Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 4
VIÐTAL
Sigurborg Selma Karlsdóttir
sigurborg@mbl.is
The Coldest Crossing er göngu-
hópur þriggja Breta yngri en 21
árs. Þeir Charlie Smith, Stefan
Rijnbeek og Archie Wilson, hafa
ákveðið að eyða jólunum á Íslandi í
tjöldum og ferðast á skíðum yfir
landið á 18 dögum. Á Þorláks-
messu mun bandarískt kvikmynda-
teymi, camp 4 collective, slást í för
með piltunum og verður ferðin
mynduð með kvikmyndavélum og
drónum.
„Við höfum lent í nokkrum
hremmingum á leiðinni,“ útskýrir
hinn 19 ára gamli leiðangursstjóri
Charlie Smith og vísar til þess að í
byrjun ferðarinnar veiktist einn
göngugarpurinn í lungum og varð
hann þar af leiðandi að snúa heim.
Annan leiðangursfélagann, Stefan
Rijnbeeck, kól á tám og þurfti því
að kalla til björgunarsveit sem náði
í piltana inn í Nýjadal.
„Ferðin hefur gengið vel hingað
til þrátt fyrir þessar uppákomur og
höldum við okkar striki og höldum
rakleiðis áfram.“
Eru staddir í Hrauneyjum
Hópurinn er nú staddur í Hraun-
eyjum, en stefnt er að því að leggja
af stað til Landmannalauga á Þor-
láksmessumorgun.
Aðspurður hvernig þeim hafi lit-
ist á landið svarar Charlie: „Ég
elska Ísland, þetta er í fjórða sinn
sem ég kem hingað. Landið er
stórkostlegt á veturna og fegurðin
ólýsanleg.“
Spurður af hverju þeir hafi lagt í
ferðalagið yfir jólin segir hann fólk
fyrst hafa álitið þá geggjaða.
„Við vitum að við erum geggjaðir
að gera þetta,“ segir hann og hlær.
„Ástæðan fyrir ferðalaginu er sú
að við vildum koma til landsins á
kaldasta tímanum. Við gátum ekki
ímyndað okkur betri tímasetningu
en yfir vetrarsólstöður. Það gerir
hlutina auðvitað flóknari að ferðast
um þessar slóðir um hávetur og fá-
ir myndu hætta sér í þetta, enda
veðrið á Íslandi óútreiknanlegt.“
Daginn áður en ferðalangarnir
komumst til Nýjadals lentu þeir í
hríðarbyl í um 10 klukkustundir.
„Við sáum ekki lengra en 10 metra
og reiddum okkur því alfarið á
GPS tækið því við sáum engin
kennileiti á leiðinni. Það var ógn-
vekjandi en spennandi á sama tíma
og komumst við blessunarlega á
leiðarenda um kvöldið,“ útskýrir
Charlie en hann telur jafnframt
líklegt að versta veðrið sé enn
ókomið. „Við fylgjumst vel með
veðurspánni og það lítur út fyrir að
kuldinn verði mikill á fimmtudag
og föstudag.“
Spurðir hvernig jólin líti út hjá
ferðalöngunum segir Charlie þá
ákveðna í að halda jólin að íslensk-
um sið þann 24. fremur en þann
25. eins og í Bretlandi.
Jólin í Landmannalaugum
„Á aðfangadagsmorgun komumst
við vonandi í heitu laugarnar í
Landmannalaugum og leggjum síð-
an af stað síðdegis á skíðum svo
við náum því að vera komnir til
Skóga á gamlársdag. Við keyptum
allir litlar jólagjafir hver fyrir ann-
an og vonandi náum við að eiga
notalega stund saman.“
Ferðinni lýkur á gamlársdag en
þá ætla þeir er vera komnir í
Skóga undir Eyjafjöllum, þar sem
fjölskyldur þeirra munu taka á
móti þeim.
„Þaðan förum við til Reykjavíkur
og við Stefan, Archie og kvik-
myndatökuliðið hyggjumst leggja
okkur í nokkra tíma áður en Ein-
stök heldur smá hóf á Kex hostel
um kvöldið. Síðan munum við taka
þátt í áramótunum með Reykvík-
ingum,“ segir Charile sem hlakkar
til að upplifa áramótin í höfuðborg-
inni.
Ferðalag Gönguhópurinn leggur af stað á skíðum til Landmannalauga á Þorláksmessu.
„Við erum geggjaðir að gera þetta“
Ungir Bretar ferðast um landið á skíðum yfir jólin Lentu í 10 klukkustunda hríðarbyl
Stefna á að vera komir í Skóga á gamlársdagsmorgun og ætla að eyða áramótunum í Reykjavík
Hremmingar Stefan Rijnbeeck kól á tám og þurfti því að kalla til björgunarsveit.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015
Laugavegur 59, 2. hæð • Sími 551 8258 • storkurinn.is
Opið:
Mán.-F
ös.
