Morgunblaðið - 19.01.2016, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.01.2016, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 2016 SMÁRALIND • 2 HÆÐ SÍMI 571 3210 Dömukuldaskór Verð 14.995 Stærðir 36-42 Gæða kuldaskór -Mjúkt leður -Loðfóður -Stamur sóli (anti-slippery) Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Str. 44-56/58 Áður 15.900.- Núna 7.950.- Útsala -Kápur FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is www.fi.is Kynning á ferðu m í Ferðaáætlun F Í 2016 Myndakvöld Ferðafélags Íslands Miðvikudagskvöld 20. janúar kl. 20 í sal FÍ Þátttaka ókeypis - Allir velkomnir 40–60% afsláttur Sparidress - Sumaryfirhafnir - Peysur - Blússur - Bolir Laugavegi 63 • S: 551 4422 STÓRÚTSALA Frábærar vetraryfirhafnir og gæðadömufatnaður Enn meiri afsláttur - 40-60% afsláttur www.laxdal.is Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Þóroddur F. Þóroddsson, formaður skíðagöngufélagsins Ullar, segir al- gjöra sprengingu hafa orðið í skíða- gönguíþróttinni hér á landi. Hlaup- arar og hjólreiðafólk sem eru að undirbúa sig fyrir þátttöku í Land- vættunum séu dugleg að æfa sig í skíðagöngu. Ullur á um 45 fer- metra skála í Bláfjöllum sem er fyrir löngu orðinn of lítill. Þór- oddur segir að nýliðanámskeið Ull- ar verði æ vinsælli enda sé betra að vera með réttu tæknina frá byrjun. „Það er hálfgert skíðagönguæði á Íslandi. Margir sem eru að fara í Landvættirnar, bæði hlauparar og hjólreiðamenn, eru að undirbúa sig. Sú keppni er að verða stærri og stærri,“ segir Þóroddur. Í Land- vættunum þarf að klára fjórar krefjandi þrautir á 12 mánuðum; Bláa lóns hjólreiðarnar, Fossa- vatnsgönguna, Jökulsárhlaupið og Urriðavatnssundið. Vantar betri aðstöðu Þóroddur segir félagið illa í stakk búið til að taka á móti allri þessari fjölgun. „Það er mikil ánægja með byrj- endanámskeiðið þar sem farið er ofan í grunnatriðin. Við erum með nokkra hópa á byrjendanámskeið- um. Í kvöld [í gær] erum við með tvo hópa, einn á morgun [í dag], síðan eru 50 í æfingum á miðviku- dag og aðrir 50 á fimmtudag. Svo eru einkaaðilar, 80-100 manns, með æfingaprógramm. Þetta er algjör sprenging. Við höfum um 45 fermetra skála sem er sprunginn fyrir löngu. Það koma um 200 manns til okkar á nokkrum klukkutímum. Skammt frá erum við með gám þar sem fólk getur smurt skíðin. Hann er oft þéttsetinn,“ segir Þóroddur. „Þetta er algjör sprenging“  Skíðagönguæði gengur yfir landið  Skíðagöngu- skáli Ullar þéttset- inn  200 manns verða á námskeið- um í vikunni Morgunblaðið/Golli Formaður Þóroddur F. Þóroddsson er formaður skíðagöngufélagsins Ullar. Æfingabúðir Um 200 manns munu kynna sér grunnatriðin í skíðagöngu í vikunni. Algjör sprengja er í skíðagöngu hér á landi enda útivera og hressandi hreyfing heillandi. Aðstöðuleysi er farið= að hrjá skíðagöngufélagið Ull. mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.