Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 33

Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 33
HönnunarMars DesignMarch Reykjavík Á DesignTalks skoðum við hönnun sem lykilþátt í nýsköpun og skapandi stjórnun, í viðskiptum, mótun stjórnkerfa og sem leið til bættra lífsskilyrða og sjálfbærrar framtíðar.Harpa, Sifurberg, 10. mars, kl. 9.00-16:30 MARIA GIUDICE Maria hefur yfir 25 ára reynslu af stjórnunarstörfum í hönnun og viðskiptum, nú síðast hjá Facebook og Autodesk. Nýlega kom út bók hennar Rise of the DEO; Leadership by Design. JONATHAN BARNBROOK Einn þekktasti grafíski hönnuður Breta, sennilega þekktastur fyrir áralangt samstarf sitt við David Bowie en einnig fyrir samstarf sitt við Damien Hirst, Adbusters ofl. LAUREN BOWKER Lauren bruggar seið þar sem vísindi og tíska renna saman og úr verða flíkur sem geta numið tilfinningar manna, mengun og fleira. Fatalína The Unseen hefur nú þegar vakið heimsathygli. STUDIO SWINE Þau Azusa og Alexander starfa að verkefnum út um allan heim og hafa vakið mikla athygli og hlotið ýmis verðlaun og tilnefningar. Verk þeirra byggjast á hönnunarrannsókn. MARIA LISOGORSKAYA Maria er arkitekt og einn stofnenda Assemble, sem hlaut Turner Prize verðlaunin 2015. Maria kemur til landsins í samstarfi við Hafnarborg Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar. TOM LOOSEMORE Tom leiddi t.d. stafræna umbreytingu þjónustugáttar bresku ríkisstjórnarinnar; GOV.UK, hafði um árabil umsjón með internetstefnu BBC og starfaði sem einn af ritstjórum Wired Magazine. Marco Steinberg arkitekt og sérfræðingur í nýsköpun innan hins opinbera og Hlín Helga Guðlaugsdóttir hönnuður og curator DesignTalks munu leiða daginn og stjórna umræðum. Marco verður einnig með sérstakan dagskrárlið um hlutverk hönnunar andspænis áskorunum dagsins í dag. Nánari upplýsingar: designtalks.honnunarmars.is Miðaverð: 9.900 á harpa.is Léttur hádegisverður og kaffi frá Kaffitári innifalið í miðaverði. Innlend innslög: Dr. Þorvaldur Ingvarsson læknir og framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Össuri, Katrín Ólína hönnuður, Brynja Þóra Guðnadóttir hönnuður, Einar Gunnar Guðmundsson forsvarsmaður nýsköpunar hjá Arion banka. DesignTalks er skipulagður af Hönnunarmiðstöð Íslands og styrktur af Reykjavíkurborg og Arion banka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.