna hagi aldr-
aðra á Suðurnesjum með sér-
stöku tilliti til ástandsins í hús-
næðis-, vistunar- og þjónustu-
málum aldraðra.
Nokkurt tjón var unnið um
helgina, er rúður voru brotnar á
fjórum stöðum við Hafnargötu.
Klukkan tvö aðfaranótt laugar-
dagsins var tilkynnt um rúðu-
brot í Útvegsbankanum í Kefla-
vík. Hafði stór rúða á framhlið
bankans verið brotin í gegn og
hengu gluggatjöld úti.
Lögreglan í Keflavík mætti
þegar á staðinn, en þá voru
rúðubrjótar á bak ogburt. Fór
lögregluþjónn þá inn í bygg-
inguna í gegnum hina brotnu
rúðu til að ganga úr skugga um
að enginn væri inni i bankan-
um. Þrátt fyrir að lögreglu-
þjónninn væri búinn að fara
um alla afgreiðslu bankans,
fór þjófavarnakerfið ekki i
gang fyrr en vel var liðið á
þriðju mínútu.
Ef um innbrotsþjófa hefði
verið að ræða, gætu þeir hinir
sömu hafa valdið miklum
skemmdum í afgreiðslunni,
áður en varnarkerfið léti lög-
reglu vita hvað væri á ferðinni.
Lögregluþjónn fer inn í byggingu Útvegsbankans í gegnum brotna
rúðuna. Var hann inni í bankanum á þriðju mínútu áður en þjófa-
varnakerfið fór í gang. Ljósm.: hbb
„Siðferðilega ókleift
Rúðubrot í Útvegsbankanum:
Þjöfavarna-
kerfið fór
seint í gang
- að þvinga höfnunum svona á okkur“
Fulltrúar Keflavíkur- og
Njarðvíkurbæja hafa átt við-
ræðufund með fulltrúum sam-
göngumálaráðuneytis og fjár-
málaráðuneytis um yfirtöku
Landshafnarinnar. Að sögn
Odds Einarssonar, bæjar-
stjóra í Njarðvík, urðu menn
fyrir vonbrigðum með það hve
harðir ráðuneytismenn væru
með að afhenda hafnirnar í þvi
ástandi sem þær eru, án þess
að lagfæring færi fram á þeim
áður.
„Þó met ég það svo að við
eigum enn möguleika í málinu
enda siðferðislega ókleift að
þvinga höfnunum svona á
okkur,“ sagði Oddur um mál-
ið í samtali við blaðið.
Kynnum sunnudaginn 12. nóv. innihurðir og parket ásamt öðrum fram-
leiðsluvörum okkar frá kl. 14 til 18. Heitt á könnunni.
TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR
IÐAVÖLLUM 7 - KEFLAVlK - SÍMI 14700
Þrennt á
sjúkrahús
Þrennt var flutt á Sjúkra-
húsið í Keflavík á þriðjudag
eftir árekstur bifreiða á
Reykjanesbraut rétt austan við
gatnamótin niður í Voga.
Meiðsli munu þó hal'a verið
minni háttar.
Árekstúrinn varð með þeim
hætti að bifreið var ekið fram
úr annarri erí rakst þá á bifreið
sem kom úr gagnstæðri átt.
Tjón mun þó ekki hafa orðið
verulegt á bifreiðunum.
Grindavíkurvegur:
Hámarks-
hraðinn
lækkaður
á kafla
Gerð hefur verið breyting á
hámarkshraða um Grindavík-
urveg. Hefur hraðinn verið
lækkaður úr 90 km hraða i 70
krn við spennustöðina ofan við
Grindavík ogsíðan taka 50km
mörkin við fyrr en áður, er ek-
ið er til Grindavíkur.
Að öðru leyti er heimilt að
aka á 90 km hraða um veginn.
Ættu vegfarendur að hafa
þetta hugafast næst þegar ekið
er um þennan veg.
Dúfukofabruni
aðalfréttin
Fremur rólegt var hjá
Brunavörnum Suðurnesja um
síðustu helgi, ef frá eru talin
útköll sjúkrabifreiða vegna
sjúkdóms og æfinga á nýja
björgunarbílnum.
Ekkert slysaútkall barst og
aðeins eitt brunaútkall ef svo
má kalla. Það útkall, sem varð
því fréttnæmt eftir helgina, var
vegna bruna í dúfnakofa í
Njarðvík.
MUNDI
Þurfa þeir Ieikhúsgestir sem
lenda á fremstu bekkjunum,
ekki að bafa klemmu
á neftnu?