Morgunblaðið - 19.01.2016, Side 20

Morgunblaðið - 19.01.2016, Side 20
20 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 2016 ✝ Þór Halldórssonfæddist 15. októ- ber 1929 að Kórek- staðagerði í Hjalta- staðaþinghá á Fljótsdalshéraði. Hann lést 2. janúar 2016. Foreldrar hans voru Halldór Ein- arsson, f. 1891, d. 1969, bóndi og söðla- smiður, og Jóna Jónsdóttir, f. 1888, d. 1973, ljós- móðir og húsfreyja. Þór áttir tvo eldri bræður, þeir eru Einar, f. 1919, d. 1998, búfræðingur og seinna lögregluþjónn í Reykja- vík, og Óskar, f. 1921, d. 1983, lektor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands. Þór kvæntist Auði Ingólfs- dóttur 20. september 1958. Auð- ur fæddist 28. nóvember 1935 og lifir eiginmann sinn. Börn þeirra: 1. Guðlaug, f. 1959. Maki: Ingólfur Kristjánsson, f. 1959. Börn: Auður, f. 1986, og Kristján, f. 1989. 2. Jóna, f. 1965. Maki: Lars Peter Jensen, f. 1964. Börn: Hjálmar Þór, f. 1993, Ída Guðný, f. 1995, Odd- geir, f. 2000. 3. Bolli, f. 1966. Maki: Ásdís Hlökk Theodórs- dóttir, f. 1966. Börn: Þorvaldur, f. 1993, og Þórbergur f. 1999. 4. Hjalti Þór, f. 1976. Börn: Pjetur og þróaði starf deildarinnar í samræmi við það sem best tíðk- aðist í nágrannalöndum okkar. Dæmi um félags- og trún- aðarstörf: Þór stofnaði ásamt Alfreð Gíslasyni Öldrunar- fræðafélag Íslands 1974 og var formaður þess félags 1978-83. Í stjórn Sambands norræna öldr- unarfræðafélagsins (Nordisk Gerontologisk Förening) 1974- 96. Í undirbúningsnefnd að frumvarpi til laga um málefni aldraðra 1979. Í undirbúnings- nefnd 5. Norrænu ráðstefn- unnar í öldrunarfræðum 1983 og forseti 10. norrænu ráðstefn- unnar í öldrunarfræðum 1990 sem haldnar voru hér í Reykja- vík. Heiðursfélagi Öldruna- fræðafélags Íslands 1993. Tók þátt í stofnun Félags íslenskra öldrunarlækna og var fyrsti heiðursfélagi þess félags. Þór vann einnig að ýmsum fram- faramálum fyrir aldraðra í gegnum Rauða krossinn RK en hann sat í stjórn RK 1991-97 og var formaður Reykjavíkurdeild- ar RK á árunum 1993-2001. Þór átti sér fjölmörg áhuga- mál svo sem tónlist, menningu, útivist, ljósmyndun og ferðalög. Eftir starfslok gekk Þór til liðs við Harmonikkufélag Reykja- víkur og spilaði á fjölmörgum viðburðum, ýmist á vegum fé- lagsins eða eigin vegum. Þór verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag, 19. jan- úar 2016, kl. 13. Már, f. 2002, og Sigurbjörg Þóra, f. 2007. Fv. eigin- kona Hjalta og barnsmóðir: Björg Pjetursdóttir, f. 1971. Unnusta Hjalta: Margrét Erla Maack, f. 1984. Þór tók stúd- entspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1952 og kandidats- próf frá læknadeild Háskóla Ís- lands í júní 1960. Sérnám í Svíþjóð 1962-69. Þór reyndi fyrir sér í ýmsum greinum en tók að lokum stefn- una á nýrnalækningar í Lundi. Haustið 1968 kom Þór frá Lundi ásamt tækni- og hjúkrunarliði. Settu þau upp gervinýra á Land- spítalanum og voru fyrst til að veita þá meðferð (blóðskilun) hér á landi. Árið 1970 réði Þór sig sem yfirlækni á Sólvangi í Hafnarfirði. Vaknaði þá áhugi hans á öldrunarmálum hér á landi og fann að þar var mikið verk að vinna. Fór að sækja námskeið og ráðstefnur til út- landa í faginu. Þór vann að stofnun Öldrunarlækningar- deildar Landspítalans og varð fyrsti yfirlæknir hennar þegar hún tók til starfa að Hátúni 1975 Í dag fylgjum við Þór