Víkurfréttir - 17.01.1991, Blaðsíða 6
6
A beininu
Víkurfréttir
. janúar1991
'o'
Námskeið í að-
hlynningu aldraðra
og sjúkra haldið á
Suðurnesjum
Fyrirhugað er að halda 2ja daga námskeið
í aðhlynningu aldraðra og sjúkra
á vegum Rauða Kross-deildarinnar á
Suðumesjum.
Námskeiðið er ætlað fólki sem tekur þátt í
og veitir öldruðum sjúkum aðhlynningu,
s.s. starfsfólki á öldrunarheimilum, heima-
hjúkrun og aðstandendum aldraðra sjúkra í
heimahúsum.
Ef næg þátttaka fæst verður námskeiðið
haldið 2. og 3. febrúar n.k.
Nánari upplýsingar gefa frá kl.17 til 19:
Gísli Viðar Harðarson, sími 11195,
Þórunn Benediktsdóttir, sími 11927,
Baldur Baldursson, sími 13627,
Fræðslunefnd Rauða kross deildar á
Suðurnesjum.
KONUR - SNYRTING
Vantar konur í pökkun og snyrtingu strax!
Brynjólfur hf. Njarðvík Sími 14666.
„Þetta er engin klíka"
Miklar umræður hafa verið
manna á milli um framtíð
skemmtistaðarins Glaumbergs
og hús aldraða við Vesturbraut
í Keflavík. Er fullyrt m.a. að
hópur manna vilji aldraða út úr
húsinu, en fá það til útleigu og
reksturs fyrir aðeins 20 millj-
ónir króna. Sé þetta hópur í
kringum Ragnar Örn.
Vegna þessa þótti blaðinu
vert að hefja þátt þennan með
að taka Sigurjón R. Vikarsson
sem er einn af forvígismönnum
fyrir hópi einstaklinga sem á-
huga hefur sýnt fyrir kaupum
á húsinu, á beinið. En húsið
hefur verið lokað frá ára-
mótum, er leigusamningurinn
rann út.
Fyrsta spurningin sem lögð
var fyrir Sigurjón var þessi:
-Hverjir standa aö hóp þess-
um?
„Hópur manna sem hefur á-
huga á að starfrækja þennan
stað“.
-Hvers vegna viljið þið kaupa
reksturinn og húsið?
„Þessi hópur vill ekki að
staðnum verði lokað, þar sem við
teljum það nauðsynlegt að hér í
bæ sé gott danshús.
Þá tengist hópnum menn sem
eru í ferðaþjónustu og aðrir er á-
huga hafa á ferðaþjónustu og að
þeirra mati, verður þessi staður að
vera til, þannig að hér sé hægt að
bjóða til stórra ráðstefna o.fl.“
-Verður Ragnar Örn með í
„pakkanum“?
„Það hef ég ekki hugmynd um.
Þeir sem borga hlutafé, verða
með.
Þetta er enginn klíka. Það er
ekki farið í manngreiningaálit".
-Er hugmynd ykkar að fá
húsið á silfurbakka?
„Það væri ekkert verra. En
engu að síður þá erum við ekki að
biðja neinn að gefa okkur neitt.
Við viljum borga sanngjamt
markaðsverð fyrir húsið og ef
einhverjir aðrir vilja borga meira,
þá er þeim það guð velkomið.
Við munum ekki leggja stein í
götu þeirra. Þetta 20 milljóna
króna tilboð var sett fram til að
opna umræðugrundvöll og síðan
við gerðum það var skipuð nefnd
til að meta húsið og hún fékk
sínar tölur, en þær sem slíkar eru
ekki meiri sannleikur, en okkar.
Að verðmeta svona hluti er
alltaf erfitt, en sannleikurinn er
bara sá að enginn hlutur er meira
virði en einhver vill borga fyrir
hann“.
-Hversvegna viljið þið úthýsa
þeim öldruðu úr húsinu?
Sigurjón R. Vikarsson.
„Við viljum ekki úthýsa nein-
um úr þessu húsi og buðum við
bænum m.a. húsið til leigu fyrir
aldraða og unglinga sem ekki
hafa átt í mörg hús að vemda hér
í bæ á undanfömum ámm.
