Morgunblaðið - 19.01.2016, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 2016
Í Suður-Afríku vofir nú hungurs-
neyð yfir allt að 14 milljónum
manna að talið er vegna mikilla
þurrka þar að undanförnu. Að sögn
Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóð-
anna (e. World Food Programme)
er ástandið nú einna verst í Malaví.
Þessir miklu þurrkar eru, sam-
kvæmt fréttaveitu AFP, sagðir
tengjast veðurfyrirbærinu El Nino,
en vegna þeirra hefur uppskera
brugðist og búfénaður drepist.
„Þeim sem eru án nægjanlegs
matar á svæðinu gæti fjölgað veru-
lega á næstu mánuðum nú þegar
birgðir fólks fara í síauknum mæli
að eyðast,“ hefur AFP eftir fulltrúa
frá Matvælaáætluninni.
Innan landamæra Malaví vofir
hungursneyð yfir um 2,8 milljónum
manna, en mjög lítið rigndi þar í
landi á síðasta ári. Um 1,9 milljónir
manna eru í sömu sporum á Mada-
gasgar og um 1,5 milljónir í Zim-
babwe, en þar var uppskera síðasta
árs um helmingur uppskerunnar
árið 2014. Vegna þessa hefur verð á
matvælum hækkað mjög og hefur
meðal annars verð á maískorni
hækkað um 73%. khj@mbl.is
Hungursneyð ógnar
14 milljónum manna
AFP
Dauði Hræ af nautgrip liggur þar
sem eitt sinn var árfarvegur.
Í fjallahéruðum Honshu-eyjar í Japan er í svoköll-
uðum Heljardal að finna borgina Yamanouchi, en
hverasvæði þar við er afar vinsælt meðal maka-
kíapa. Þessir tveir virðast kunna að njóta lífsins og
fór bersýnilega vel á með þeim er ljósmyndari AFP
sótti þennan náttúrulega heita pott heim. Apar af
þessari tegund eru um 60 cm á hæð, að jafnaði 15
kg fullvaxnir og oft nefndir snæapar, en apabyggð-
in er hluti af Jigokudani-þjóðgarðinum.
AFP
Tveir vinir í náttúrulegum heitum potti
Apabyggðin í Heljardal Honshu-eyjar í Japan
„Uppi er meiri-
háttar vandi, al-
varlegur og án
fordæmis í
Frakklandi, og
við verðum að
komast að því
hvað fór úrskeið-
is, en að hætta
lyfjaprófunum –
ekkert réttlætir
það,“ sagði Mar-
isol Touraine, heilbrigðisráðherra
Frakklands, í viðtali á útvarpsstöð-
inni RTL. Vísar ráðherrann þar til
alvarlegs slyss sem varð við prófanir
á lyfi sem ætlað er að meðhöndla
skapbresti fólks. Var farið með sex
þátttakendur rannsóknarinnar á
sjúkrahús í Rennes og er einn þeirra
látinn. Hinir mennirnir sýna mis-
alvarleg einkenni að sögn fréttaveitu
AFP, en þrír þeirra munu að lík-
indum hljóta varanlega heilaskaða.
Heilbrigðisráðuneytinu var ekki
gert viðvart um slysið fyrr en að
fjórum dögum liðnum. Þetta er
ámælisvert að sögn ráðherra. „Við
hefðum haldið að rannsóknarstofan
myndli láta vita fyrr.“ khj@mbl.is
Prófunum
verður
ekki hætt
Einn er nú látinn
eftir alvarleg atvik
Marisol
Touraine
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Húbert Zafke, fyrrverandi sjúkraliði
í SS-sveitum þýska hersins í síðari
heimsstyrjöld, hefur verið ákærður
fyrir aðild að
morðum á alls
3.681 fanga í
Auschwitz-Birke-
nau útrýmingar-
búðunum í Pól-
landi. Réttarhöld
yfir manninum,
sem nú er 95 ára
gamall, hefjast
29. febrúar nk.
Húbert hóf
störf sem sjúkraliði í búðunum 15.
ágúst 1944 og gegndi þeirri stöðu í
rétt um mánuð, eða til 14. september
sama ár. Á þeim tíma komu 14 járn-
brautarlestir með fanga í útrýming-
arbúðirnar og var hin síðar þekkta
Anna Frank þeirra á meðal. Flest-
allir sem í lestunum voru létust í gas-
klefum Auschwitz-Birkenau fljót-
lega eftir komu sína þangað.
Í ákæru saksóknara kemur fram
að Húbert hafi „vitað að Birkenau-
búðirnar væru útrýmingarbúðir“ og
hvernig þær væru uppbyggðar. „Í
ljósi vitneskju hans veitti hinn
ákærði starfsemi búðanna stuðning
sinn og átti hann því bæði hlut að og
flýtti fyrir útrýmingunni.“ Hefur
saksóknari því ákært Húbert fyrir
aðild sína að „grimmdarlegum morð-
um minnst 3.681“ fanga.
