Morgunblaðið - 05.03.2016, Qupperneq 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016
Metnaðarfull og skapandilist á alltaf erindi viðsamtíma sinn og tekst ávið hann á einhvern
hátt, misaugljósan, allt eftir upplagi
og ætlun listamannanna. Franski rit-
höfundurinn Michel Houellebecq hef-
ur á undanförnum tveimur áratugum
verið í fararbroddi þeirra listamanna
sem ögra vestrænum samfélögum,
með því að fjalla opinskátt um og tak-
ast á við tabúin og eðli manna; verk
hans eru sjaldnast þægileg aflestrar,
þau eru klámfengin, ögrandi og pirra
marga, en það er engin leið að af-
skrifa þau því hann er einfaldlega
framúrskarandi og vitur höfundur.
Undirgefni er fimmta skáldsaga
Houellebecq og sú fjórða sem Friðrik
Rafnsson þýðir listavel á íslensku.
Það vakti gríðarmikið umtal þegar
spurðist út um hvað hún fjallaði, yf-
irtöku íslamskrar hugmyndafræði í
frönsku samfélagi; og íslamskir
hryðjuverkamenn réðust á ritstjórn-
arskrifstofur Charlie Hebdo-
tímaritsins og myrtu þar menn sama
dag og höfundurinn var á forsíðu rits-
ins vegna þessarar nýju bókar, sem
gerði höfundinn enn alræmdari og
söguna enn umtalaðri. Sögu sem á
ríkt erindi, enda fjallar hún á athygl-
isverðan hátt um hugmyndafræðileg
átök samfélaga Evrópulanda og ísl-
amstrúar, um ábyrgð einstaklinga á
sjálfum sér og heildinni og það hvað
samfélög geta mögulega tekið skjót-
um breytingum ef almenningur telur
það þjóna hag sínum þá stundina.
Lesendur fyrri skáldsagna Hou-
ellebecq kannast við aðalpersónuna,
sjálfhverfa manninn sem hefur tak-
markaðan áhuga á því lífi sem er lifað
í kringum hann, sem segir hér frá í
fyrstu persónu frásögninni og rifjar
upp atburðina sem leiddu til þess að
undir lok bókar er hann að takast á
við umtalsverðar breytingar á lífi
sínu. François er Parísarbúi á fimm-
tugsaldri og kennir bókmenntir við
eina deild Sorbonne-háskóla þar sem
hann er sérfræðingur í frönskum 19.
aldar höfundi, Joris-Karl Huysmans
(1848-1907). François leiðist að kenna
og leiðist ungt fólk, hefur samband
við fáa og hann hefur rofið allt sam-
band við foreldrana, sem látast bæði í
sögunni án þess að það hreyfi við hon-
um á nokkurn hátt, og honum finnst
líf sitt að mörgu leyti vera búið. Það
eina sem heldur honum gangandi og
fær hann til að finnast hann vera
venjulegur, er áhugi á
kynlífi sem hann stund-
ar með nemendum, sem
eru helmingi yngri en
hann sjálfur, og ungum
vændiskonum. Og því
er, eins í fyrri skáldsög-
um Houllebecq, á stund-
um lýst býsna ítarlega.
François er þannig
tómhyggjan og sjálf-
hverfni holdi klædd,
sem höfundur notar á
athyglisverðan hátt til
að spegla og fjalla um þá
þróun og breytingar
sem verða í sögunni á frönsku sam-
félagi. Miklar hræringar verða í
stjórnmálum Frakklands um og upp
úr 2017, með átökum Þjóðfylkingar
Le Pen og Bræðralags múslíma en
það er leitt af snjöllum popúlista, Mú-
hameð Ben Abbes, sem hófsamari öfl
taka að vinna með til að koma í veg
fyrir uppgang öfgaafla til hægri. Eft-
ir nokkur ár átaka og ólgu í landinu
nást sættir og múslímar sölsa undir
sig menntakerfi landsins og gera á
því miklar breytingar. François býðst
þá að hætta að vinna á góðum eftir-
launum og gera ekkert nema sinna
áhugamálunum – kynlífinu. En sam-
félagið breytist hratt, konur eru huld-
ar klæðum og hverfa inn fyrir veggi
heimilanna, þar sem stöndugir karlar
mega eiga fjórar, og François þarf að
taka afstöðu, hvað hann vill gera.
