Víkurfréttir - 17.01.1991, Blaðsíða 13
Félagsmál
Víkurfréttir
17. jan. 1991
Kaldalóns-tónleikar
Karlakórs Keflavíkur og Kvennakórs Suöurnesja
Það var stolt ..Keflavíkur-
stúlka" sem gekk út úr Lang-
holtskirkju eftir tónleikana I2.
jan. s.I.
Tónleikarnir voru frábærir á
allan hátt. kórarnir samstilltir og
hljómandi. Það er yndislegt hvað
stjórnandinn Sigvaldi Snær
Kaldalóns nær fegurð og mýkt
laga Kaldalóns og falleg var út-
færsla hans á láginu „Svanurinn
minn syngur", einnig voru lög
stjómandans og trænku hans
Selmu Kaldalóns falleg og vel
flutt.
„Sjaldan fellur eplið langt frá
eikinni". Anna Margrét Kalda-
lóns, dóttir stjómandans söng
mjög vel með sinni einkennilegu
rödd.
Steinn Erlingsson, Guðmund-
ur Ólafsson og Sverrir Guð-
mundsson sungu mjög vel en
María Guðmundsdóttir hitti beint
í hjartastað, hún söng yndislega.
Einar Örn Einarsson söng „Al-
faðir ræður". mjög vel og var
túlkun hans frábær og „Betli-
kerlingin" sem hann söng í for-
föllum Hlífar Káradóttur, var
mjög vel sungin. Það var
skemmtilega tilfundið hjá söng-
stjóranum að syngja „Sveinka
káta" meðan blandaði kórinn var
að stilla sér upp, lag sem alltaf er
gaman að heyra.
Blandaði kórinn var mjög góð-
ur og reis söngur hans hæst í
„Dansinum í Hruna" frábær....
I einu orði sagt, þessir tónleikar
voru yndislegir og gaman að
halda á lofti hinum fallegu lögum
Kaldalóns, sem alltaf ylja um
hjartarætur, þegar á er hlýtt. Væri
óskandi að þessir kórar undir
stjórn Sigvalda Snæs héldu áfram
að syngja svo fallega fyrir Kefl-
vikinga og Suðumesjamenn, já
landsmenn alla.
Bestu þakkir fyrir ógleyman-
lega og yndislega tónleika.
Jóhanna Kristins
Sálarrannsóknar-
félag Suöurnesja
auglýsir
Almennur skyggnilýsingafundur meö ís-
lenska miölinum Þórhalli Guömundssyni
veröur í Félagsbíói þriöjudaginn 22. jan-
úar kl. 20.30. Húsiö opnar kl.19.30.
Stjórnin
Afgreiöslumaður á
bensínafgreiðslu
Afgreiðslumaður á bensínafgreiöslu ósk-
asf. Umsóknareyðublöð á sfaönum.
Bensínsalan BÁSINN
Vatnsnesvegi 16 Keflavík
OPIÐ HUS
Björgunarhraöbáturinn Sæbjörg:
Breyting á eignaraðild
Breytingar hafa orðið á eign-
araðild Björgunarsveitanna
Ægis og Sigurvonar í björg-
unarhraðbátnum Sæbjörgu.
Hefur björgunarsveitin Ægir
selt Sigurvonamtönnum sinn
hlut í bátnum.
Björgunarsveitimar keyptu
bátinn 1985 og var eignaraðild
hvorrar sveitar 50%.
Stangveiöifélag Keflavíkur verður meö
OPIÐ HÚS í Iðnsveinafélagshúsinu viö
Tjarnargötu á morgun, föstudag, 18.
janúar kl.20.30.
Gestir fundarins veröa þeir Jón Skelfir og
Þröstur Elliðason.
Nefndin
Ósk Benediktsdóttir verður 20 ára
22. janúar. Vonumst eftir partýi.
Vinnufélagar
Kyntröll Suðumesja 1990, Eirík-
ur H. Eiríksson, verður þrítugur
laugardaginn 19. jan. Hann tekur
á móti gestum á heimili sínu.
Hringbraut 68. Keflavík.
Tvaer úr klúbb 8-4
Útsala í Dropanum