Hall- dórssyni, tengdaföður mínum, til grafar. Þór var, að segja má, maður þriggja alda. Þótt hann væri fæddur þegar komið var fram á þá tuttugustu fæddist hann inn í nítjándu aldar aðstæður. Fyrstu ár ævinnar bjó hann með fjöl- skyldu sinni í torfbæ austur í Hjaltastaðaþinghá, þar sem um aðdrætti og búskaparhætti var um margt líkt og verið hafði um langan aldur og tæknibylting og nútími að því er virðist ekki al- veg í augsýn. Þessi sveit, Hjaltastaða- þingháin með sínar blár og sam- félag fólks og drauga, átti alltaf vísan stað í huga og hjarta Þórs. Alla tíð var stutt í sögur og vísur úr sveitinni og tilvitnanir í hnytt- in tilsvör kalla og kellinga. Í huga mínum eru myndir teknar í vinnuferð í Kóreks- staðagerði sumarið 2012. Þar er Þór í essinu sínu við það sem hann unni mest. Sem „Lilli í Gerði“ við söng og leik í stofunni í Gerði og á rölti með barnabörn- um um heimahagana, þyljandi sögur um huldufólk og drauga. Heilabilun er grimmur sjúk- dómur. Hún rænir fólk minni, hugsun og sjálfi. En eitt tókst henni ekki að taka frá Þór og það var músíkin. Sem barn lék Þór ýmist á fiðlu eða harmonikku undir dansi á böllum í sveitinni. Síðar tók hann varla þátt í mannfagnaði án þess að standa fyrir fjöldasöng og undirspili á píanó eða harmon- ikku. Kominn á efri ár stytti hann félögum sínum á dagvist- inni stundir með harmonikku- leik. Og alveg fram undir það allra síðasta gat hann enn sest við píanóið, orgelið eða með harmonikkuna og spilað eins og ekkert væri, lag eftir lag. Hvíl í friði og músík handan- heimsins. Ásdís Hlökk Theódórsdóttir. Afi okkar átti mörg nöfn. Þann 15. október árið 1929 fæddist hann í litlum torfbæ þar sem hlátur, grátur, söngur og fiðluleikur ómaði um dimma, þrönga ganga sem lyktuðu af reyk og jörð og sauðfé. Þá var hann Lilli í Gerði. Hann flutti til Reykjavíkur eftir stríð. Hann þroskaðist, dafnaði og gerði mistök, eins og ungt fólk gerir. Hann gekk menntaveginn og varð læknir, byggði upp þjón- ustu við aldraða og hjálpaði fólki. Þá var hann Þór Halldórsson læknir. Hann varð ástfanginn eins og við verðum flest. Hann kvæntist Auði Ingólfsdóttur og eignaðist með henni börn. Þá var hann pabbi. Börnin uxu úr grasi og eign- uðust sjálf börn, eins og gengur. Hann spilaði á píanó og orgel fyrir okkur krakkana. Hann söng lög, fór með vísur og sagði sögur. Þá var hann afi. Hann fór loks á eftirlaun 75 ára að aldri og spilaði á harm- onikku „fyrir gamla fólkið“. Hann hraut hástöfum undir dag- blaði uppi í sófa og sat og hlust- aði með okkur á tónlist á meðan við lærðum. Þá varð hann aftur Lilli í Gerði. Svo lést hann þann 2. janúar 2016. Hver er hann nú? Það er ekki okkar að vita. En þegar manneskja hefur kvatt okkur fyrir fullt og allt, hvað skilur hún þá eftir sig? Hvaða spor mörkum við okkur í heiminum? Þegar allt kemur til alls þá er það eina sem við eigum, það eina sem raunverulega skiptir máli fólkið sem okkur þykir vænt um. Ég og þú, hann, hún og þau. Það eina sem við höfum er hvert ann- að. Gildi ævi okkar mælist í þeim minningum sem við merkjum í vitund hvert annars. Þór Hall- dórsson, Lilli í Gerði, pabbi eða afi, hver sem hann var fyrir þér, mun skilja eftir sig djúp spor hjá okkur öllum sem þekktum hann. Hjálmar Þór Jensen. Þó að við systkinin sæjum Þór föðurbróður sjaldan framan af var ýmislegt sem minnti