Morgunblaðið - 19.01.2016, Side 27
gjöf hjá Mannafli (sem síðar varð
Capacent) 2000-2004, var starfs-
manna- og stjórnunarráðgjafi hjá
Capacent 2004-2006 og mannauðs-
stjóri Skýrr 2006-2011. Í dag gegn-
ir Ingibjörg starfi mannauðsstjóra
hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæð-
isins bs.
Ingibjörg er varaþingmaður
Reykjavíkurkjördæmis norður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og hefur jafn-
framt gegnt ýmsum trúnaðarstörf-
um innan hans. Hún situr í mið-
stjórn flokksins, var lengi í stjórn
hverfafélags sjálfstæðismanna í
Grafarvogi og hefur verið fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í ýmsum
nefndum og ráðum á vegum borg-
arinnar, m.a. varamaður í velferð-
arráði og mannréttindaráði, fulltrúi
flokksins í starfshópi um mannrétt-
indi eldri borgara og skipulag
Gufunessvæðisins, situr í fulltrúa-
ráði flokksins og var kosin í
fræðslunefnd hans.
Ingibjörg sat einnig í Hverfisráði
Grafarvogs um árabil. Hún var í
námsnefnd í MBA-náminu, stýrði
um tíma mannauðshópi Stjórnvísis
og hefur í gegnum tíðina ritað ýms-
ar greinar í blöð og tímarit um
stjórnun og starfsmannamál og
haldið erindi um mannauðsmál.
Ingibjörg hefur auk þess setið í
stjórnum ýmissa félagasamtaka og
stofnana. Hún var lengi stjórnar-
maður í Styrktarfélagi krabba-
meinssjúkra barna, sat um árabil í
aðalstjórn íþróttafélagsins Fjölnis
og hlaut silfurmerki félagsins, sat í
stjórn fimleikadeildar Fjölnis, í
stjórn Vímulausrar æsku og í
stjórn hjúkrunarheimilisins Skógar-
bæjar. Hún situr nú í trúnaðarráði
VR.
,,Helstu áhugamál okkar hjóna
eru gönguferðir um landið. Við
reynum að fara í eina langa göngu-
ferð á sumrin með frábærum
gönguhópi sem varð til fyrir áratug
er við stelpurnar voru saman í
MBA-námi við HÍ. Í fyrra gekk
hópurin Hellismannaleið sem kom
okkur skemmtilega á óvart.
Við hjónin förum svo auk þess í
styttri gönguferðir með börnunum.
Einnig eru borgarferðir ofarlega á
lista hjá okkur hjónum en við höf-
um gert tölvert af því að heimsækja
skemmtilegar borgir erlendis og
reynum helst að fara aldrei tvisvar
á sama stað. Í fyrra heimsóttum við
Melbourne í Ástralíu og Moskvu
árið áður. Á meðal borga sem mig
langar að heimsækja eru Seúl í
Suður-Kóreu og Hanoí i Víetnam.“
Fjölskylda
Ingibjörg giftist 15.6. 1991, Lár-
usi Elíassyni, f. 20.5. 1959, fram-
kvæmdastjóra. Hann er sonur Elí-
asar Jónssonar, fyrrv. lögreglu-
manns á Keflavíkurflugvelli, og
k.h., Oddbjargar Ögmundsdóttur
útibússtjóra.
Börn Ingibjargar og Lárusar eru
Alexander, f. 3.4. 1992, nemi í tölv-
unarfræði; Atli Geir, f. 26.6. 1995,
sagnfræðinemi, og Aðalheiður, f.
21.9. 1997, framhaldsskólanemi.
Bróðir Ingibjargar er Aðalsteinn
Óðinsson, f. 19.02. 1965, skurðlækn-
ir í Noregi.
Foreldrar Ingibjargar eru Óðinn
Geirsson, f. 7.1. 1943, prentari og
atvinnurekandi í Reykjavík, og Að-
alheiður Maack, f. 5.9. 1944, at-
vinnurekandi í Reykjavík.