Réttarhöldin munu fara fram í
bænum Neubrandenburg í suðaust-
urhluta Þýskalands, en áfrýjunar-
dómstóll sneri nýverið við fyrri nið-
urstöðu dómstóla þess efnis að
Húbert væri ekki, sökum aldurs, fær
um að mæta fyrir dómara. Þá hafa
þýskir fjölmiðlar greint frá því að
Húbert þjáist nú af elliglöpum.
Ekki færri en 1,1 milljón
Auschwitz-búðirnar voru teknar í
notkun 1940. Talið er að ekki færri
en 1,1 milljón manna hafi verið myrt
þar og jafnvel 1,5 milljónir. Um 90%
fórnarlambanna hafi verið gyðingar,
sennilega um 960 þúsund manns.
Með yfir 3.600 líf
á samviskunni
Fyrrverandi sjúkraliði í Auschwitz
mun í næsta mánuði mæta fyrir dóm
AFP
Illska Hlið hinna alræmdu búða Auschwitz í Póllandi í apríl árið 1945.
Húbert Zafke
Lögreglan í
Þýskalandi hefur
handtekið karl-
mann, hælisleit-
anda frá Alsír,
sem grunaður er
um að hafa beitt
konu kynferðis-
legu ofbeldi á ný-
ársnótt í Köln. Er
þetta fyrsti maðurinn sem handtek-
inn er þar í borg vegna þeirra kyn-
ferðisbrota sem framin voru fyrir
utan aðalbrautarstöðina og dóm-
kirkjuna umrætt kvöld.
Alsírbúinn er 26 ára gamall og
var hann, samkvæmt fréttaveitu
AFP, handtekinn ásamt öðrum hæl-
isleitanda, sem einnig er frá Alsír
og er 22 ára gamall, í athvarfi fyrir
hælisleitendur. Er sá eldri grunað-
ur um að hafa káfað á konu á nýárs-
nótt og stolið af henni farsíma, en
sá yngri var handtekinn fyrir þjófn-
að. khj@mbl.is
ÞÝSKALAND
Tveir hælisleitendur
handteknir í Köln
Þremur Banda-
ríkjamönnum,
sem staddir voru
í íbúðarhúsi í
Bagdad í Írak,
var um helgina
rænt og er þeirra
nú leitað logandi
ljósi af öryggis-
sveitum. Frétta-
veita AFP greinir frá þessu.
„Þremur einstaklingum með rík-
isfang í Bandaríkjunum var rænt á
meðan þeir voru í Dura [hverfi í
suðurhluta Bagdad] ... inni í grun-
samlegri íbúð,“ hefur AFP eftir
talsmanni öryggissveita án þess að
veita frekari upplýsingar um íbúð-
ina. „Öryggissveitir leita þeirra.“
Ekki er vitað hver ber ábyrgð á
ráninu, en vopnaðar sveitir shíta-
múslíma hafa margsinnis gert árás-
ir á vændishús og vínveitingastaði
að undanförnu auk þess sem liðs-
menn Ríkis íslams hafa einnig stað-
ið fyrir mannránum. khj@mbl.is
BAGDAD Í ÍRAK
Þrír hurfu úr „grun-
samlegri íbúð“
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, er nú sagður bæði
„pirraður og reiður“ vegna birtingar
myndbandsupptöku sem sýnir tíu
bandaríska sjóliða, sem nýverið voru
teknir höndum af írönskum yfirvöld-
um, krjúpandi á hnjánum með hend-
ur á hnakka sér. Yfir þeim standa
svo þungvopnaðir íranskir hermenn.
„Ég varð mjög reiður, ég varð
mjög pirraður og reiður yfir því að
þetta skyldi birtast,“ sagði Kerry í
viðtali á sjónvarpsstöð CNN í
Bandaríkjunum, en það eru íranskir
hermenn eða menn úr sveitum Bylt-
ingarvarðar Írans sem ábyrgð bera á
birtingu myndbandsins, en ekki
stjórnvöld, að sögn fréttaveitu AFP.
„En ég er ekki að draga fjöður yfir
þetta, fyrir þessu er engin afsökun.
Okkar sjóliðar fóru því miður, og
óviljandi, inn fyrir lögsögu Írans,“
sagði Kerry ennfremur á CNN.
Skipin tvö sem sjóliðarnir voru um
borð í voru á siglingu á Persaflóa,
milli Kúveit og Bahrein, þegar vél
annars skipsins sýndi merki um bil-
un. Var því tekin ákvörðun um að
drepa á vélum beggja skipa meðan
viðgerð fór fram.
Þungvopnaðir hermenn
„Þetta stopp átti sér stað innan
lögsögu Írans. Það er þó ekki ljóst
hvort áhafnir hafa vitað staðsetningu
sína nákvæmlega. Á meðan skipin
voru stopp og áhafnir reyndu að
greina vélavandann komu herskip
Írana upp að þeim,“ segir í tilkynn-
ingu frá stjórn Bandaríkjahers.
Samkvæmt AFP sendi Íran fjögur
herskip á svæðið með þungvopnaða
hermenn sem tóku sjóliðana banda-
rísku höndum. khj@mbl.is
Myndband angrar
Kerry ráðherra
Sýnir tíu sjóliða krjúpandi á hnjánum