Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.01.1991, Side 15

Víkurfréttir - 17.01.1991, Side 15
Víkurfréttir janúar1991 Stein - grímur Nýverið barst mér í hendur 3. tölublað Suðumes, út- gefandi framsóknarfélögin á Suðumesjum. I þessu blaði er þriggja sfðna viðtal við Steingrím Hermannsson, þar sem koma fram hans viðhorf til ýmissa mála. Vegna þess að Steingrímur gegnir talsvert mikilverðu hlutverki í íslenskum stjóm- málum fram að næstu kosn- ingum, og líka vegna þess að hann er einn af fulltrúum okkar Suðumesjamanna á Al- þingi, er rétt að almenningur kynni sér hvað hann hefur til málanna að leggja. Fram kemur í viðtalinu að Steingrímur er sérlega á- nægður með árangur, rík- isstjómar sinnar, í efna- hagsmálum. Eg spyr hvaða efna- hagsmálum? Er hann þá að tala um rík- isbúskapinn, þar sem ekki stendur steinn yfir steini, trú- lega fyrir mikla stjómvisku hans sjálfs og sam- starfsmanna? Getur verið að þessi efna- hagsmál sem Steingrímur er svo ánægður með tengist á einhvem hátt síðasta fjár- lagafrumvarpi? í D.V. þann 20. des. 1990 á bls. 31 segir m.a. að "þensluhalli" umrækkra fjár- laga sé ca. 16 milljarðar, og stóraukinn eyðsla ráðu- neytanna valdi þar mestu. Ekki furða þó Steingrímur sé hreykinn. Eða er Steingrímur kannski (lfka) að tala um efnahagsmál heimilanna í landinu, þar sem sívaxandi „...Býr þessi Stein- grímur örugglega hérlendis? Og ef svo er, hefur hann þó aldrei komiö út úr húsi, eöa bíl, eöa upp úr vöölunum........ skattheimta og kjaraskerðing veldur því að tvær mann- eskjur vinna tæplega lengur fyrir einni fjölskyldu? Steingrímur lýsir í við- talinu líka ánægju sinni með yfirstjóm fiskveiða. Sú yfirstjóm er eingöngu í hondum flokksbróður Stein- gríms, Halldórs Ásgrímssonar og ber meiri keim af einræði en lýðræði. Lög um stjóm fiskveiða sem lamin voru í gegnum Al- þingi á síðasta vori, eru líka merkilegt plagg. um þau hef- ur verið sagt á Alþingi að þau séu bæði stjómarskrár og mannréttindabrot, og því er ég sammála. Sannarlega ástæða fyrir Steingrím og fleiri að gleðjast yfir því afreki. Áðumefnt viðtal í 3. tölu- blaði Suðumess 1990 vakti mér sífellt meiri furðu eftir því sem lengra leið á lesturinn og að honum loknum gat ég ekki á mér setið. Býr þessi Steingrímur ör- ugglega hérlendis? Og ef svo er, hefur hann þá aldrei komið út úr húsi, eða bfl, eða upp úr vöðlunum. Getur verið að það sambands- og skilningsleysi á íslensku þjóðarlífi sem kemur fram í viðtalinu sé eðli- legtfyrir mann í hans stöðu? Getur verið að sú sjálfumgleði sem kemur fram í viðtalinu sé vísbending um, að við Suð- umesjamenn og aðrir lands- menn, ætlum, að gefa Stein- grími frí frá illa launuðum þingstörfum um ókomin ár. Sandgerði 3. janúar 1991. Eiríkur Ragnarsson. VÍKURFRÉTTIR SÍMARNIR ERU 14717 OG 15717 Þorra blót Þorrablót Kvenfélagsins Njarðvík verður haldið laugardaginn 26. janúar n.k. og hefst kl. 19. Aðgöngumiðar verða seldir fyrir félags- konur milli kl. 16.00 og 17.00 mið- vikudaginn 23. janúar og fyrir almenning kl. 17.00-18.00 sama dag. Nefndin. HJARTANS ÞAKKIR sendum við öllum þeim er sýndu okkur hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar ástkærs föðurs, sonar og bróður SIGURÐAR J. BERGMANNS Sérstakar þakkir til Landhelgisgæslu íslands og starfsmanna hennar. Guð blessi ykkur öll. Helga Sigurðardóttir Sigríður Gísladóttir Þorsteinn Bergmann Valgerður Ingimundardóttir Magnús Bergmann Bjarni Bergmann Gunnar Bergmann Anna Gunnarsdóttir HJARTANS ÞAKKIR sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför konu minnar, dóttur, systur og frænku, Agnesar Ingvarsdóttur, Sólvallagötu 46, D, Jan Rooyackers Ingvar Guðfinnsson Steinunn Ingvarsdóttir Sverrir Halldórsson Gunnar Ingvarsson Jófríður Guðjónsdóttir Hólmfríður Ingvarsdóttir Stefán Björnsson Angela G. Guðjónsdóttir Einar Grétar Björnsson Fjóla Sigurðardóttir Hlutavelta Þessar stúlkur heita Harpa Gunnarsdóttir og Sæunn Sæ- mundsdóttir og þær héldu hlutaveltu á dögunum til styrktar Þroskahjálp á Suðurnesjum. Söfnunarféð var 830 krónur, sem þær hafa þegar afhent. Ljósm.:hbb F élagsmálastofnun Keflavflkurbæjar Orðsending til eldri borgara í Keflavík Keflavíkurbær hefur tekið við starfsemi Styrktarfélags aldraða Suðurgötu 12-14. Starfsemin hefst mánudaginn 21. janúar kl. 14.00. Spiluð verður félagsvist og föndrað. Verið velkomin.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.