Úr frændgarði Ingibjargar Óðinsdóttur
Ingibjörg
Óðinsdóttir
Sigríður Bjarnadóttir
húsfreyja í Rvík
Þórhallur Ólafsson
smjörlíkisgerðarmaður í Smára í Rvík
Jarþrúður Þórhallsdóttir
húsfreyja í Rvík
Aðalsteinn P. Maack
fyrrv. forstm. Byggingaeftirlits ríkisins í Rvík
Aðalheiður Maack
atvinnurekandi í Rvík
Hallfríður Hallgrímsdóttir
húsfreyja í Rvík
Örlygur Geirsson
fyrrv. skrifstofustj. í
menntamálaráðuneytinu
Pétur Andreas
Maack fyrrv.
varaform.VR
Pétur K. Maack fyrrv. flugmálastjóri
Viggó Einar Maack skipaverkfræðingur
Kristján Maack ljósmyndari
og formaður Hjálparsveitar
skáta í Kópavogi
Aðalbjörg Stefánsdóttir
húsfreyja á Seyðisfirði
Guðmundur Þorbjarnarson
múraram. á Seyðisfirði
Ingibjörg Guðmundsdóttir
verslunarm. í Rvík
Geir Gunnarsson
ritstjóri í Rvík
Óðinn Geirsson
prentari og atvinnu-
rekandi í Rvík
Sigríður Siggeirsdóttir
skrifstofum. í Rvík
Gunnar Sigurðsson
frá Selalæk, alþm.
Pétur Andreas Maack
skipstj. í Rvík, fórst með togaranum
Max Pemberton 1944
María B.J. Maack hjúkrunarkona og forstöðuk. á Farsóttarheimilinu í Reykjavík
Afmælisbarnið Ingibjörg á Hellis-
mannaleið með hluta gönguhópsins.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 2016
Sigurður fæddist á Stakkhamrií Miklaholtshreppi á Snæ-fellsnesi 19.1. 1907, sonur Óla
Jóns Jónsson, bónda og oddvita þar,
og Þórunnar Ingibjargar Sigurð-
ardóttur húsfreyju.
Óli Jón var sonur Jóns Jónssonar,
bónda í Borgarholti, bróður Krist-
ínar, langömmu Ólafs Thors for-
sætisráðherra. Önnur systir Jóns
var Kristín, langamma Ingunnar,
móður Sturlaugs H. Böðvarssonar á
Akranesi. Þórunn var dóttir Sig-
urðar, bónda á Skeggstöðum Sig-
urðssonar, og Margrétar Þorsteins-
dóttur, bónda á Æsustöðum
Ólafssonar, bróður Guðmundar, afa
Ólafs Davíðssonar þjóðsagnasafnara
og langafa Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi.
Meðal systkina Sigurðar Ólasonar
voru Ágúst, afi Sturlu Böðvarssonar,
fyrrv. ráðherra, og Tómas, afi Sturlu
Tómasar Gunnarssonar, kvik-
myndaleikstjóra í Kanada.
Fyrri kona Sigurðar var Ragn-
hildur I.J. Ásgeirsdóttir kennari en
þau skildu.
Síðari kona Sigurðar varð Unnur
Kolbeinsdóttir, fyrrv. kennari og
bókavörður og eru börn þeirra Kol-
beinn flugstjóri; Þórunn leikstjóri og
listrænn stjórnandi Listahátíðar í
Reykjavík um árabil; Jón, fyrrv. ráð-
herra og formaður Framsóknar-
flokksins; Guðbjartur prentfræð-
ingur; Guðrún Sigríður fram-
kvæmdastjóri, og Katrín mynd-
listarmaður.
Sigurður lauk stúdentsprófi 1928,
embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1933
og öðlaðist hrl.-réttindi 1941.
Sigurður var fulltrúi hjá ríkisféh-
irði 1933-39, settur ríkisféhirðir
1937, fulltrúi í fjármálaráðuneytinu
1939-72 og starfrækti jafnhliða lög-
mannsstofu í Reykjavík á árunum
1935-87, ýmist einn eða í félagi við
aðra, s.s. Þorvald Lúðvíksson hrl. á
árunum 1958-61.
Sigurður var með allra skemmti-
legustu mönnum, hafsjór af fróðleik,
skrifaði umtalsvert um sagnfræði-
legt efni og bækur um þjóðlegan
fróðleik.
