Morgunblaðið - 23.12.2015, Blaðsíða 33
UMRÆÐAN 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015
Fyrir tilverknað út-
rásarinnar var upp-
byggingu Hörpu
hrundið af stað og
fjármögnuð með
„ránshendi“ innan-
sem utanlands, í skjóli
sofandaháttar stjórn-
valda og er þar að auki
vart rekstrarhæf þó
svo miklar afskriftir
hafi átt sér stað.
Bankaútrás fékk óhindrað að fara á
skjön við regluverk og eðlilegt að-
hald þar sem fjármálaeftirlit var
ekki pappírsins virði. Viðgekkst
óraunhæf skuldabréfaútgáfa inn- og
útlána bankasýslunnar til glóru-
lausrar uppbyggingar fasteigna-
markaðar og annarra óhæfuverka.
Þúsundir heimila, líknarfélaga og
annarra samtaka víðsvegar í Evr-
ópu, ásamt íslenskum almenningi,
súpa seyðið af og eiga um sárt að
binda eftir að ævisparnaður gufaði
upp og glórulaus eignaupptaka tók
við í kjölfarið. Forsætisráðherra og
utanríkisstýra landsins „riðu“ þvers
og kruss um heiminn í aðdraganda
hruns bankakerfisins til að opinbera
boðskap sinn um að allt væri í
himnalagi á skerinu.
Forysta KSÍ er ekki í miklum
tengslum við efnahagslega getu og
lætur stjórnast af óraunhæfum
væntingum og ekki einir um það.
Gæluverkefnum skal hrint í fram-
kvæmd með öllum tiltækum ráðum
og látið stjórnast af óskhyggju og
ómældu óraunsæi, sem hefur ein-
kennt íslenskt samfélag und-
angengin ár.
Enn og aftur skal róið á sömu mið
og haldið áfram með sömu for-
merkjum þar sem KSÍ fann sér út-
valda ráðgefandi- eða kannski „fjár-
gefandi“ stofu úti í bæ til að leggja
blessun sína yfir hversu hagkvæmt
og mikið þjóðþrifamál væri að
stækka og yfirbyggja þjóðarleik-
vanginn. Jafnvel þó svo það komi
ríflega einn og hálfur milljarður inn
hjá KSÍ eftir gott gengi landsliðs-
ins, hrekkur það til lítils annars en
að dekka laun þjálfara,
leikmanna, bónusa og
aðra óráðsíu. Skemmst
er að minnast frétta-
flutnings um árið þeg-
ar fullfrjálslega var
farið með kreditkort
KSÍ erlendis á vafa-
sömum stöðum og var-
ið með tómu yfirklóri.
Illa er komið fyrir
forystu KSÍ ef hún
heldur vart svefni af
áhyggjum komi til þess
að stórmót verði haldið
á Íslandi ef landsliðið myndi sigra
allt og alla. Til að fyrirbyggja allan
misskilning hefur þessi pistill ekk-
ert með það að gera að það sé dreg-
ið úr eðlilegri uppbyggingu íþrótta-
rhreyfingarinnar og frábærum
árangri landsliðsins í fótbolta sem
er aðdáunarverður.
Það er ekkert að því að vera stór-
huga og vilja reisa glæsimannvirki
og hallir við eðlilegt efnahagsástand
og fjárhagslega getu. Undangengin
ár hefur verið mokað fjármagni í
íþróttamannvirki, eins og um millj-
ónasamfélag væri að ræða, sem
borg og sveitarfélög eru að súpa
seyðið af. Vekur furðu að flísalagðar
skautahallir hafi ekki risið upp
þvers og kruss í öllum hverfum
borgarinnar með sama hætti.
Fjárhagsleg geta Reykjavíkur-
borgar, Hafnarfjarðar, (Álftaness),
og fleiri sveitarfélaga er rjúkandi
rúst þar sem látið var stjórnast af
ábyrgðarleysi að ógleymdri einka-
væðingu Reykjanesbæjar þar sem
hver einasti blýantur var seldur.
Eðlileg sparsemi og samnýting
hefði mátt vera miklu meiri, ekki
síst á höfuðborgarsvæðinu.
Sú forgangsröðun sem hefur við-
gengist er þess valdandi að ekki er
hægt að standa undir eðlilegri og
lögboðinni samfélagsskyldu. Ekki
síst gagnvart þeim sem minna mega
sín og festast í fátæktargildrum,
ásamt að auka ójöfnuð og öryrkja-
væðingu enn frekar sem er ekki í
neinum takti við nágrannalöndin.
Því er ekkert öfugt farið hjá hinu
opinbera frekar en heimilum lands-
ins, að ef ekki er sýnd eðlileg fyr-
irhyggja og látið stjórnast með
ábyrgum hætti fer oftast illa og
glórulaus gjaldrot og afskriftir eiga
sér stað. Alltof oft er þar að baki óá-
byrg og jafnvel lítil siðferðiskennd.
Ákveðinn hópur í samfélaginu lif-
ir í vellystingum og er ekki í neinum
tengslum við misskiptingu sem á
sér stað ásamt að láta sig litlu varða
annað en eigin afkomu. Elítan er
þar í fararbroddi sem fyrr og sjálfri
sér samkvæm, lætur stjórnast af
sérhagsmunum, ekki síst þegar ylja
skal sér um hjartarætur með niður-
greiddum hörpuslætti (taki þeir til
sín sem eiga þó svo afneitunin sé
sterk).