á þenn- an fjarlæga frænda og litaði til- veruna svo um munaði. Það er til dæmis erfitt að ímynda sér upp- vaxtarárin án plötuspilarans sem Þór kom í fóstur hjá okkur – því hann átti plötuspilara áður en slík tæki urðu algeng. Hvernig skyldi sá gripur hafa orkað á hann í fyrsta sinn, sveitadrenginn sem tólf ára var farinn að spila fyrir dansi í sinni afskekktu sveit? Með spilaranum fylgdu fáein- ar plötur, fiðlukonsert Mendels- sohns, Mozart – fyrsta viðkynn- ing við strengjakvintettana, hughrifin ógleymanleg. Vistun grammófónsins varð einnig til þess að Þór sendi stundum plöt- ur í jólagjöf; ein þeirra var með Osmond Brothers, önnur með hinum sænsku Hounds, þegar frænda hafði borist njósn um að ungviðinu hefði þótt Osmond- drengirnir eitthvað hallærisleg- ir. Miðað við slíkar yfirlýsingar hljómuðu þeir þó grunsamlega oft. Í huga okkar systkina tengd- ist Þór einhverri óljósri exótík, hann var farinn til Svíþjóðar í sérnám þegar við vorum peð, við sáum hann nær eingöngu á há- tíðum. Þessi „útlenski“ frændi – notre oncle – var útiteknari en við áttum að venjast, alltaf stutt í brosið; hann var dálítið píreygur, það hlaut að stafa af sólinni í út- löndum sem fjölskyldumyndirn- ar vitnuðu um – sumarleyfi á strönd, sem var hvít – því hann Þór átti vitanlega ljósmyndag- ræjur og sýndi stundum „slæds“. Þetta var bjartsýni áratugur- inn, Haukur Morthens söng um lífið í síldinni og svo kom bítla- æðið og brátt fóru tveggja laga poppplötur að rata á fóninn góða. Kynslóð foreldra okkar kepptist við að koma yfir sig þaki. „Fok- helt“ var orð sem flögraði í loft- inu á þessum árum án þess að við krakkarnir veittum því sérstaka athygli, en þegar Þór flutti heim með fjölskylduna, alkominn, varð merking þess jafn áþreif- anleg og litla steypuhrærivélin sem gekk þegar múrað var í Brúnalandi. Þar innandyra ríkti smört skandínavísk stemning, en ljós viður var nýnæmi í tek- kvæddri Reykjavík þessa tíma. Eftir því sem við stækkuðum varð það keppikefli að læra eitt- hvað af þeim aragrúa söngtexta sem kváðu við á þorrablótum fjölskyldunnar, í stórafmælum og stúdentsveislum – og við svo til öll önnur tækifæri, því ef Þór var mættur var alltaf sungið. Þar skilaði sér með rentu heitstreng- ing ömmu Jónu á sínum tíma, þegar þau afi hófu búskap í Gerði: á nýja heimilinu skyldi sungið og jafnvel leikið á hljóð- færi. Ein eftirminnileg mynd af Þór, þetta er áður en hann hvarf okkur inn í „ellinnar mildu þoku“: Það er verið að vígja nýtt gólf í gamla fjósinu í Gerði, búið að slá upp balli, Þór sestur með harmónikkuna. Innan skamms birtist Ingvi á Svínafelli með nikkuna sína og tyllir sér andspænis Þór. Þarna er engum orðum eytt, þegar einu lagi sleppir hefst nýtt án þess að bera þurfi saman bækur, einbeit- ingin algjör. Dansinn dunar, sveitungarnir tveir eru kaf- Þór Halldórsson Á Laugarvatni hefur íþrótta- fræðinám farið fram frá árinu 1932. Þá stofnaði Björn Jakobsson íþróttaskóla sem var forveri Íþróttakennara- skóla Íslands sem var stofnaður 1943. Árið 1998 var skólinn sam- einaður Kennaraháskóla Ís- lands sem varð síðan hluti af menntavísindasviði Háskóla Íslands 2008. Í gegnum allar þessar breytingar hefur skól- inn alltaf starfað á Laugar- vatni og útskrifað fjöldann allan af öflugum einstakling- um sem hafa sett svip sinn á þjóðfélagið. Aðsókn