Í þessari skáldsögu er margt undir
og ótal spurningar vakna með lesand-
anum. Sagan er hugvitssamlega
sögð; bókmenntaumræða er fram-
arlega og valið á Huysmans athygl-
isvert; þegar leið á feril hans (höf-
undar sem mun hafa verið nær
gleymdur en er nú lesinn af kappi eft-
ir útkomu Undirgefni) gerðist hann
strangkaþólskur og sú þróun endur-
speglast í hugleiðingum og gjörðum
François, sem leitar líka
að andlegri upplýsingu
og lífsfyllingu en mögu-
leikar múhameðs-
trúarinnar kalla hærra á
hann en þeir kristnu.
Lesandinn spyr sig
hvort þróun eins og hér
er lýst gæti mögulega
orðið á Vesturlöndum, og
þar blandast inn blákald-
ur veruleiki straums
flóttamanna inn í Evrópu
frá samfélögum sem eru
mótuð af misöfgafullum
túlkunum á íslam. Það
má til að mynda spyrja sig hvort kon-
ur á Vesturlöndum myndu ganga svo
fúslega inn í heim minnkaðra rétt-
inda, eins og lýst er að gerist á
skömmum tíma, en það hlýtur líka að
vera eitt af markmiðum höfundarins
að fá okkur til að spyrja hvað geti
gerst, að velta fyrir okkur því mann-
lega eðli sem Houllebecq er sérfræð-
ingur í að sýna í írónísku en jafnframt
óþægilega afhjúpandi ljósi.
Um leið og útgáfu þessarar áhuga-
verðu og vel þýddu bókar er fagnað,
er ástæða til að setja út á fráganginn.
Þetta er of sjoppuleg kilja, minnir á
reyfara. Fyrstu tvær bækur höfund-
arins sem komu út á íslensku voru
innbundnar og þótt það sé ákjósan-
legur umbúnaður þegar heims-
bókmenntir eiga í hlut, þá hefði þessi
lesandi sætt sig við vandaðri kilju
með innslögum – þetta er einfaldlega
of ódýr frágangur.
Undirgefni er merkileg saga og
mikilvæg fyrir umræðuna, á marg-
víslegan hátt. Sem bókmenntaverk
nær hún ekki alveg sömu hæðum og
Kortið og landið, síðasta skáldsaga
höfundarins, en engu að síður er
þetta bók sem fólk á að lesa, hugsa
um og ræða. Því eins og hér er sýnt
fram á þá getur allt gerst.
AFP
Houellebecq lætur íslam
bylta frönsku samfélagi
Skáldsaga
Undirgefni bbbbm
Eftir Michel Houellebecq.
Friðrik Rafnsson þýddi.
Mál og menning, 2016. Kilja, 273 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Umdeildur Rýnir segir Undirgefni eftir Michel Houellebecq vera merkilega
og mikilvæga fyrir umræðuna. Sagt er frá breytingum í Frakklandi.
Samsýningin Sköpun bernskunnar
2016 verður opnuð í dag kl. 15 í
Ketilhúsi, Listasafninu á Akureyri.
Þátttakendur í sýningunni eru
Hríseyjarskóli, leikskólarnir
Hólmasól, Sunnuból og Pálmholt,
grunnskólarnir Naustaskóli og
Síðuskóli, Leikfangasýningin í
Friðbjarnarhúsi og listamennirnir
Áki Sebastian Frostason, Anne
Balanant, Björg Eiríksdóttir, Elsa
Dóra Gísladóttir, Egill Logi Jóns-
son og James Earl Ero Cisneros
Tamidles. Sýningarstjóri er Guð-
rún Pálína Guðmundsdóttir.
Sýningin er sú þriðja sem haldin
er undir heitinu Sköpun bernsk-
unnar og er sett upp til þess að
örva skapandi starf og hugsun
allra skólabarna, á aldrinum
tveggja til sextán ára, skv. tilkynn-
ingu. Þátttakendur hverju sinni
eru börn, starfandi listamenn og
Leikfangasýningin í Friðbjarnar-
húsi. „Sköpun bernskunnar er því
samvinnuverkefni í stöðugri þróun
og er hver sýning sjálfstæð og sér-
stök,“ segir í tilkynningu og að
sýningin hafi vakið verðskuldaða
athygli og sé einstök hvað varðar
samvinnu myndlistarmanna og
barna. Einnig verða á sýningunni
sýnd myndverk frá námskeiði sem
haldið var í tengslum við Sköpun
bernskunnar 2015 þar sem leið-
beinendur voru Erwin van der
Werve og Þóra Sólveig Bergsteins-
dóttir.
