Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 50

Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016 Söfn • Setur • Sýningar Laugardagur 5. mars: Sýningaropnun. Vinnandi fólk - ASÍ 100 ára Sunnudagur 6. mars: Kl. 14-16: Áttu forngrip? Sérfræðingar greina gripi almennings Kl. 14: Fjölskyldustund um sýninguna Vinnandi fólk – ASÍ 100 ára Þriðjudagur 8. mars kl. 12: Sumarliði R. Ísleifsson fjallar um stöðu kvenna innan ASÍ Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Vinnandi fólk-ASÍ 100 ára í Myndasal Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal Bláklædda konan- Ný rannsókn á fornu kumli í Horni Norðrið í norðrinu á 3. hæð Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru • Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Listasafn Reykjanesbæjar Iceland Defense Force - Ásbrú 6. febrúar - 24. apríl Íslensk náttúra, landslagsverk úr safneign 15. janúar - 24. apríl Byggðasafn Reykjanesbæjar Herinn sem kom og fór 6. febrúar-24. apríl Þyrping verður að Þorpi Bátasafn Gríms Karlssonar Opið alla daga 12.00-17.00 Duusmuseum.is LISTASAFN ÍSLANDS KVARTETT 15.1 - 1.5 2016 Chantal Joffe, Gauthier Hubert, Jockum Nordström, Tumi Magnússon. Listamannaspjall með Tuma Magnússyni, sunnudaginn 6. mars kl. 14. UDSTILLING AF ISLANDSK KUNST UPPHAF KYNNINGAR Á ÍSLENSKRI MYNDLIST Í KAUPMANNAHÖFN 21.1 - 11.9 2016 PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS; JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7. 2015 - 11.9. 2016 Leiðsagnir á ensku alla föstudaga kl. 12:10 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið daglega kl. 11-17, lokað mánud. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR GYÐJUR 5.2. - 29.5.2016 Leiðsögn með sýningarstjóranum Birgittu Spur, sunnudaginn 6. mars, kl. 15. Opið laugard. og sunnud. kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR UNDIR BERUM HIMNI - MEÐ SUÐURSTRÖNDINNI 5.2. - 16.9.2016 Opið sunnudaga kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Sunnudagur 6. mars kl.14: Leiðsögn með Markúsi Þór Andréssyni sýningarstjóra Hönnunarmars 10.-13. mars: Frímerki í Kaffitári - Hönnun Thomasar Pausz í Sjónarhornum- Textílverk Signe Emdal í lestrarsal - Primitiva Katrínar Ólínu á 3. hæð Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Geirfuglinn, Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort og vaxmynd Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Kaffitár nú einnig í Safnahúsinu Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 10-17. Verið velkomin DUUS SAFNAHÚS DUUS MUSEUM Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210 www.safnahusid.is Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 Kaffitár opið mánudaga til föstudaga frá 8-17, 10-17 um helgar SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU GEYMILEGIR HLUTIR Að safna í söguna Vinnandi fólk. Alþýðusamband Ís- lands 100 ára nefnist ljósmyndasýn- ing sem opnuð verður í Myndasal Þjóðminjasafnsins í dag kl. 15. Á sýningunni eru ljósmyndir sem veita innsýn í starfsemi Alþýðu- sambandsins sem fagnar 100 ára af- mæli sínu um þessar mundir. „Ljós- myndirnar segja sögu þess fólks sem myndaði hreyfinguna og vakin er athygli á kjörum þess og kjara- baráttu, aðbúnaði á vinnustöðum og vinnuumhverfi. Sjónum er beint að vinnutíma verkafólks, vinnu barna og jafnrétti karla og kvenna. Þá er brugðið upp myndum af frístundum verkafólks, húsnæði sem því stóð til boða og hvernig félagsleg þjónusta efldist smám saman. Á sýningunni birtast margir fulltrúar þeirra ólíku hópa sem byggðu upp verkalýðshreyfinguna. Þá er veitt innsýn í samfélag sem tók örum breytingum; frá því að vera að mestu leyti í framleiðslu á hráefni og matvælum til meiri verkaskiptingar og fjölbreyttari at- vinnuhátta,“ segir í tilkynningu. Textahöfundur sýningarinnar er Sumarliði R. Ísleifsson, en sýning- arstjóri Sigurlaug Jóna Hann- esdóttir. Þess má geta að Sumarliði heldur fyrirlestur í Þjóðminjasafn- inu um stöðu kvenna innan ASÍ þriðjudaginn 8. mars kl. 12. Ljósmynd/Guðni Þórðarson Síldarsöltun Til marks um afköst við söltunina er síldarpeningur sett- ur í stígvél síldarsöltunarstúlku á Siglufirði eftir miðja 20. öld. Vinnandi fólk í Myndasalnum  Innsýn í starfsemi ASÍ á sl. 100 árum Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Alþýðusamband Íslands er 100 ára um þessar mundir og af því tilefni viljum við sýna gersemar úr safneigninni,“ segir Kristín G. Guðnadóttir for- stöðumaður Listasafns ASÍ og sýningarstjóri sýn- ingarinnar Gersemar úr safneigninni sem opnuð verður í Listasafni ASÍ í dag kl. 16:30. „Grundvöllurinn að stofnun safnsins árið 1961 var stór- fengleg listaverkagjöf Ragnars Jónssonar í Smára til ASÍ. Síð- an þá hefur safnið vaxið og dafnað og við höfum