Morgunblaðið - 05.03.2016, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016
Eggert Haukdal, fyrr-
verandi alþingismaður
og oddviti, andaðist á
Landspítalanum mið-
vikudaginn 2. mars sl.
Hann var á 83. aldurs-
ári þegar hann lést.
Eggert fæddist í
Flatey á Breiðafirði
26. apríl 1933. Hann
var sonur hjónanna
séra Sigurðar S.
Haukdal, prófasts í
Flatey og síðar að
Bergþórshvoli í Land-
eyjum, og konu hans
Benediktu Eggerts-
dóttur Haukdal.
Eggert ólst upp í Flatey og síðar
á Bergþórshvoli. Hann lauk bú-
fræðiprófi frá Bændaskólanum á
Hvanneyri árið 1953. Eggert varð
bóndi á Bergþórshvoli 1955 og bjó
í félagsbúi með foreldrum sínum til
1973.
Eggert var mikill félagsmála-
maður. Hann var m.a. í stjórn Hér-
aðssambandsins Skarphéðins 1961-
1972. Formaður Búnaðarfélags
Vestur-Landeyja 1970-1993. Hann
sat um tíma í fulltrúaráði Bruna-
bótafélags Íslands. Eggert var for-
maður Sjálfstæðisfélags Rang-
æinga 1970-1978 og í
kjördæmisráði Sjálf-
stæðisflokksins í Suð-
urlandskjördæmi frá
1959. Hann sat í
hreppsnefnd Vestur-
Landeyjahrepps og
varð oddviti hennar
árið 1970. Þá var
Eggert sýslunefnd-
armaður 1974-1988 og
sat í héraðsnefnd frá
1988. Hann átti sæti í
stjórn Fram-
kvæmdastofnunar
ríkisins 1980-1985,
þar af formaður 1980-
1983 og sat í stjórn
Byggðastofnunar 1985-1987. Einn-
ig sat Eggert í stjórn Þríhyrnings
1988-1991 og í stjórn Hafnar-
Þríhyrnings hf. frá 1991. Hann átti
og sæti í stjórn Fóðurblöndunnar
hf. um tíma.
Eggert var alþingismaður Suð-
urlands 1978-1995. Hann sat á
þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn en
var utan flokka 1979-1980. Eggert
var meðal annars formaður at-
vinnumálanefndar Alþingis um
tíma.
Sambýliskona Eggerts til 30 ára
var Guðrún Bogadóttir. Dóttir
Eggerts er Magnúsína Ósk og son-
ur hennar er Eyþór Lárusson.
Andlát
Eggert Haukdal,
fyrrv. alþingismaður
- hin heimsþekktuBeta verkfæri og fyrirtækjavörur
fást núáhagstæðu verði hjá Iðnvélum
Þú getur treyst Beta
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
DIMMALIMM
Full búð af
nýjum vörum
Mikið úrval af
Páskagjöfum
Afmælisgjöfum
Sængurgjöfum
Skírnargjöfum
www.dimmalimmreykjavik.is
Kjóll 5.595.-
Peysa 4.895.-
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það eru allir að fiska og búið að
vera mjög gott í öll veiðarfæri. Þetta
er stór og fallegur þorskur,“ sagði
Þórður Björnsson, hafnarvörður í
Ólafsvíkurhöfn. „Það hefur verið
miklu betra veður en í fyrra og
miklu fleiri róðrardagar nú. Það og
meiri fiskgengd skýrir þennan
aukna afla.“
Sannkölluð vertíðarstemning ríkir
nú í Ólafsvík og víðar á Snæfellsnesi.
Bátar koma drekkhlaðnir að landi
með rígaþorsk og fiska vel hvort
sem er í net eða dragnót. Það hefur
líka fiskast vel á línu en aflinn á hana
verið sveiflukenndari.
Alfons Finnsson fréttaritari sagði
að dragnótabátarnir hefðu fiskað
ævintýralega mikið. Sveinbjörn Jak-
obsson SH fékk risastórt hal á
þriðjudaginn var. Aflanum var land-
að blóðguðum og óslægðum og vigt-
aði 40 tonn á hafnarvoginni í Ólafs-
vík. Skipverjar voru fimm stundir að
blóðga fiskinn.
„Þetta er svakalega mikill afli í
einu hali. Hann náði einhvernveginn
að koma þessu um borð. Það er erfitt
að fá svona stórt hal,“ sagði Þórður
hafnarvörður. Steinunn SH er líka
að mokfiska í dragnótina og fékk 51
tonn á þriðjudaginn og 47 tonn á
miðvikudag.