Sköpun bernskunnar 2016 stend-
ur til 24. apríl og er listasafnið op-
ið þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-
17. Leiðsögn um sýningar er alla
fimmtudaga kl. 12.15-12.45 og er
aðgangur ókeypis.
Sköpun bernskunnar í þriðja sinn á Akureyri
Ljósmynd/Daníel Starrason
Bátar „Les bateaux“, verk eftir Anne
Balanant sem sjá má á sýningunni.
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
DAVID FARR
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Lau 5/3 kl. 15:00 54. sýn Lau 19/3 kl. 19:30 58.sýn Lau 9/4 kl. 19:30 65.sýn
Lau 5/3 kl. 19:30 55.sýn Mið 30/3 kl. 19:30 61.sýn Fim 14/4 kl. 19:30 66.sýn
Fös 11/3 kl. 19:30 56.sýn Fim 31/3 kl. 19:30 62.sýn Fös 15/4 kl. 19:30 67.sýn
Fim 17/3 kl. 19:30 Aukasýn Fös 1/4 kl. 19:30 63.sýn
Lau 19/3 kl. 15:00 57.sýn Lau 9/4 kl. 15:00 64.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið)
Sun 6/3 kl. 19:30 14.sýn Sun 20/3 kl. 19:30 Lokasýn
"Sýningin er sigur leikhópsins alls og leikstjórans..."
Hleyptu þeim rétta inn (Stóra sviðið)
Fim 10/3 kl. 19:30 Frums. Sun 13/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 2/4 kl. 19:30 8.sýn
Lau 12/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 16/3 kl. 19:30 7.sýn Fös 8/4 kl. 19:30 10.sýn
Hrífandi verk um einelti, einsemd og óvenjulega vináttu.
Um það bil (Kassinn)
Sun 6/3 kl. 19:30 17.sýn Fös 18/3 kl. 19:30 19.sýn Sun 3/4 kl. 19:30 21.sýn
Mið 9/3 kl. 19:30 18.sýn Sun 20/3 kl. 19:30 20.sýn Fim 7/4 kl. 19:30 22.sýn
"...ein af bestu sýningum þessa leikárs."
Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið)
Sun 6/3 kl. 13:00 7.sýn Sun 13/3 kl. 13:00 8.sýn Sun 20/3 kl. 13:00 9.sýn
Æsispennandi fjölskyldusýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst!
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Fös 18/3 kl. 20:00 23.sýn Mið 6/4 kl. 19:30 25.sýn
Sun 3/4 kl. 19:30 24.sýn Fim 7/4 kl. 19:30 26.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Mið-Ísland 2016 (Þjóðleikhúskjallari)
Lau 5/3 kl. 20:00 42.sýn Fös 11/3 kl. 20:00 45.sýn Lau 12/3 kl. 22:30 48.sýn
Lau 5/3 kl. 22:30 43.sýn Fös 11/3 kl. 22:30 46.sýn Fim 17/3 kl. 20:00 49.sýn
Fim 10/3 kl. 20:00 44.sýn Lau 12/3 kl. 20:00 47.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 9/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 6/4 kl. 19:30 9.sýn Mið 27/4 kl. 19:30 12.sýn
Mið 16/3 kl. 19:30 7.sýn Mið 13/4 kl. 19:30 10.sýn
Mið 30/3 kl. 19:30 8.sýn Mið 20/4 kl. 19:30 11.sýn
Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram!
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 5/3 kl. 11:00 aukasýn Lau 5/3 kl. 13:00 aukasýn
Síðustu sýningar!