Sigurður lést 18.1. 1988.
Merkir Íslendingar
Sigurður
E. Ólason
90 ára
Áslaug Zoëga
Kristín Ólafsdóttir
85 ára
Guðmundur Snorrason
Hrafnhildur Ágústsdóttir
Margrét Helga
Aðalsteinsdóttir
Þýðrún Pálsdóttir
80 ára
Anna Guðrún Hannesdóttir
Scheving
Eggert Þorfinnsson
75 ára
Ásta Kristjánsdóttir
Eiríkur Hjartarson
Ester Bára
Sigurðardóttir
Guðmundur Gíslason
Guðríður Fjóla Ólafsdóttir
Jóhannes Gíslason
Svanhvít Aðalsteinsdóttir
Þorbjörg Jakobína
Magnúsdóttir
70 ára
Barbara Haage
Björn Sigurpálsson
Gunnar Kristján
Aðalsteinsson
Ólöf Karlsdóttir
60 ára
Ásdís Óskarsdóttir
Vatnsdal
Garðar Agnar Garðarsson
Gísli Sverrir Halldórsson
Jón Gunnlaugur Jónasson
Pétur Ólafsson
Sigurður Pétur Jónsson
Sigurður Rúnar Ívarsson
Þorvaldur Þór Björnsson
50 ára
Anja Huber
Arnar Þór Sveinsson
Brynjar Guðbjartsson
Ólafur Þ. Kristjánsson
Sigrún Sigurðardóttir
Tryggvi Haraldsson
Þórný Hlynsdóttir
40 ára
Anna Sigríður
Gunnarsdóttir
Ásgeir Örvar Stefánsson
Birna Ingibjörg
Valgarðsdóttir
Bjarni Gylfason
Carolin Ursula Kraus
Erla Ólafsdóttir
Ingibjörg Sunna
Vilhjálmsdóttir
Jóhanna Másdóttir
Kjartan Jóhannesson
Marek Ryszard Wróblewski
Piotr Jeziorkowski
Róbert Anni Gunnarsson
Steinþór Carl Karlsson
Witold Leon Dowsin
30 ára
Giedrius Pranckus
Guðni Kárason
Margrét Edda Yngvadóttir
Páll Bragi Sigurðsson
Til hamingju með daginn
30 ára Rúnar ólst upp á
Ísafirði, býr þar, lauk
sveinsprófi í rafvirkjun frá
VMA og starfar við raf-
virkjun.
Maki: Kolbrún Fjóla Arn-
arsdóttir, f. 1981, íþrótta-
kennari.
Foreldrar: Páll Hólm, f.
1954, d. 2014, húsa-
gagnasmiður og sund-
laugastarfsmaður á Ísa-
firði, og Guðrún
Rósinbergsdóttir, f. 1959,
sjúkraliði á Ísafirði.
Rúnar Páll
Hólm
30 ára Oddur ólst upp á
Akureyri, býr þar, lauk far-
mannaprófi frá Stýri-
mannaskólanum í Reykja-
vík 2010 og er fyrsti
stýrimaður á Björgvini EA.
Kærasta: Andrea Diljá
Ólafsdóttir, f. 1982, MEd-
nemi við HA.
Börn: Katrín Salka, f.
2008, og Brynjólfur
Hólmar, f. 2012.
Foreldrar: Brynjólfur
Oddsson, f. 1955, og
Sandra Barbosa, f. 1963.
Oddur Jóhann
Brynjólfsson
30 ára Heiðrún ólst upp í
Kópavogi, er búsett þar,
lauk BS-prófi frá HÍ 2012
og er nú í fæðingarorlofi.
Maki: Erlingur Ingason, f.
1981, bifreiðastjóri og frí-
stundaleiðbeinandi í
Kópavogi.
Sonur: Lúkas Atli, f.
2015.
Foreldrar: Hafþór Krist-
jánsson, f. 1957, rafvirki
og vélavirki hjá Orkuveit-
unni, og Þórunn Páls-
dóttir, f. 1960, tölvunarfr..
Heiðrún
Hafþórsdóttir
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón