Morgunblaðið - 19.01.2016, Page 14

Morgunblaðið - 19.01.2016, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 2016 Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is franskur, íslenskur, enskur eða heilsu Brunch alla daga frá 9-14 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Stjórnarskrárnefnd tókst ekki að ljúka störfum áður en þing kemur saman en yfirlýst markmið nefndar- innar var að afhenda Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra, til- lögur nefndarinnar áður en Alþingi kemur saman á nýjan leik í dag, 19. janúar. Er bjartsýnn að eðlisfari Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri forsætisráðuneytisins, formaður stjórnarskrárnefndar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að næsti fundur nefndar- innar yrði líklega öðrum hvorum megin næstu helgar. „Við funduðum tvisvar sinnum í síðustu viku og línur hafa skýrst,“ sagði Páll, „en það er ekki búið að útkljá öll ágreinings- mál, en það liggur ljóst fyrir hver af- staða ólíkra flokka er og það er verið að reyna að vinna úr því.“ Spurður hvort hann væri enn bjartsýnn á að nefndin kæmist að einni sameiginlegri niðurstöðu sagði Páll: „Ég er bjartsýnn að eðlisfari og trúi því að menn reyni til þrautar að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Mér finnst á öllum nefndarmönnum að þeir séu að leggja sig fram til þess að láta ólík sjónarmið mætast.“ Ástæða þess að ekki er búið að dagsetja næsta fund nefndarinnar er sú, að sögn Páls, að það var ákveðið að setja ákveðna vinnu í gang eftir síðasta fund. „Þegar þeirri vinnu er lokið, getum við boðað til fundar á ný.“ Línurnar hafa skýrst í stjórnarskrárnefnd  Enn ekki búið að útkljá öll ágreiningsmál í nefndinni Páll Þórhallsson hátt bárust 354 hælisumsóknir í fyrra, eða fleiri en nokkru sinni. Af þeim voru samtals um 42% frá Albaníu, Kósóvó og Makedóníu. Alls 32 hælisleitendum var vísað úr landi í fyrra á grundvelli Dyflinnar- reglugerðarinnar. Hlutfall sýrlenskra hælisleitenda, sem sóttu um stöðu flóttamanns hef- ur farið hækkandi og var 8,2% í fyrra. Árið 2015 veitti Útlendinga- stofnun 82 einstaklingum hæli eða aðra vernd á Íslandi. Þar af voru Sýr- lendingar fjölmennastir, eða sautján talsins. Björn Teitsson, upplýsingafulltrúi hjá Rauða krossinum, segir meiri- hluta þessara 82 einstaklinga hafa sótt um hæli áður en Rauði krossinn hóf að veita hælisleitendum réttinda- gæslu 28. ágúst 2014. Af þeim hafi 37 verið skjólstæðingar Rauða krossins og fengið vernd, þar af 18 Sýrlend- ingar. Þá hafi sex til viðbótar fengið hæli, eða vernd, eftir að hafa, að eigin ósk, fengið réttindagæslu annars staðar en hjá Rauða krossinum. Alls 9 hælisleitendur afþökkuðu réttindagæslu hjá Rauða krossinum á Íslandi í fyrra. Margar umsóknirnar gamlar Björn segir að huga þurfi að mörgu þegar svona tölur eru teknar saman. „Það er í sjálfu sér gleðilegt að 82 einstaklingar hafi fengið hæli í fyrra, fleiri en nokkru sinni áður. Engu að síður verður að hafa í huga að mörgum þessara hælisumsókna var skilað inn fyrir löngu, þær elstu eru jafnvel frá árinu 2011. Fjölda hælisveitinga 2015 má því að ein- hverju leyti skýra með því að hælis- veitingar voru allt of fáar árin á und- an fremur en að um sé að ræða stefnubreytingu af hálfu stjórnvalda. En vonandi horfir þetta til betri veg- ar.“ Á grafinu hér fyrir ofan má sjá að 179 Albanar sóttu um hæli á Íslandi árin 2010-15 en 48 Sýrlendingar. Kvótaflóttamenn eru flóttamenn sem fá dvalarleyfi í kjölfar ákvörð- unar stjórnvalda um að taka á móti tilteknum fjölda flóttamanna. Þegar einstaklingar sækja um hæli er metið hvort þeir uppfylli skilgreininguna á flóttafólki og fá þeir síðan eftir atvik- um stöðu flóttamanns og þar með dvalarleyfi. Sé þeim talin bráð hætta búin í heimalandinu geta þeir fengið dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Síðan Rauði krossinn tók við rétt- indagæslu til handa hælisleitendum fyrir rúmum 15 mánuðum höfðu bor- ist 437 umsóknir um réttindagæslu í lok síðasta árs. Hafði þá 195 málum verið lokið af hálfu Útlendingastofn- unar, 233 málum var ólokið. Alls 9 hælisleitendur fólu sem áður segir öðrum en RKÍ réttindagæslu. Á vef Útlendingastofnunar segir að samsetning umsækjenda um vernd á Íslandi m.t.t. þjóðernis sé „mjög frábrugðin samsetningunni í öðrum Evrópuríkjum en þar eru hóp- ar frá stríðshrjáðum ríkjum eins og Sýrlandi, Írak, Erítreu og Afganist- an fjölmennastir“. 