Morgunblaðið - 19.01.2016, Síða 15

Morgunblaðið - 19.01.2016, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 2016 Veldu hreint loft, aukna orku og vellíðan Loftgæðin innandyra hafa áhrif á heilsu okkar. Þau minnka á veturna á Íslandi og ekki hjálpar að opna glugga því að útiloft, sem er við frostmark, getur aðeins innihaldið um fjögur grömm af vatni á rúmmetra. Stadler Form rakamælar, rakatæki, lofthreinsitæki og ilmtæki á 20% afslætti í janúar. Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.isHlíðasmára 3 . Sími 520 3090 www.bosch.is Selina rakamælir Sýnir hitastig og rakaprósentu. Nákvæm mæling. Öflugt, hljóðlátt og stílhreint. Afköst mest 300 g/klst. Herbergisstærð allt að 40 m2. Náttúrulegur rakagjafi. Afköst mest 120 g/klst. Herbergisstærð allt að 25 m2. Skapar róandi stemningu og dreifir ilmi um herbergið. Öflugt og glæsilegt. Afköst mest 480 g/klst. Herbergissstærð allt að 65 m2. Hreinsar loftið með þremur síum. Eyðir ólykt, ryki, svifryki, bakteríum, veirum, frjókornum og öðrum örverum í híbýlum okkar. Herbergisstærð: 50 m2 Viktor lofthreinsitæki Anton rakatæki Jasmin ilmtæki Oskar rakatæki Jack rakatæki Síðustu misseri hafa viðræður átt sér stað milli Hafnarfjarðarbæjar og fjármálaráðuneytisins um fram- tíð bygginga St. Jósefsspítala en fasteignirnar voru auglýstar til sölu á síðasta ári. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hafnarfjarð- arbæ. „Meðal annars hafa viðræður milli bæjarins og ríkisins snúist um beiðni bæjaryfirvalda um að sér- stök forvalsnefnd verði sett á lagg- irnar um framtíðarhlutverk fast- eignanna. Þeirri ósk var hafnað af hálfu ríkisins. Í kjölfar þessa hyggst bæjarstjórn Hafnarfjarðar nú óska eftir formlegum viðræðum um kaup á hlut ríkisins,“ segir í fréttatilkynningunni. St. Jósefsspítala var lokað árið 2011 og hann hefur verið til sölu frá 2014. Fasteignin er samtals 2.829 fermetrar og fylgir henni tæplega 4.500 fermetra eignarlóð. Spítalinn stendur við Suðurgötu 41 í Hafnar- firði. Vilja hefja formlegar viðræður  Hafnarfjörður vill fá St. Jósefsspítala Morgunblaðið/Árni Sæberg Suðurgata St. Jósefsspítala var lokað árið 2011 eftir sameiningu. Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða konu 6,5 milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar riftunar á ráðningarsamningi. Konan starfaði m.a. sem hóp- stjóri á þjónustusviði hjá ríkisstofn- un. Henni var sagt upp störfum eft- ir að hún varð uppvís að því að hafa skoðað upplýsingar um fjármál fyrrverandi eiginmanns síns í tölvu- kerfi stofnunarinnar. Konan höfðaði skaðabótamál og taldi að ríkið hefði einhliða og með ólögmætum hætti rift ráðningar- samningi hennar. Íslenska ríkið taldi hins vegar að lagaskilyrði hefðu verið fyrir hendi til riftunar á ráðningarsambandi konunnar. Brot á starfsskyldum Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á það með ríkinu að framganga konunnar hefði falið í sér brot á starfsskyldum hennar. Hins vegar hefði ríkið ekki farið þá leið að segja upp ráðningarsamningi án undanfarandi áminningar heldur hefði samningnum verið rift, bóta- laust og án launa í uppsagnarfresti. Hefði sú riftun verið ólögmæt. Dómurinn dæmdi ríkið til að greiða konunni 6 milljónir í skaða- bætur vegna fjártjóns og 500 þús- und krónur í miskabætur þar sem framganga ríkisins við riftun ráðn- ingarsamningsins hefði verið meið- andi í garð konunnar. Henni var m.a. gert að taka saman og yfirgefa vinnustað sinn fyrirvaralaust og að viðstöddum samstarfsmönnum og þurfti hún að leita sér hjálpar hjá sálfræðingi í kjölfar þessa áfalls. Bætur vegna uppsagnar Dómssalur Úr einum dómssal í Héraðsdómi Reykjavíkur  Skoðaði upplýsingar um fyrrverandi eiginmann sinn Félag atvinnu- rekenda efnir til morgunverðar- fundar á morgun þar sem fjallað verður um hvað þurfi að gerast til að framkvæmdir hefjist við nýjan Landspítala og hvernig eigi að fjármagna nýjan spítala. Meðal frummælenda verða Krist- ján Þór Júlíusson heilbrigðisráð- herra, María Heimisdóttir, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítalans og Jón Finnboga- son, forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni. Fundurinn verður haldinn í fund- arsal Félags atvinnurekenda á 9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, og hefst kl. 8:30. Eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Fundur um nýjan Landspítala Kristján Þór Júlíusson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.