Svo má segja að það sé erfitt
að úthýsa þeim sem aldrei hafa
fengið að nota húsið. Hverjum
það er að kenna að t.d. aldraðir
hafa ekki fengið not af húsinu
veit ég ekki. Húsið hefur verið í
eigu bæjarins og þeir hafa ráð-
stafað því eins og þeim hefur
hentað".
-Hvaða hugmyndir eru þið
með um reksturinn?
„Okkar hugmynd er að reka
þama öflugan samkomustað, fyr-
ir alla Suðumesjamenn. jafnt
unga sem aldna og að reyna að
nýta húsið til ráðstefnuhalds og
með því skjóta styrkari stoðum
undir uppbyggingu ferðaþjónustu
á Suðumesjum.
Þetta er ekkert fjögra ára flog,
sem menn fá fyrir kosningar, um
uppbyggingu atvinnulífs. Þetta er
hugsað til að skjóta sterkari rótum
fyrir atvinnulífið hér á svæðinu".
-Hvenœr gerist eitthvað ímál-
inu og á liverju strandar?
„Það hef ég ekki hugmynd um.
Einfaldlega vegna þess að þetta
mál er flóknara en í upphafi var
haldið.
Á hverju strandar? Það em
margir þættir í þessu máli sem em
erfiðir úrlausnar. Þessi umræða
hefur staðið nú yfir í tvo mánuði
og tíminn hefur ekki unnið með
okkur. Málið er flókið og ill við-
ráðanlegt. Þvf lengri tími sem
líður að lausn fáist, þá minnkar á-
huginn í okkar hópi.
Eg vil taka það fram í lokið að
við sem í þessum hópi em, emm
ekki að reyna að hafa fé af Fram-
kvæmdarsjóði aldraða. Með því
að kaupa húsið á einhverju sann-
gjömu verði, emm við að skapa
framkvæmdarsjóðnum mögu-
leika á að sinna málefnum aldr-
aðra betur, en þeir hafa getað gert
á undanfömum ámm.
Aldraðir í Keflavík eiga allt
það besta skilið og ef af þessum
kaupum verður, þá verða þeir ör-
ugglega betur settir með sín mál,
heldur en þeir hafa verið með eign
sína á Vesturbrautinni.
Telji einhverjir sig vilja borga
hærra verð en þessi hópur, þá eiga
þeir að gefa sig fram hið fyrsta,
því ekki viljum við hlunnfara
neinn eða standa í vegi fyrir
neinum, þessi hópur vill númer
eitt, að húsið verði áfram í starf-
semi og vonandi gerist það sem
fyrst“ sagði Sigurjón R. Vik-
arsson að lokum.
UTSALA
Meiriháttar
útsala á
fatnaöi og
náttfatnaði
í tilefni 6 ára af-
mæli versl-
unarinnar bjóöum
viö 40% afslátt af
BARBARA
undirfatnaöi
HAFNARGOTU 24 - Sími 13255
Skrifstofustjóri Víkurfrétta, Stefanía Jónsdóttir, dregur nöfn
verðlaunahafanna úr réttum lausnum í verð-
launamyndagátunni 1990. Ljósm.: hbb.
Verölaunamyndagátan:
Á annað hundrað lausnir bárust
Vel á annað hundrað lausnir
bárust við verðlaunamyndagátu
þeirri sem birtist hér í blaðinu
fyrir jól. Virðist lausnin hafa
vafist fyrir mörgum, því mikið
var um röng svör. Hið rétta svar
var: Atvinnumál Suðumesja
hafa verið ofarlega á baugi í
umræðu meðal ntanna og
kvenna á liðnu ári.
Dregið hefur verið úr réttum
lausnum og komu bóka-
verðlaunin sem Bókabúð
Keflavíkúr hefur gefið þannig.
1. verðlaun: Öldin okkar, kom
í hlut Gerðar Eyrúnar Sig-
urðardóttur, Fífumóa 5c, Njarð-
vík. 2. verðlaun: Ævisaga
Kristjáns Jóhannssonar kom í
hlut Magneu Einarsdóttur,
Heiðarbrún, Kelduhverfi og 3.
verðlaun: Margir vildu hann
feigan, eftir Kristján Pétursson
kom í hlut Ingibers Ólafssonar,
Hátúni 31, Keflavík.
Eru hlutaðeigandi aðilar
beðnir um að hafa samband við
Emil Pál hjá Víkurfréttum
vegna viðtöku á verðlaununum.