Morgunblaðið - 23.12.2015, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015
Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður | Sími 560 4300 | saltkaup.is
Hálkusalt fæst hjá okkur í 5 kg og 25 kg pokum
Nú kólnar í veðri
Salt - Umbúðir - Íbætiefni
Ný heimasíða
BAKSVIÐ
Margrét Kr. Sigurðardóttir
magret@mbl.is
Gerðar hafa verið breytingar á
verðskrá Já fyrir skráningar fyrir-
tækja sem hefur hækkað gjald sumra
fyrirtækja þeim að óvörum. Grunn-
skráning hjá Já er ókeypis en í því
felst nafn á fyrirtæki, heimilisfang og
símanúmer. Ef fyrirtæki vilja birta
frekari upplýsingar er hægt að velja
um mismunandi pakka. Ódýrasti
pakkinn í nýrri verðskrá kostar 5.990
krónur og sá dýrasti kostar 199.990
krónur. Þau fyrirtæki sem vilja gera
breytingar á skráningum þurfa að
hafa samband fyrir áramót, sam-
kvæmt tilkynningu frá Já, en reikn-
ingarnir eru gefnir út í lok janúar
miðað við stöðu skráninga um ára-
mót.
„Þetta kom verulega á óvart því
það var nýbúið að ganga frá skrán-
ingu sem verðlögð var á 7.200 krónur
en með tilkynningu um nýja verðskrá
sem tekur gildi um áramót hafði upp-
hæðin hækkað upp í 19.990 krónur
sem er nærri þreföldun á verðinu,“
segir fyrirtækjaeigandi um nýja
verðskrá Já. Viðmælandinn, sem
ekki vill láta nafn síns getið, segir að
ef hann hefði ekki rekið augun í verð-
breytinguna hefði borist reikningur í
janúar upp á 19.990 krónur. Eftir
samtal hans við starfsmenn Já kom í
ljós að ekki var hægt að halda fyrri
samningi sem gengið var frá í nóv-
ember. Já hafði sett fyrirtækið í
ákveðinn pakka sem felur í sér skrán-
ingu á meiri upplýsingum en fyrri
samningur gerði ráð fyrir.
Margrét Gunnlaugsdóttir, vöru-
og viðskiptaþróunarstjóri Já, segir
nýja verðskrá hafa verið senda út til
allra fyrirtækja um breytingar á fyr-
irkomulagi skráninga. „Hingað til
höfum við selt skráningar í einingum
en við erum að einfalda skráningarn-
ar og gera þær aðgengilegri fyrir fyr-
irtæki. Við bjóðum því fimm skrán-
ingarpakka sem fela í sér ákveðið
mikið magn af upplýsingum.“
Margrét segir fyrirtæki geti tekið
afstöðu til þess hvaða pakka þau vilja
fá. „Fyrirtækin lenda inni í
ákveðnum pökkum út frá þeim
skráningum sem þau eru með í dag.
Fyrirtæki eru ýmist að hækka,
lækka eða standa í stað. Í þeim til-
vikum þar sem um hækkanir er að
ræða þá eru fyrirtækin í raun og veru
að fá möguleika á fleiri skráningum
og þar af leiðandi hækkar verðið. Þau
geta ákveðið að nýta sér þessar við-
bótarskráningar sem bjóðast í þeim
pakka sem þau lenda í eða ákveðið að
minnka upplýsingarnar og aðlaga þá
skráninguna sína að því. Það er allur
gangur á því hvað fyrirtæki eru að
gera.“
Margrét segir það af og frá að ver-
ið sé að þvinga fyrirtæki að fara í
ákveðna pakka. „Við erum bara að
láta vita af breytingunni og þau geta
ákveðið að fara í pakka sem hentar
betur sem er þá ódýrari eða dýrari.“
Á næsta ári kemur í síðasta skipti út
prentuð símaskrá og segir Margrét
að breytingarnar á verðskránni séu
liður í þeim áformum.