eignast mikið af góðum og áhugaverð- um verkum,“ segir Kristín. Að- spurð segir hún listaverkagjöf Ragnars hafa samanstaðið af 125 verkum sem mörg hver eru meðal þekktustu myndverka 20. aldar eftir nokkra fremstu listamenn þjóðarinnar. Þeirra á meðal eru Ásgrímur Jónsson, Jón Stefánsson, Jóhannes Sveinsson Kjarval og Svavar Guðnason. „Perlan í safni Ragnars er „Fjallamjólk“ Kjarvals, en Ragn- ar fékk tilboð frá MoMA sem vildi kaupa verkið af honum fyrir stórfé. Ragnar vildi ekki selja það þar sem honum fannst að þetta verk sem og önnur sem hann átti ættu að vera aðgengileg íslenskri alþýðu. Hann var mjög framsýnn og mikill frumkvöðull á því sviði að færa listina út til fólksins,“ segir Krist- ín og tekur fram að enn í dag sé það stefna safnsins að ná til sem flestra og af þeim sökum sé aðgangur ávallt ókeypis. Að sögn Kristínar hefur bæst í safneignina, því í dag á safnið um þrjú þúsund verk. „Þar ber hæst þrjár stórar dánargjafir eftir Kristin Pétursson ár- ið 1982, Elínu Pjet. Bjarnason 2010 og Sigrid Valt- ingojer 2013. Þessar þrjár gjafir eru mikilvægar stoðir í safneigninni til móts við stofngjöf Ragn- ars.“ Þrjú þemu á afmælissýningunni Spurð nánar um sýninguna segir Kristín að hana prýði verk eftir ofangreinda listamenn í bland við aðrar og minna þekktar perlur úr safn- eigninni. „Á sýningunni fléttum við þannig saman verk gömlu meistaranna við verk yngri lista- manna. Þarna mætast kynslóðir þegar við stiklum á stóru í gegnum listasöguna,“ segir Kristín og tekur fram að yngstu listamennirnir sem verk eiga á sýningunni séu fæddir í kringum 1960. Þeirra á meðal eru Erla S. Haraldsdóttir, Harpa Árnadótt- ir og Guðbjörg Lind Jónsdóttir. Spurð hvort vinnan og hinn vinnandi maður sé þema í myndefni sýningarinnar svarar Kristín því neitandi. „Ekki á þessari sýningu, en á hinni af- mælissýningunni okkar sem opnuð verður í haust verður fjallað um vinnuna í íslenskri myndlist. Á sýningunni sem opnuð verður á morgun eru þrjú meginþemu. Í Ásmundarsal erum við með fjöl- breytilegar birtingarmyndir náttúrunnar þar sem kallast á eldri og yngri verk. Í Arinstofu erum við með fígúratífa málaralist frá 1935 til 2013, en nýj- asta verkið á sýningunni er eftir Erlu S. Haralds- dóttur. Þetta eru fjölbreytileg verk sem sýna ýmsa fleti á expressjónisma. Í Gryfjunni sýnum við ab- strakt verk, bæði gömul og ný,“ segir Kristín. Auk framangreindra listamanna eiga verk á sýningunni m.a. Eiríkur Smith, Guðmunda Andr- ésdóttir, Gunnlaugur Scheving, Hreinn Friðfinns- son, Kristinn E. Hrafnsson, Lousia Matthíasdóttir og Nína Tryggvadóttir. Sýningin stendur til 3. apr- íl nk. og er safnið opið alla daga, nema mánudaga, milli kl. 13 og 17. Aðgangur er ókeypis. „Þarna mætast kynslóðir“  Listasafn ASÍ sýnir Gersemar úr safneigninni í tilefni af 100 ára afmæli ASÍ Ljós Yngsta verkið er olíumálverkið Ræturnar sem Erla S. Haraldsdóttir málaði árið 2013. Samband íslenskra harm- onikuunn- enda efnir til tónleika í Salnum í dag kl. 17. Þar koma fram margir af bestu harmonikuleikurum landsins og flytja bæði einleiksverk og dúetta. Þeir sem fram koma eru Bragi Hlíðberg, Reynir Jónasson, Grétar Geirsson, Sigurður Alfonsson, Mar- grét Arnardóttir, Einar Guðmunds- son, Flemming Viðar Valmundsson, Guðmundur Samúelsson og Einar F. Björnsson. Harmonikutón- leikar í Salnum Í tilefni af níræð- isafmæli Jóns Nordal sunnu- daginn 6. mars heldur Tónlist- arskólinn í Reykjavík tón- leika í Safnahús- inu við Hverf- isgötu honum til heiðurs. Á efnis- skránni eru verk eftir Jón, sem nemendur úr skólanum leika og syngja. „Jón starfaði um árabil sem skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík og vann ómetanlegt starf í þágu skólans og tónlistarmennt- unar í landinu,“ segir í tilkynningu. Tónleikarnir hefjast kl. 16. Níræðisafmæli fagnað í tónum Jón Nordal Blint stefnumót nefnist sýning sem opn- uð verður í Gerðarsafni í dag kl. 15. Þar getur að líta verk úr safneign sem spannar heila öld í íslenskri listasögu. „Á sýningunni er leitast við að skoða tengsl þeirra og um leið að huga að því hvernig safneign af þessu tagi verður til á löngum tíma. Verkin koma til safnsins á ýmsum skeiðum, valin af starfsfólki á hverjum tíma, og smátt og smátt verður til flókin heild sem endurspeglar til- gang og sögu starfseminnar,“ segir í til- kynningu. Þar kemur fram að Gerð- arsafn hafi að undanförnu gert átak í að opna gestum innsýn í innra starf safn- afólksins með því m.a. að setja upp vinnu- og sýningaraðstöðu þar sem hægt er að sjá hvernig verk eru tekin fram, skoðuð og rannsökuð. Blint stefnumót í Gerðarsafni Hvítt Meðal verka á sýningunni er Lík- neski III eftir Gabríelu Friðriksdóttur. Kristín G. Guðnadóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.