Það virðist vera orðið séríslenskt
fyrirbrigði að ætla að hlutirnir þurfi
lítið sem ekkert að kosta þar sem
það þurfi aðeins ríkisábyrgð og
einkavæðingu í anda 2007 til fram-
kvæmda og síðan eigi að borga
brúsann með draumsýn, ásamt
endalausum skuldsetningum og óá-
byrgum væntingum. Fari síðan ekki
allt eins og til var ætlast er öllu
öðru um kennt hvernig tókst til.
Bætt lífsskilyrði og velferð mun
seint eiga sér stað nema hjá útvöld-
um láti stjórnsýslan ekki af óhæfu
verklagi sem hefur þrifist alltof
lengi.
Láta þar hæst banka- og LÍÚ-
mafíurnar sem helst má líkja við
ræningjabæli undangenginna ára-
tuga þar sem vaxtaokur þrífst í
hæstu hæðum ásamt útvöldum sæ-
greifum sem sitja að stærstum
hluta að rányrkju á sameign þjóð-
arinnar í skjóli veruleikafirrtra
stjórnvalda.
Vantar nú ekkert annað en
þjóðarleikvang í anda Hörpu
Eftir Vilhelm
Jónsson »Undangengin ár
hefur verið mokað
fjármagni í íþrótta-
mannvirki, eins og um
milljónasamfélag væri
að ræða, sem borg og
sveitarfélög súpa
seyðið af.
Vilhelm Jónsson
Höfundur er fjárfestir.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Bridsfélag eldri borgara
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 15. desember var
spilaður tvímenningur með þátt-
töku 28 para.
Efstu pör í N/S (% skor):
Ragnar Jónsson - Lúðvík Ólafsson 58,5
Bjarnar Ingimarss. - Bragi Björnss. 54,8
Pétur Antonsson - Örn Einarsson 53,7
Örn Ingólfsson - Örn Isebarn 53,5
Erla Sigurjónsd. - Jóhann Benediktss. 53,4
A-V
Kristrún Stefánsd. - Sverrir Gunnarss. 69,2
Ágúst Stefánsson - Helgi Einarsson 55,9
Tómas Sigurjs. - Jóhannes Guðmannss.55,1
Óskar Ólafsson - Sigfús Skúlason 55,0
Ólafur Ólafsson - Anton Jónsson 54,2
Föstudaginn 18. desember var
síðasta spilakvöld á þessu ári.
Fyrir spilamennsku var jólahlað-
borð og síðan var spilaður tvímenn-
ingur með þátttöku 36 para
Bestum árangri náðu í N/S:
Vigdís Sigurjónsd. - Þorl. Þórarinss. 61,6
Kristín Óskarsd. - Unnar Guðmss. 57,5
Bjarnar Ingimarss. - Bragi Björnsson 56,4
Guðl. Bessason - Ragnar Haraldss. 53,9
Bjarni Þórarinss. - Magnús Jónsson 52,9
A-V
Tómas Sigurjss. - Björn Svavarss. 62,8
Sigurður Kristjánss. - Jónína Óskarsd. 61,9
Sturla Snæbjörnss. - Ormarr Snæbjss. 61,0
Björn Arnarson - Ágúst Þorsteinss. 60,8
Skafti Þórisson - Birkir Jónsson 54,6
Guðmundur Sigursteinsson vann
hauststigakeppnina af miklu öryggi.
Hann fékk veglegan bikar til
eignar. Að auki fengu 10 hæstu spil-
arar verðlaun.
Lokastaðan í hauststigakeppn-
inni varð þessi:
Guðmundur Sigursteinsson 281
Auðunn R. Guðmundsson 263
Örn Einarsson 226
Bjarnar Ingimarsson 206
Jóhann Benediktsson 202
Bragi Björnsson 198
Óskar Ólafsson 194,5
Tómas Sigurjónsson 185
Katarínus Jónsson 170
Félagið óskar öllum spilurum
gleðilegra jóla og farsæls komandi
árs.
Spilamennska hefst aftur föstu-
daginn 8. janúar.
FEB Reykjavík
Mánudaginn 14. desember var
spilað á 12 borðum hjá bridsdeild
Félags eldri borgara í Reykjavík.
Efstu pör í N/S
Magnús Oddsson – Björn E. Péturss. 250
Jón Þór Karlss. – Björgvin Kjartanss. 234
Guðm. Sigursteinss. – Unnar Guðmss. 232
Haukur Harðarson – Ágúst Helgason 227
A/V
Bjarni Guðnas. – Guðm. K. Steinbach 283
Óli Gíslason – Magnús Jónsson 252
Tómas Sigurjss. – Björn Svavarsson 246
Bjarni Þórarinss. – Gunnar Jónsson 221
Fimmtudaginn 17. des. mættu 23
pör til leiks.
Efst í N/S
Guðm. Sigursteinss. – Björn Árnason 269
Örn Ingólfsson – Örn Isebarn 243
Bjarni Þórarinss. – Kristján Guðmss. 230
Jón Þór Karlss. – Jón Hákon Jónss. 230
A/V
Ormarr Snæbss. – Sturla Snæbjörnss. 253
Óli Gíslason – Magnús Jónsson 252
Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandss. 246
Hrólfur Guðmss. – Axel Lárusson 233
Óskum
viðskiptavinum
okkar og landsmönnum
öllum gleðilegra jóla
og farsældar
á komandi ári
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Þú gerir ekki
*samkvæmt dekkjaprófun
haustið 2014
Ipike W419Winter i'cept
Korna-
dekk
– Síðan 1941 –
Smiðjuvegi 68-72, Kóp Hjallahrauni 4, Hfj
Fitjabraut 12, Njarðvík Austurvegi 52, Selfossi
Skútuvogi 2, Rvk Sími 568 3080
betri kaup!
Áberandi gott
skv. FÍB*