Morgunblaðið - 23.12.2015, Page 23

Morgunblaðið - 23.12.2015, Page 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015 Austurstræti 22, 101 Reykjavík Borðapantanir í síma 562 7335 eða á caruso@caruso.is Starfsfólk Caruso óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar og friðar á komandi ári. Í dag er liðið 1 ár frá því að við fluttum Caruso í Austurstræti 22 og gömlum og nýjum viðskiptavinum þökkum við kærlega fyrir komuna á nýja staðinn og stuðninginn á árinu sem er að líða. Hátíðarkveðjur frá Caruso Gleðileg Jól                                     !  " #! $$ !    #% $ $#  &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5   !% % $ %" !!  #! #"%" % "   "  #  $" $ !!  #$" #%#% %$ % # Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Atvinnuleysi var 3,5% í nóvember, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Að jafnaði voru 194.900 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í nóvember sem jafngildir 83,2% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 188.100 starfandi og 6.800 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka jókst um 2,4 pró- sentustig í samanburði við nóvember í fyrra og atvinnuleysi jókst úr 3,1% í 3,5% milli tímabila. Ef horft er til síðustu sex mánaða þá stendur atvinnuleysi í stað og hlutfall starfandi og atvinnuþátttaka jókst um 0,3 prósentustig. 3,5% atvinnuleysi mældist í nóvember ● Gjaldþrot einkahlutafélaga hafa dregist saman um 24% síðustu 12 mánuði, frá desember á síðasta ári til nóvember á þessu ári, í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Á tímabilinu voru 611 fyrirtæki tekin til gjaldþrota- skipta . Nýskráningum einkahlutafélaga hef- ur hins vegar fjölgað um 11% í saman- burði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.272 ný félög skráð á tímabilinu. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga er mest í fasteignaviðskiptum. Gjaldþrotum fækkar og nýskráningum fjölgar STUTTAR FRÉTTIR ... ● Kvika hefur lokið sölu á víkjandi skuldabréfum til einkafjárfesta að nafnvirði 550 milljónir króna. Bréfin eru til 10 ára og verða skráð á Nasdaq Iceland fyrir árslok. Í til- kynningu segir að þetta sé í fyrsta skipti frá upphafi fjármálakreppunnar í október 2008 sem íslenskur banki sel- ur víkjandi skuldabréf til fjárfesta. Skuldabréfin eru seld á ávöxtunar- kröfunni 5,5-6,25% miðað við fyrsta innköllunardag en þau eru innkallanleg af útgefanda þegar liðin verða fimm ár frá útgáfudegi. Heildarheimild Kviku til útgáfu skuldabréfanna er að nafnvirði 750 milljónir króna. Kvika seldi víkjandi skuldabréf til 10 ára Banki Fyrsta víkj- andi útgáfan í 7 ár. Eignir íslensku lífeyrisjóðanna jukust um 10,7% á fyrstu 10 mánuðum ársins í krónum talið. Þannig voru eignir sjóðanna í lok október 3.239 milljarðar króna en voru um áramótin 2.925 milljarðar. Þetta kemur fram í hagtölum sem vinnuhópur á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða hefur tekið saman. Sem fyrr er stærstur hluti eigna sjóðanna bundinn í ís- lenskum skuldabréfum. Þannig voru eignir þeirra í þeim flokki orðnar 1.748 milljarðar króna í október og höfðu aukist um 5,7% frá áramótum. Næststærsta eign sjóð- anna er bundin í erlendum hlutabréfum og nam sú eign tæpum 675 milljörðum í lok október. Höfðu erlend hluta- bréf vaxið um 5,3% í krónum talið á árinu en í þeirri tölu er ekki leiðrétt fyrir gengisstyrkingu krónunnar. Lífeyrissjóðirnir höfðu tæpa 600 milljarða bundna í innlendum hlutabréfum í lok október en í árslok 2014 hafði sú eign staðið í 437 milljörðum. Því hafði innlend hlutabréfaeign þeirra vaxið um 37,1% á fyrstu 10 mán- uðum ársins. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hafði hækk- að um 40% yfir sama tímabil. Innlán, afleiðusamningar og aðrar eignir sjóðanna uxu svo um 15,6% á fyrrnefndu tímabili og stóðu í tæpum 168 milljörðum í lok október. Eignir lífeyrissjóða hafa vaxið um 10,7% á fyrstu 10 mánuðum ársins Morgunblaðið/Styrmir Kári Ávöxtun Eignir íslenskra lífeyrissjóða hafa aldrei verið jafnmiklar og þær reyndust í október síðastliðnum, samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.