Kvika (Kassinn)
Lau 5/3 kl. 21:00 2.sýn Lau 12/3 kl. 21:00 4.sýn
Fös 11/3 kl. 21:00 3.sýn Þri 15/3 kl. 21:00 5.sýn
Dansverk eftir Katrínu Gunnarsdóttur
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Þri 8/3 kl. 20:00 Fors. Fös 8/4 kl. 20:00 9.k Sun 8/5 kl. 20:00
Mið 9/3 kl. 20:00 Fors. Lau 9/4 kl. 20:00 aukas. Þri 10/5 kl. 20:00
Fim 10/3 kl. 20:00 Fors. Sun 10/4 kl. 14:00 aukas. Mið 11/5 kl. 20:00
Fös 11/3 kl. 20:00 Frums. Mið 13/4 kl. 20:00 10.k Fim 12/5 kl. 20:00
Lau 12/3 kl. 20:00 2.k Fim 14/4 kl. 20:00 11.k Fös 13/5 kl. 20:00
Sun 13/3 kl. 15:00 aukas. Fös 15/4 kl. 20:00 aukas. Lau 14/5 kl. 14:00
Þri 15/3 kl. 20:00 aukas. Lau 16/4 kl. 20:00 12.k Mán 16/5 kl. 20:00
Mið 16/3 kl. 20:00 aukas. Mið 20/4 kl. 20:00 13.k Þri 17/5 kl. 20:00
Fim 17/3 kl. 20:00 3.k. Fim 21/4 kl. 20:00 14.k Mið 18/5 kl. 20:00
Fös 18/3 kl. 20:00 4.k. Fös 22/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/5 kl. 20:00
Lau 19/3 kl. 20:00 aukas. Lau 23/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/5 kl. 20:00
Sun 20/3 kl. 14:00 aukas. Sun 24/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/5 kl. 20:00
Þri 22/3 kl. 20:00 5.k Fim 28/4 kl. 20:00 aukas. Sun 22/5 kl. 20:00
Mið 30/3 kl. 20:00 6.k Fös 29/4 kl. 20:00 aukas. Þri 24/5 kl. 20:00
Fim 31/3 kl. 20:00 aukas. Lau 30/4 kl. 20:00 15.s Mið 25/5 kl. 20:00
Fös 1/4 kl. 20:00 aukas. Þri 3/5 kl. 20:00 Fim 26/5 kl. 20:00
Lau 2/4 kl. 20:00 7.k Mið 4/5 kl. 20:00 Fös 27/5 kl. 20:00
Sun 3/4 kl. 14:00 aukas. Fim 5/5 kl. 20:00 Lau 28/5 kl. 20:00
Mið 6/4 kl. 20:00 8.k Fös 6/5 kl. 20:00 aukas. Sun 29/5 kl. 20:00
Fim 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 7/5 kl. 20:00 aukas. Þri 31/5 kl. 20:00
Abba söngleikurinn sem slegið hefur í gegn um allan heim
Njála (Stóra sviðið)
Lau 5/3 kl. 20:00 27.sýn Sun 3/4 kl. 20:00 29.sýn Sun 17/4 kl. 20:00
Sun 20/3 kl. 20:00 28.sýn Sun 10/4 kl. 20:00 30..sýn
Njáluhátíð hefst í forsalnum klukkan 18 fyrir hverja sýningu
Flóð (Litla sviðið)
Sun 13/3 kl. 20:00 Mið 16/3 kl. 20:00
Styrktarsýning
Vegbúar (Litla sviðið)
Fös 18/3 kl. 20:00 34.sýn Lau 2/4 kl. 20:00 35.sýn
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 5/3 kl. 20:00 103.sýn Lau 12/3 kl. 20:00 104.sýn Lau 19/3 kl. 20:00 105.sýn
Kenneth Máni stelur senunni
Illska (Litla sviðið)
Sun 6/3 kl. 20:00 Sun 20/3 kl. 20:00 Mið 20/4 kl. 20:00
Fim 10/3 kl. 20:00 Lau 9/4 kl. 20:00
Fim 17/3 kl. 20:00 Fim 14/4 kl. 20:00
Samstarfsverkefni Óskabarna ógæfunnar og Borgarleikhússins
Made in Children (Litla sviðið)
Fös 1/4 kl. 20:00 frums. Fim 7/4 kl. 20:00 3.sýn Fös 15/4 kl. 20:00 5.sýn
Sun 3/4 kl. 20:00 2.sýn Sun 10/4 kl. 20:00 4.sýn
Hvernig gera börnin heiminn betri?
Óður og Flexa halda afmæli (Nýja sviðið)
Sun 6/3 kl. 13:00 Síðasta sýn.
Nýtt 5 stjörnu barnaverk frá Íslenska dansflokknum
Njála – „Unaðslegt leikhús“ – ★★★★ , S.J. Fbl.