Netabáturinn Bárður SH hefur
mokfiskað síðan í janúar og fengið
upp í 20 tonn í róðri í aðeins 20 net.
Pétur Pétursson eldri er skipstjóri
og rær við þriðja mann. Katrín SH,
sem er eins og Bárður SH, hefur
einnig fiskað mjög vel.
Breytist þegar loðnan kemur
Sumt af aflanum fer til vinnslu í
Ólafsvík, annað á fiskmarkað og svo
er sumu ekið í burtu. „Mikið af
þorski fer í saltfiskvinnslu hjá Fisk-
verkuninni Valafelli hér í Ólafsvík,“
sagði Þórður. „Það eru bátar í bein-
um viðskiptum við fyrirtæki fyrir
sunnan og afla þeirra er ekið þang-
að.“
Margir línubátar róa frá Ólafsvík
og eru þeir yfirleitt með landbeitta
línu. Þórður sagði að loðnan væri á
hraðri leið vestur með landinu og
kæmi fljótlega fyrir Snæfellsnes.
Búast má við að línufiskiríið detti
niður þegar loðnan kemur. Meðan
svo stendur á hafa línubátarnir að
vestan oft farið suður fyrir land og
fiskað þar um tíma.
Sannkölluð vertíðar-
stemning í Ólafsvík
Það mokfiskast í net og dragnót við Snæfellsnes
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Mokfiskirí Pétur Pétursson, skipstjóri á Bárði SH, var að landa vænum
þorski í Ólafsvík í gær. Sannkölluð vertíðarstemning er víða á Snæfellsnesi.
„Það er búin að vera mokveiði síðan á áramótum, sérstaklega í febrúar.
Fiskurinn er mjög vænn,“ sagði Pétur Pétursson, skipstjóri á Bárði SH.
Þeir eru búnir að landa 581 tonni af óslægðu frá áramótum. Þar af 562
tonnum af þorski. Aflinn í febrúar var 346 tonn, samkvæmt upplýs-
ingum frá Fiskmarkaði Íslands. Þrír eru í áhöfn Bárðar.
Þeir hafa dregið 2-4 trossur undanfarið. Í hverri trossu eru 10 til 15
net. Yfirleitt hefur verið látið liggja yfir nóttina. Þegar loðnan kemur
verður hægt að leggja að morgni og draga eftir 2-3 tíma.
„Veðrið nú er algjör kúvending frá í fyrra þegar var stöðug brælutíð.
Það hefur verið mjög hagstætt sjóveður frá áramótum og einmuna blíða
marga daga í röð í febrúar,“ sagði Pétur. Það gengur hratt á kvótann
þegar svo vel aflast. „Ég hef fulla trú á að forstjóri Hafrannsóknastofn-
unar endi með stæl og bæti verulega við kvótann!“
„Mokveiði síðan á áramótum“
BÁRÐUR SH HEFUR LANDAÐ 581 TONNI FRÁ ÁRAMÓTUM
„Ef einhvers staðar er hægt að tala
um umhverfissóðaskap þá er það á
gervigrasvöllum barnanna okkar í
dag. Í dekk er sett efni til þess að
gefa þeim eiginleika sem eru óþarfir
á gervigrasvelli. Loks er sett í dekk-
in sót sem lætur börnin okkar líta út
eins og námugraftrarmenn,“ segir í
greinargerð sem hópur foreldra hef-
ur sent Alþingi. Hópurinn hefur bar-
ist fyrir því að Reykjavíkurborg
skipti um undirlag á gervigrasvöll-
um þar sem notast er við dekkjakurl.
Talið krabbameinsvaldandi
Alþingi óskaði eftir greinargerð-
inni vegna þingsályktunartillögu
sem lögð var fram á síðasta ári um að
umhverfis- og auðlindaráðuneytið
setji bann við notkun gúmmíkurls úr
dekkjum á leik- og íþróttavöllum og
geri áætlun um að skipta því út fyrir
hættuminni efni.
Í greinargerðinni kemur fram að
sótið í dekkjakurlinu sé talið krabba-
beinsvaldandi. Vísað er til upplýs-
inga frá alþjóðlegu krabbameins-
rannsóknarstofnuninni Inter-
national Agency for Research on
Cancer.
Börnin eins og
námaverkamenn
Greinargerð um kurlið til Alþingis
Morgunblaðið/Ómar
Æfing Margir foreldrar barna sem
æfa á gervigrasi óttast afleiðingar.