Morgunblaðið - 05.03.2016, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 05.03.2016, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016 Flugstjóra farþegaþotu flugfélags- ins Air France tókst með naum- indum að koma í veg fyrir árekstur við dróna er hann var að búa sig undir lendingu á flugvellinum Charles de Gaulle í París. Frétta- veita AFP greinir frá því að atvikið hafi átt sér stað 19. febrúar síðast- liðinn en flugvélin var þá á leið til Frakklands frá Barselóna á Spáni. Þegar flugmenn vélarinnar, sem er af gerðinni Airbus 320, voru önn- um kafnir við að undirbúa lendingu sá flugstjórinn skyndilega dróna á flugi fyrir framan þotuna. Brást hann skjótt við, slökkti á sjálfstýr- ingunni og tók stjórnina í von um að koma í veg fyrir árekstur. Er tal- ið að einungis hafi munað fimm metrum að dróninn rækist í vinstri væng farþegaþotunnar. Slíkur árekstur hefði getað haft alvar- legar afleiðingar. Málið er í rann- sókn. khj@mbl.is FRAKKLAND AFP Airbus Talið er að dróninn hafi verið í fimm metra fjarlægð frá vélinni. Dróni ógnaði öryggi farþegaþotu Air France yfir París Ráðist var með hnífi á þungaða konu í miðbæ Sutton Coldfield á Bretlandi. Fréttavefur bresku Sky- sjónvarpsstöðv- arinnar greindi frá því í gær- kvöldi að konan hefði hlotið al- varlega stunguáverka og verið flutt á sjúkrahús með þyrlu. Frekari upplýsingar um líðan hennar voru ekki gefnar fjölmiðlum. Árásarmaðurinn, 41 árs gamall karlmaður, var handtekinn á vett- vangi, en skömmu áður hafði hann verið yfirbugaður af vegfarendum sem vitni urðu að árásinni. „Það sem vitað er á þessum fyrstu stigum málsins er að tveir hugrakkir vegfarendur gripu inn í hættulega og ofbeldisfulla atburða- rás – skeytingarlausir um eigið öryggi – og hrósa ég þeim fyrir það,“ segir talsmaður lögreglu í samtali við Sky. Þeir hlutu sjálfir einhverja áverka í átökunum en meiðsl þeirra voru í gærkvöldi talin minniháttar. khj@mbl.is BRETLAND Réðst vopnaður hnífi á ólétta konu Lögreglan á Bret- landi við störf sín. Metfjöldi flótta- manna leitaði hælis í ríkjum Evrópusam- bandsins (ESB) í fyrra. Alls komu þá um 1.250.000 flóttamenn til ríkja ESB og eru það meira en helmingi fleiri flóttamenn en ár- ið á undan. Hagstofa Evrópusam- bandsins (Eurostat) heldur utan um þjóðerni þessa fólks. Samkvæmt þeim voru Sýrlendingar fjölmenn- astir, eða 363.000 talsins, Afganir alls 178.000 og Írakar 121.500. FLÓTTAMANNAVANDI EVRÓPU Um 1.250.000 flóttamenn í ESB Fánar ESB blakta við hún í Brussel. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Vopnaðir menn ruddu sér leið inn á hjúkrunarheimili í borginni Aden í suðurhluta Jemens í gær og skutu þar minnst 16 manns til bana. Meðal hinna látnu eru fjórar nunnur frá Indlandi en samkvæmt fréttaveitu AFP unnu þær við hjúkrunarstörf á heimilinu. Engin vígasamtök höfðu í gær lýst yfir ábyrgð sinni á drápunum. Öll spjót beinast hins vegar að hryðjuverkasamtökum Ríki íslams og al-Qaeda sem staðið hafa fyrir fjölmörgum blóðugum árásum á svæðinu að undanfönu. Skotið með hendur bundnar Lýsingar sjónarvotta á ódæðinu eru sláandi. Eru byssumennirnir sagðir hafa komist inn á hjúkrunar- heimilið eftir að hafa skotið til bana öryggisvörð sem gætti inngangsins. Gengu vígamennirnir, sem sam- kvæmt sjónarvottum voru fjórir talsins, því næst rakleiðis til verks, yfirbuguðu fjölmarga starfs- og heimilismenn og bundu hendur þeirra saman. Var varnarlaust fólkið skotið til bana skömmu síðar. „Ég fór út til bæna. Þegar ég kom aftur sá ég að allir vinir mínir voru látnir,“ hefur AFP eftir einum af íbúum hjúkrunarheimilisins. Meðan á þessu stóð héldu árásir Bandaríkjahers á liðsmenn al-Qaeda í Jemen áfram. Voru meðal annars gerðar loftárásir á felustaði þeirra með drónum og létust þá fjórir hryðjuverkamenn samtakanna. Nunnur og eldra fólk skotin til bana  Vígamenn réðust á varnarlaust fólk á hjúkrunarheimili AFP Hryllingur Liðsmenn öryggissveita kanna vettvang eftir skotárásina. Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhella 9 | 221 Hafnarfjörður Sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is www.kvarnir.is 20 ÁRA 1996 2016 Leigjum og seljum steypumót frá Vinnupallar margar stærðir og gerðir Byggingakranar, stálsteypumót, álsteypumót, mótaplötur, H-20 bitar og loftastoðir. Steypusíló, brettagaflar, efnisgámar. Álstigar og tröppur fyrir iðnaðarmenn Íslensk framleiðsla í 32 ár Kvarna-tengi 70 kr stk m/vsk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.