að náminu hefur farið minnkandi síðustu ár eins og í kennaranámi al- mennt en lenging námsins úr þremur í fimm ár vegur þar eflaust þungt. Á síðasta ári lét Háskóli Íslands gera úttekt á íþrótta- og heilsufræðinámi skólans á Laugarvatni. Af- raksturinn var tvær skýrslur og nefndist fyrri skýrslan „Sóknarfæri í námi í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Ís- lands“ og seinni skýrslan „Valkostir um framtíð grunn- náms í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands“. Nokkuð hallar á fagleg vinnubrögð í fyrri skýrslunni en vissulega segja niðurstöður þeirra beggja að ástæða sé til að- gerða. Við erum sífellt að verða meðvitaðar um mikilvægi góðrar heilsu. Hver rann- sóknin á fætur annarri stað- festir að heilbrigði hvers ein- staklings er þjóðfélaginu gífurlega verðmætt. Það ætti því að vera eitt af forgangs- verkefnum okkar að mennta öfluga einstaklinga á þessu sviði. Nú er sókn- arfæri fyrir Háskóla Ís- lands sem er Háskóli allra landsmanna. Það þarf að markaðssetja nýtt áhugavert nám í íþrótta- og heilsufræði á Laugarvatni, fjölga náms- leiðum, bjóða upp á endur- menntun og jafnvel styttri námsleiðir. Mikil tækifæri fel- ast í staðsetningu námsins á Laugarvatni og mætti t.d. nýta mikla fjölgun ferða- manna hér á landi með því að efla nám í heilsutengdri ferðaþjónustu og útivist en um 80% erlendra ferðamanna fara hinn klassíska Gullna hring og þar með í gegnum Laugarvatn. Líklegt er að eft- irspurn eftir vel menntuðu og sérhæfðu starfsfólki í þessum geira eigi eftir að aukast mik- ið á næstu árum og nálægðin við fjölbreytta náttúru gerir Laugarvatn að tilvöldum stað fyrir slíkt nám. Í dag starfar metnaðar- fullur hópur kennara á Laug- arvatni og hefur byggt um vandað nám. Þeir sinna rann- sóknarstarfi sem er eitt það öflugasta meðal deilda há- skólans og sést best á þeim rannsóknarstyrkjum sem þeir hafa hlotið. Þennan mannauð þarf að nýta í þeim sóknarfærum sem eru til staðar með áframhaldandi starfsemi á Laugarvatni þar sem öll aðstaða er í boði. Styrkleikar svæðisins og tækifærin sem felast í íþrótta- og heilsufræðinámi á Laug- arvatni eru ótvíræðir. Með skýrri stefnumörkun er vel hægt að byggja upp öflugt og eftirsóknarvert nám á Laug- arvatni. Ein grunnstoðin í ís- lensku þjóðfélagi er heilsa og það ætti að vera spennandi kostur fyrir ungt fólk að sækja nám á Laugarvatn þar sem er gott mannlíf, leikskóli, grunnskóli, framhaldsskóli, og mikil náttúrufegurð. Nú þurfa þingmenn Suður- kjördæmis hvar í flokki sem þeir standa að snúa bökum saman og standa vörð um starfsemi Háskóla Íslands á Laugarvatni. Ef setja þarf aukið fjármagn til að byggja upp og laga aðstöðuna á Laugarvatni þá þarf að ganga í það verk. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna er tal- að um mikilvægi þess að stuðlað verði að fjölbreyttum atvinnutækifærum um allt land, m.a. með dreifingu op- inberra starfa. Það er ekki í anda stjórnarsáttmálans að færa opinber störf frá lands- byggðinni til höfuðborgar- innar. Að lokum hvet ég stjórn- endur Háskóla Íslands til halda áfram starfsemi íþrótta- og heilsufræðináms á Laugarvatni og leggja metn- að sinn í að endurskipuleggja nám í íþrótta- og heilsufræði og fara í öflugt markaðs- og kynningarstarf í framhaldinu. Sóknarfæri á Laugarvatni Eftir Helga Kjartansson Helgi Kjartansson » Styrkleikar svæðisins og tækifærin sem fel- ast í íþrótta- og heilsufræðinámi á Laugarvatni eru ótvíræðir. Höfundur er oddviti Bláskógabyggðar. Tölum saman og knúsumst þótt ólík séum og svo ósam- mála um margt. Við erum öll á sömu leið og þurfum hvert á öðru að halda. Verum uppörv- andi og hvetj- andi. Leitumst við að laða það besta fram í eigin fari og sam- ferðamanna okkar. Það er mín skoðun að þeim farnast einfaldlega best, þeg- ar til lengri tíma er litið, sem temja sér auðmýkt og þjón- ustulund. Hugarfar gjafmildi, fyrirgefningar og þakklætis. Þeim sem leitast við að hrósa, vera jákvæðir, uppörvandi og hvetjandi. Örlæti hjartans Veitum af örlæti hinum fegurstu gjöfum úr sálarsjóði hjartans svo straumar hins lífgefandi anda finni sér far- veg og berist frá hjarta til hjarta. Látum friðinn flæða líkt og fallvatn, fullt af ferskum, nærandi kærleika sem gefur svalandi andblæ, vekur, lífgar og nærir svo við hressumst og getum horft með þakklæti til framtíðar. Kærleika fylgir ábyrgð Mikill munur er á því hvort kærleikurinn er borinn á borð með virðingu og vingjarnlegri nálgun að hroka og yfirlæti. Gleymum ekki að sönnum kærleika fylgir líka ábyrgð. Því er svo mik- ilvægt að temja sér að þakka fyr- ir daginn að kvöldi, og fyrir hvíld næturinnar að morgni, fá að vakna inn í enn einn daginn. Þakka fyrir matinn við kvöld- verðarborðið með fjölskyld- unni. Þakka fyrir sig og sína, líf og heilsu og bara það að fá að vera með og þurfa ekki að eiga síðasta orðið í öllum sam- skiptum og ekki heldur um það hvað um okkur verði. Allt er í Guðs hendi. Þess Guðs sem sagði: Ég er veg- urinn, sannleikurnn og lífið, enginn kemur til föðurins nema fyrir mig. Treystum þeim orðum, því hann, frels- arinn eini og eilífi Jesús Kristur, hefur heitið því að allt muni fara vel að lokum. Treystum náð hans og mis- kunn. Við höfum nákvæmlega engu að tapa, en sannarlega allt að vinna. Hlustum, sýnum skilning og virðingu Flestir ef ekki allir þrá að fá að njóta blessunar í lífinu. Ef þú vilt njóta blessunar skaltu leitast við að vera til blessunar. Með því að bera raunverulega umhyggju fyrir samferðafólki þínu. Með um- vefjandi og hlýlegu viðmóti. Með jákvæðri og uppbygg- ilegri gagnrýni. Með því að hlusta, sýna skilning, uppörva og gleðja, styðja og hvetja. Þeir sem hugsa ávallt fyrst og fremst um eigin hag og láta allt snúast um eigin þarf- ir verða ekki til blessunar í umhverfi sínu. Þeir sem alltaf eru neikvæðir, þurfa að toppa allt sem sagt er eða gert, til- búnir að setja út á allt og alla og tala öðruvísi um fólk en það kemur fram við þá, verða ekki heldur til blessunar. Þeir sem eru sjálfselskir, sérhlífn- ir og sjálfumglaðir, sífellt nei- kvæðir, með allt á hornum sér. Þess vegna er svo mikil- vægt að ganga út í daginn með því meðvitaða hugarfari að ætla sér að verða til bless- unar. Spurning dagsins: Hvað get ég gert í dag til þess að fólkinu mínu og samferðafólki almennt geti liðið sem best? Með þakklæti, friðar- og kærleikskveðju! Hugarfarið skiptir máli Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Veljum að vera til blessunar. – Hvað get ég gert í dag til þess að fólk- inu mínu og sam- ferðafólki almennt geti liðið sem best? Höfundur er ljóðskáld og rit- höfundur og aðdáandi lífsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.