Þegar Margrét er spurð hversu
mörg fyrirtæki sem áður hefðu verið
með skráningu sem kostaði 7.200
krónur hefðu farið í pakkann sem nú
kostar 19.990 krónur segist hún ekki
geta gefið upplýsingar um það þar
sem um sé að ræða trúnaðarmál. „Ég
get hins vegar sagt þér að ekki er
gert ráð fyrir hækkun á tekjum fé-
lagsins á milli ára í kjölfar þessara
breytinga.“ Tekjur fyrirtækisins Já
voru á síðasta ári rúmur milljarður
króna samkvæmt ársreikningi og
hagnaður var 232 milljónir króna.
Skráning hjá Já nær
þrefaldaðist í verði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skráning Verðskrá fyrir skráningar fyrirtækja hjá Já hefur verið breytt.
Breytingum á verðskrá ætlað að einfalda fyrirtækjum val
Verðlag var 1,6% hærra að meðaltali
á þessu ári en í fyrra, sé tekið mið af
meðalvísitölum neysluverðs fyrir árin
tvö. Til samanburðar var verðbólga
2,0% árið 2014 samkvæmt sama
mælikvarða og 3,9% árið 2013.
Verðlag hækkaði um 2,0% yfir árið,
frá desember 2014 til desember í ár,
samkvæmd nýrri mælingu Hagstofu
Íslands. Vísitala neysluverðs hækkaði
um 0,33% milli nóvember og desem-
ber, en sé húsnæðisliður vísitölunnar
tekinn út þá hækkaði hún um 0,28%.
Sé litið til meðalvísitölu neyslu-
verðs án húsnæðis þá var verðlag ein-
ungis 0,1% hærra í ár en á síðasta ári.
Verðbólga án húsnæðis samkvæmt
þeim mælikvarða var 0,8% árið 2014
og 3,9% árið 2013. Síðastliðna tólf
mánuði hefur vísitala neysluverðs án
húsnæðis hækkað um einungis 0,4%.
Flugið hækkaði í desember
Í desember hafði tæplega 17%
hækkun flugfargjalda til útlanda
mest áhrif á verðlagsmælingar og
hækkaði vísitala neysluverðs um
0,19% af þeim sökum. Húsnæðislið-
urinn olli svo 0,12% hækkun vísitöl-
unnar. Hins vegar lækkaði matar-
karfan og símakostnaður á milli
mánaða.
Greiningardeild Arion banka telur
að verðbólguhorfur til skamms tíma
séu góðar, sem rekja megi til styrk-
ingar krónunnar undanfarna mánuði
og lækkunsr olíuverðs. Telur bankinn
útlit fyrir að verðbólga verði rétt yfir
2% næstu mánuði og lækki síðan í
1,7% í mars.
Greining Íslandsbanka telur vís-
bendingar um að launahækkanir á
árinu hafi enn sem komið er haft mun
hóflegri áhrif á verð á innlendum
vörum og þjónustu en margir hafi bú-
ist við. Innlendur kostnaðarþrýsting-
ur fari þó vaxandi og mun hann að
mati bankan þrýsta verðbólgu upp
fyrir verðbólgumarkmiðið næsta
haust.
Morgunblaðið/Golli
Verslun Verðlag án húsnæðis hækkaði um 0,1% á milli áranna 2014 og 2015.
Verðbólga
fyrir árið 2015
mældist 1,6%
Nánast engin verðbólga án húsnæðisliðs
● Staða ríkissjóðs er afar ólík, allt eftir
því hvort stöðugleikaframlög slitabúa
bankanna eru tekin með í reikninginn
eða ekki. Áhrifa af framlögunum mun
gæta á næstu árum en þau verða færð
til tekna í fjárlögum á ríkisreikningi á
næstu árum. Þetta kemur fram í nýrri
Hagsjá Landsbankans.
Þar er bent á að séu stöðugleika-
framlög næsta árs tekin inn í ríkisreikn-
ing sé afgangur af rekstri ríkissjóðs
áætlaður 346 milljarðar króna. Án
framlaganna yrði sá afgangur aðeins 7
milljarðar en það svarar til 1% af tekjum
ríkisins að frádregnum þeim sem koma
til vegna stöðugleikaframlaga.
Landsbankinn segir að framlögin
skekki nokkuð myndina og að „staða
ríkissjóðs er að ýmsu leyti ekki eins góð
og virðist á yfirborðinu“.
Án stöðugleikaframlaganna verður afgangur af
rekstri ríkissjóðs einvörðungu 1% á næsta ári