Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.01.1991, Qupperneq 19

Víkurfréttir - 17.01.1991, Qupperneq 19
íþróttir Úrvalsdeildin: UMFG tryggði sigur á lokasekúndunni Karfa Guðmundar Braga- sonar tryggði Grindvíkingum sigur á lokasekúndunni í viður- eign þeirra við Valsmenn á þriðjudagskvöld í Grindavík. ieiknum lauk með 72 stigum heimamanna gegn 71 Vals- manna. Grindvikingar byrjuðu vel og áttu undirtökin í fyrri hálfleik og komu Valsmönnum oft í opna skjöldu. Heimamenn slökuðu hins vegar á í síðari hálfleik og sýndu Völsurum ekki víg- tennurnar. Það færðu gestirnir sér í nyt og komust yfir, en leikurinn var í jámum allt þar til bjallan hringdi, en þá hitti sig- urskot Guðmundar Bragasonar körfuna. Atkvæðamestur í liði UMFG var Dan Krebbs sem skoraði 18 stig og næstur kom Guðmundur með 17 stig. 50% vítanýting varö UMFN aö falli SLEN yfir mannskapnum Njarðvíkingar máttu þola tap gegn Haukum ( íþróttahúsinu í Hafnarfirði sl. sunnudag. Haukar sigruðu með 92 stigum gegn 90. Staðan í leikhlé var 45-39 Haukum ívil. Eftir leikhlé hresstust Njarð- vfkingar og náðu forystu. Ron- day Robinson fór þá á kostum í liði UMFN og réði hinn hárlausi Damon Vance ekkert við hann. „Það var eins og liðið hefði vanmetið Haukana og ýmsir lykilmenn voru hreinlega ekki með á nótunum. Vítanýtingin var ekki nema 50% og það gengur bara alls ekki upp. Við munum hins vegar koma sterkir til leiks gegn KR-ingum enda unt toppslag að ræða og stigin mikilvæg" sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari UMFN. Bestur í liði UMFN var Ronday Robinson sem virðist vera nán- ast óstöðvandi bæði í sókn og vöm. Aðrir í liði UMFN léku talsvert undir getu þó svo að Teitur hafi einstaka sinnum gert góða hluti í síðari hálfleik. Rondey var stigahæstur Njarðvíkingar með 38 stig og Teitur næstur með 15 stig. Jón Amar hjá Haukum skoraði 26 stig og Damon Vance 21. Úrvalsdeildin í körfuknattleik: „Góð vörn bar árangur“ sagöi Jón Kr. Gíslason eftir sigur ÍBK á Grindvíkingum 85-82 í Grindavík ég óhress hve fá fráköst við tökum og það verðum við svo sannarlega að bæta ef við ætlum okkur sigttr á Tindastóli" sagði Jón Kr. Bestur í liði JBK var Falur Harðarson. sem átti stórleik. Einnig var Albert Oskarsson nijög góðan leik, tók mörg frá- köst og var di júgur við að skora. Þá stóð Júlíus Friðriksson sig vel í vörninni þann stutta ttma sem hann var inná. Hjá Grind- víkingum var Jóhannes Krist- bjömsson bestur. Hann hitti vel og átti góðar sendingar. Guð- mundur Bragason var einnig góður ásamt Rúnari Ámasyni sem tók mikið af fráköstuni. Stigahæstir: UMFG: Jóhannes 21, C.uð- mundur 19 og Krebbs 18. ÍBK: Falur 27, Albert 15 og Lytle 14. „Við lékum góða vöm í síðari hálfleik og það bar árangur" sagði Jón Kr. Gíslaon, þjálfari ÍBK eftir sigur á Grind- víkingum í íþróttahúsinu f Grindavík sl. fimmtudagskvöld. Lokatölur urðu 82-85 eftir að heimamenn höfðu haft yfir í leikhlé, 50-46. Leikurinn var frá upphafi æsispennandi og jafn þó UMFG hafi haft frumkvæðið framan af. Þttð var svo Falur Harðarson sem hristi af sér slenið og sýndi hversu megnugur hann er. Falur skoraði grimmt og barðist ;tf hörku í vöminni. Jóhannes Kristbjörnsson var hins vegar allt í öllu hjá Grindvíkingum og var leiðinlegt fyrir hann að ntissa boltann í hendumar á Kefivíkingum á lokamínút- unum þegar Ieikurinn var í járnum. „Þegar vamarleikurinn er góður verður sóknarleikurinn alltafmarkvissari. Hins vegarer Falur Harðarson verður ásamt Thomas Lytle og öðrunt Keflvíkingum í baráttunni í kvöld gegn Tindastóli. í KVÖLD Tindarnir gegn ÍBK í kvöld taka Keflvíkingar á móti liði Tindastóls í íþróttahúsi Keflavíkur og hefst leikurinn