11-18
Lau. 12
-16
Gjafabréfin
okkar gleðja
Viðkoma rjúpunnar virðist almennt
hafa verið fremur léleg á þessu ári,
samkvæmt fyrstu niðurstöðum úr
aflestri vængja af rjúpum sem
veiddar voru í haust.
Ólafur K. Nielsen, vistfræðingur
hjá Náttúrufræðistofnun Íslands,
hefur lesið úr rjúpnavængjum sem
stofnuninni hafa borist undanfarin
ár. Þessar upplýsingar eru mikil-
vægur þáttur í vöktun íslenska
rjúpnastofnsins. Nú er búið að
greina 1.255 vængi af nýlega veidd-
um rjúpum. Af þeim voru 368
vængir af fullorðnum fuglum en 887
af ungfuglum.
Ungahlutfallið var í heildina 71%,
sem er með minna móti. Það gerir
4,8 unga á hvern kvenfugl. Nokkur
munur var á afkomu rjúpna eftir
landshlutum. Lægst var ungahlut-
fallið á Austurlandi eða einungis
55%. Þar voru aðeins 2,5 ungar á
hvern kvenfugl. Hæst var hlutfallið
á Vesturlandi 79% eða 7,4 ungar á
hvern kvenfugl. Ólafur kvaðst eiga
von á að fá 1.000 til 2.000 rjúpna-
vængi til viðbótar til greiningar.
„Við tökum við vængjum frá
veiðimönnum, öðrum vængnum af
hverjum fugli sem þeir hafa fellt.
Þessu þurfa að fylgja upplýsingar
um veiðisvæði. Allir fá svar með
greiningu á sínum afla,“ sagði Ólaf-
ur.
Viðtakandi vængjanna er Nátt-
úrufræðistofnun Íslands, Pósthólf
125, 212 Garðabær. gudni@mbl.is
Fremur léleg
viðkoma rjúpna
Veiðimenn skili rjúpnavængjum
Veiðitími rjúpna 2015 - Ungahlutfall
Heimild: Náttúrufræðistofnun Íslands
Landshluti Fullorðnir Ungfuglar Samtals % ungfuglar Ungar á kvenfugl
Vesturland 14 52 66 79% 7,4
Vestfirðir 36 103 139 74% 5,7
Norðvesturland 82 187 269 70% 4,6
Norðausturland 150 415 565 73% 5,5
Austurland 67 83 150 55% 2,5
Suðurland 19 47 66 71% 4,9
Samtals 368 887 1255 71% 4,8
Maður var í gær handtekinn eftir
að hann hafði hótað starfsmönnum
Héraðsdóms Reykjavíkur lífláti.
Ingimundur Einarsson, dómstjóri
héraðsdóms, segir að hótunin hafi
verið tekin alvarlega en maðurinn
hefur komið við sögu hjá dóm-
stólnum. „Þetta var maður sem
hafði hringt ótal sinnum í af-
greiðsluna hjá okkur og var
óánægður með svör sem hann
fékk. Það endaði með því að hann
hótaði lífláti, við tókum þetta al-
varlega og hann endaði á því að
hóta því að skjóta afgreiðslufólkið
hjá okkur.“
Ingimundur segir að lögreglan
hafi verið kölluð til en í dagbók
hennar segir að vakt hafi verið sett
upp við héraðsdóm jafnhliða því að
þekktur dvalarstaður viðkomandi
var vaktaður. Nokkru seinna var
hann handtekinn án mótþróa og
færður í fangageymslu. Ingimund-
ur segir að sem betur fer sé það
ekki á hverjum degi sem svona hót-
anir berist en starfsfólkið hafi
vissulega verið óttaslegið.
Starfsmönnum héraðsdóms hótað lífláti
„Við búumst við
því að það falli
snjór um mestallt
land á Þorláks-
messu svo það
eru ágætis líkur á
að það verði hvít
jól,“ segir Birta
Líf Kristins-
dóttir, veður-
fræðingur á Veð-
urstofunni, og
bætir við að á höfuðborgarsvæðinu
geti verið allt frá tveggja til tíu stiga
frost á aðfangadag en aðeins kaldara
fyrir norðan.
Hún segir jafnframt að áfram
muni sennilega snjóa á aðfangadag
fyrir norðan en á höfuðborgarsvæð-
inu stytti upp og búast megi við að
bjart verði yfir suðvesturhorninu.
„Fyrir minn smekk persónulega
gæti þetta eiginlega ekki verið betra
en það er auðvitað smekksatriði
hvernig fólki finnst veðrið eiga að
vera,“ segir Birta Líf.
Á jóladag segir Birta Líf að vænta
megi umtalsverðs frosts víðsvegar
um landið en þó geti brugðið til
beggja vona sunnantil þar sem lægð-
arbóla liggi fyrir sunnan landið.
Áætlað er að sú lægð færist inn á
landið og geti fært okkur snjókomu
en um leið hærra hitastig á Suður-
og Suðvesturlandi. Annan í jólum
verði þó hægur vindur og nokkuð
bjart víða um land en möguleiki á
stöku éljum.
Allt stefnir
í hvít en
köld jól
Jólin Kalt verður í
veðri á aðfangadag.