47 drógu umsóknir til baka Útlendingastofnun gerir upp árið 2015 með þessum orðum: „Árið 2015 fékkst niðurstaða í 323 mál sem stofnunin hafði til af- greiðslu. 82 umsóknir voru ekki tekn- ar til efnislegrar meðferðar vegna þess að umsækjendur höfðu þegar fengið dvalarleyfi í öðru landi (32) eða mál þeirra voru til meðferðar í öðru ríki (50) og 47 umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka eða hurfu. Af þeim 194 umsóknum sem teknar voru til efnislegrar meðferðar var veitt vernd í 82 tilvikum, þar af fengu 66 einstaklingar viðurkennda stöðu sína sem flóttamenn og 16 ein- staklingar fengu dvalarleyfi á grund- velli mannúðarsjónarmiða.“ Fjöldi hælisleitenda í biðstöðu  Á þriðja hundrað skjólstæðinga Rauða krossins bíða úrskurðar hjá Útlendingastofnun  Alls 354 sóttu um hæli í fyrra og hafa aldrei verið fleiri  Nærri þúsund hafa sótt um hæli frá ársbyrjun 2010 Hælisleitendur frá þremur Balkanlöndum og Sýrlandi, 2010-2015 Heimild: Ársskýrslur og fréttir á vef Útlendingastofnunar. Albanía Albanía, Kósóvó og Makedónía Sýrland Fjöldi hælisleitenda Hlutfall hælisleitenda frá Albaníu Hlutfall hælisleitenda frá Albaníu, Kósóvó og Makedóníu Hlutfall hælisleitenda frá Sýrlandi 2015 108 150 29 354 30,5% 42,4% 8,2% 2014 18 31 6 175 10,3% 17,7% 3,4% 2013 40 42 7 172 23,3% 24,4% 4,1% 2012 11 11 3 118 9,3% 9,3% 2,5% 2011 2 4 1 76 2,6% 5,3% 1,3% 2010 0 4 2 51 0% 7,8% 3,9% SAMTALS 179 238 48 946 400 300 200 100 0 2010 2011 2012 20142013 2015 Heildarfjöldi hælisleitenda Hælisleitendur frá Albaníu Hælisleitendur frá Albaníu, Kósóvó og Makedóníu Hælisleitendur frá Sýrlandi BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vel á þriðja hundrað skjólstæðinga Rauða krossins biðu um áramótin eftir úrskurði frá Útlendingastofnun vegna umsóknar um hæli á Íslandi. Samtals 32 skjólstæðingar Rauða krossins höfðu sótt um hæli í ár til og með gærdeginum. Þar af koma 13 frá Albaníu, níu frá Írak, átta frá Sýrlandi og einn frá bæði Ítalíu og Bandaríkjunum. Þessir 32 um- sækjendur bætast við þá 946 sem sóttu um hæli 2010 til 2015 og fjallað er um hér til hliðar, alls 978 manns. Samsetning hópsins breyttist Tveir hópar sýrlenskra kvóta- flóttamanna eru á leið til landsins. Samkvæmt tilkynningu frá vel- ferðarráðuneytinu hefur orðið breyt- ing á samsetningu hópanna tveggja, alls 55 flóttamanna. Samkvæmt heimildum blaðsins mun undirbúningur að komu næsta hóps hefjast eftir að síðari hópurinn kemur, þá í samstarfi við Flótta- mannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Eins og hér er sýnt á myndrænan Björn Teitsson Fram kemur í tilkynningu frá vel- ferðarráðuneytinu að 35 sýrlenskir kvótaflóttamenn komi til landsins í dag. Í hópnum séu sex fjölskyldur, þar af 13 fullorðnir og 22 börn. „Fjórar þessara fjölskyldna munu setjast að á Akureyri en tvær þeirra í Kópavogi … Ráðgert var að fólkið kæmi til landsins í lok desember sl. en af óviðráðanlegum ástæðum reyndist það ekki mögulegt. Af fjölskyldunum sex sem koma [í dag] munu fjórar setjast að á Ak- ureyri, samtals 23 einstaklingar, en tvær í Kópavogi. Barnshafandi kona sem fyrirhugað var að kæmi [í dag] ásamt fjölskyldu sinni reyndist ekki fær um að takast á hendur ferða- lagið og frestast því koma þeirra til landsins. Þrjár fjölskyldur til við- bótar sem höfðu lýst áhuga á að setjast að á Íslandi sáu sér ekki fært að koma,“ segir í tilkynning- unni. Unnið er að komu flóttafólks í stað þeirra. Sá hópur kemur eftir nokkrar vikur og mun setjast að í Hafnarfirði og Kópavogi. 35 sýrlenskir flóttamenn koma til Íslands í dag ÞRJÁR FJÖLSKYLDUR SÁU SÉR EKKI FÆRT AÐ KOMA Morgunblaðið/Sigurgeir S. Keflavíkurflugvöllur Móttaka verður fyrir fólkið á vellinum kl. 16.30 í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.