kl.20. Keflvíkingar eiga harma að hefna eftir tap í leik liðanna í Keflavík síðast. Njarðvíkingar leika gegn KR annað kvöld í Njarðvík og hefst sá leikur einnig kl.20. Þá eiga IBK stúlkurnar leik gegn Haukum og hefst hann kl. 19. ________19 Víkurfréttir 17 janúar 1991 Sandgerð- ingar safna áheitum Knattspyrnuiið Sand- gerðinga keppir unt helgina í Islandsmótinu innanhúss í 4.deild. Leikmenn liðsins ætla að safna áheitum fyrir ntótið. Einnig mun einn leikmanna liðsins, Sigurþór taka við áheit- um í sínta 37621. Sandgerðingar hafa ráðið þjálfara fyrir næsta tímabil og er það enginn annar en Guðjón Ólafsson, en hann þjált'aði Grindavík þegar liðið komst upp í 2.deild og hefur einnig þjálfað áður hjá Sandgerði og víðar. ÍBK „tapaðð“ 250 þús Keflvíkingar „töpuðu" 250 þúsund krónum er þeim tóksi ekki að verða í einum af þremur efstu sætunum í íslandsmótinu í knattspyrnu innanhúss um sí- ðustu helgi. Leikmenn liðsins höfðu safnað áheitum fyrir 250 þúsund krónum. Ef þeir hefðu lent í einum af efstu þremur sætunum fengu þeir allnn pott- inn en helminginn af honum ef þeir kæmust í 8 liða úrslit. Það tókst þeiin ekki. Þeir voru á þröskuldinunt við það að kom- ast í 8 liða úrslit. Hitt Sttður- nesjaliðið í l.deildinni í inn- anhússboltanum, Víðir, féll í 2.deild. KEILA Helgarmót Keilufélags Suð- umesja halda áfram. Þann 12. janúar var keppt síðast og í B- flokki var Þorleifur Már Frið- jónsson efstur með 518 stig. Næstur kom Sigurvin Hreins- son með 517 og Þórir Eiríksson með 488 stig. Hæsta leik átti Elmar Ingibergsson, 192. I C-flokki var Þorgrímur Hálfdánarson efstur með 563, þá Jón Ólafur Ámason með 473 og Hafþór Óskarsson með 425. Þorgrímur Hálfdánarson átti hæsta leik, 210. Gunnar Hafsteins var efstur í D-flokki með 507, þá kom Ólafur Sólmundarson með 503 og Haraldur Helgason með 431. Hann átti einnig hæsta leik 185. í tvíkeilu voru Þorgrímur Hálfdánarson (506) og Gunn- laugur Hafsteinsson (528) efstir með samtals 1034. I öðru sæti urðu Sigurvin Hreinsson (509) og Danelíus Hansson (439) með samtals 948. Hæsta leik átti Gunnlaugur Hafsteinsson, 219. ÍÞRÓTTIR - í huerri viku vlfommr Kári Stefán Kári skorar á Stebba „ieftí“ Kári Gunnlaugsson sigr- aði andstæðing sinn númer tvö, Guðjón Guðjónsson í síðustu leikviku með 8 rétt- um gegn 5. Kári er nú að tippa í þriðja sinn og hefur skorað á svila sinn, Stefán Jónsson, prentara. Stefán á þann heiður að hafa verið fyrsti tipparinn í Víkur- fréttum þegar við byrjuðum á getraunaleiknum fyrir 6 árum síðan. Hann er mikill Man. Utd. aðdáandi og tippar aldrei á Liverpool. „Eg hef haldið með Júnætit frá alda öðli. Liðið er á siglingu núna og mun enda mjög ofarlega í vor“ sagði Stefán. Liverpool, lið Kára á leik við Wimbledon á heimavelli. „Púlaramir verða heppnir og ná jafntefli“ sagði Stefán en Kári segist viss um öruggan heimasigur. Þessi lið áttust við í úrslitaleik ensku bikar- keppninnar fyrir tveimur árum síðan, að viðstöddum blaðamanni Vfkurfrétta og nýkrýndum Getraunaspek- ingi þá, Gísla Heiðarssyni úr Garði. Þá sigraði „litla“ liðið, Wimbledon mjög óvænt í einum slappasta úrslitaleik áratugarins. Man. Utd. á leik við Q.P.R. Stefán spáir sínu liði sigri en Kári hefur ekki trú á Júnætit og setur jafn- tefli. Þetta er greinilega mikið taugastríð! En hér koma spár fé- laganna og svilanna Kára og Stebba „leftí“: K S Arsenal-Everlon 1 X Coventry-Aston Villa X X C. Palace-Norwich 1 1 Leeds-Luton 1 1 Liverpool-Wimbledon 1 X Man. City-Sheff Utd. 1 1 Q.P.R.-Man. Utd. X 2 Southampton-N. Forest 1 2 Sunderland-Chelsea 2 1 Br. Rovers-Wolves X X N. County-Middlesbro 2 X Oldham-Bamsley 1 1

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.