Morgunblaðið - 23.12.2015, Qupperneq 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2015
Since 1921
Weleda Jólagjafir !
Gefðu þeim sem þér þykir vænt um gjöf sem veitir vellíðan,
Weleda jólagjafir henta öllum í fjölskyldunni. Vörur unnar úr lífrænt
ræktuðum jurtum. NaTrue vottaðar.
Útsölustaðir Weleda : Heilsuverslanir og apótek um allt land.
Jóla
dagar
LÁGMÚLA 8
SÍMI 530 2800
Þessar vinsælu leikjatölvur
eru komnar í nýrri útgáfu,
með betri stjórnun, stærri
skjá og öflugri.
Til í nokkrum litum.
Gott úrval leikja.
kr. 39.900,-XL: kr. 46.900,-
Þessi leikjatölva hefur
slegið rækilega í gegn
og var kosin leikjatölva
ársins 2015 af Forbes.
kr. 69.900,-
Opið þriðjudaginn 22. des. til kl. 19.00 og Þorláksmessu til kl. 21.00
Verð frá kr. 4.900,-
Gott úrval
leikja
Íraska stúlkan Farah Naseer (t.v.) brosir breitt eftir að
hafa fengið að vita að hún hafi hafnað í öðru sæti í
keppninni ungfrú Írak. Keppnin fór fram í Bagdad,
Shaymaa Abdelrahman frá Kirkuk sigraði. Er þetta í
fyrsta sinn í yfir 40 ár sem haldin er keppni um titilinn í
Írak sem hefur lengi verið þjakað af stríði.
AFP
Brosað gegnum tárin í Bagdad
Fyrsta fegurðarsamkeppni í Írak í meira en 40 ár
Auðkýfingnum Donald Trump hefur
gengið vel að halda frumkvæðinu í
baráttu repúblikana um að hljóta út-
nefningu sem forsetaefni flokksins á
næsta ári. Hann virðist oft leggja sig
fram um að ganga fram af fólki með
ósvífni, að mati flestra. En aðdáend-
ur hans segja hann bara hreinskilinn
og alþýðlegan.
Trump var nýlega í ham á kosn-
ingafundi í Michigan. Hann hæddist
að líklegu forsetaefni demókrata,
Hillary Clinton, sem virtist nota
tækifærið og fara á salernið þegar
auglýsingahlé var gert í sjónvarps-
kappræðum demókrata nýlega. Hún
kom einni mínútu of seint aftur á
sviðið en var fagnað ákaft.
„Ég veit hvert hún fór. Ekki segja
það, þetta er viðbjóðslegt,“ sagði
Trump.
Síðar sagði hann, réttilega, að
Clinton hefði fyrirfram verið álitin
örugg um að vinna sigur í prófkjöri
demókrata 2008
og verða forseta-
efni flokksins.
Hún tapaði
naumlega fyrir
Barack Obama,
fékk færri full-
trúa á flokks-
þinginu en ívið
fleiri atkvæði
samanlagt í próf-
kjörunum.
„Hún ætlaði að sigra Obama,“
sagði Trump. „Ég veit ekki hvort
þeirra hefði verið verra. Ég veit það
ekki. Hvernig gæti þetta verið
verra?“
Trump notaði afar karlrembulegt
klámorð þegar hann lýsti því hvernig
Obama hefði sigrað Clinton. Í ágúst
mislíkuðu honum spurningar frétta-
manns Fox-stöðvarinnar, Megyn
Kelly, og gaf loks í skyn að hún hefði
á klæðum. kjon@mbl.is
Notaði klámyrði
um Clinton
Trump heldur áfram að hneyksla
Donald Trump
Sænska ríkislest-
afyrirtækið SJ
hyggst aflýsa
lestarferðum
milli Svíþjóðar
og Danmerkur
vegna laga sem
sænska þingið
hefur sett vegna
straums flótta-
manna. Sam-
kvæmt lögunum
á að skoða skil-
ríki allra þeirra sem ferðast með
lestum og rútum yfir Eyrarsund-
sbrúna frá Danmörku og einnig
þeirra sem ferðast til Svíþjóðar
með ferjum. Fyrirtæki sem reka
samgöngutækin eiga að annast eft-
irlitið og verða sektuð ef farþegar
ferðast án gildra skilríkja með
mynd eftir að lögin taka gildi 4. jan-
úar.
SJ segir að starfsmenn fyrir-
tækisins hafi ekki tíma til að annast
eftirlitið og það ætli því að aflýsa
öllum lestaferðum frá Kaupmanna-
höfn þegar lögin taka gildi. Sænska
lestafyrirtækið Skanetrafiken
hyggst fækka ferðum yfir Eyrar-
sundsbrúna á annatíma vegna lag-
anna.
SVÍÞJÓÐ
Hyggst aflýsa lestarferðum frá Danmörku
Starfsmaður á
Eyrarsundsbrúnni.
Íraskar hersveitir réðust í gær inn í
miðborg Ramadi sem liðsmenn
hryðjuverkasamtakanna Ríkis ísl-
ams náðu á sitt vald í maí. Tals-
maður úrvalssveita hersins sagði að
þær hefðu byrjað að flæma vopnaða
liðsmenn samtakanna úr íbúða-
hverfum borgarinnar og það gæti
tekið herinn þrjá daga að ná henni
allri á sitt vald. Hersveitirnar
mættu lítilli mótspyrnu, að sögn
talsmannsins.
Liðsmenn Ríkis íslams hafa misst
yfirráð yfir nokkrum mikilvægum
bæjum í Írak frá því að her landsins
hóf sókn gegn þeim eftir að sam-
tökin náðu stórum svæðum á sitt
vald fyrir einu og hálfu ári. Nái
herinn Ramadi á sitt vald er það
stærsti sigur hans til þessa í barátt-
unni við samtökin sem hafa lýst yfir
stofnun kalífats í Írak og Sýrlandi.
BARÁTTAN GEGN RÍKI ÍSLAMS Í ÍRAK
AFP.
Eyðilegging Rústir húsa sem eyðilögð-
ust í átökum í grennd við Ramadi.
Hersveitir náðu miðborg Ramadi á sitt vald