Morgunblaðið - 05.03.2016, Blaðsíða 12
Morgunblaðið/Golli
Safnar áheitum Jóhann Ásmundsson tónlistarmaður undirbýr nú aðra sólóplötu sína.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Það voru komin 15 ár síðan éggerði síðustu plötu,“ segirJóhann um ástæður þessað hann ákvað að fara út í
gerð annarrar hljómplötu. „Ég var
loksins kominn með nógu mikið af
efni á plötuna og sonur minn, Ás-
mundur, hvatti mig eindregið til þess
að láta slag standa,“ segir Jóhann.
Fyrri sólóplata Jóhanns, So
Low, hefur verið ófáanleg um nokk-
urt skeið og stendur til að nýta tæki-
færið og framleiða fleiri eintök af
Tónlistin snýst
um gott samspil
Jóhann Ásmundsson, bassaleikari, sem er líklega þekktastur fyrir störf sín með
hljómsveitinni Mezzoforte, undirbýr nú upptökur á sinni annarri sólóplötu. Jó-
hann ákvað að reyna hópfjármögnun á plötunni, og má finna verkefnið á heima-
síðunni Karolinafund.com, þar sem notendur geta styrkt ýmis verkefni.
þeirri plötu. „Það er nokkuð síðan
það seldist upp allt sem var til af So
Low,“ segir Jóhann en á sínum tíma
var það breskt hljómplötufyrirtæki
sem stóð að gerð hennar, en það fyr-
irtæki hefur nú lagt upp laupana.
Þarna gefst því kjörið tækifæri til
þess að eignast báðar sólóplötur Jó-
hanns á einu bretti.
– En hvers vegna ákvaðstu að
reyna hópfjármögnunarferlið? „Ég
hafði heyrt af Karolinafund í gegnum
kunningja mína sem höfðu farið
þessa leið,“ segir Jóhann. Hann tek-
ur fram að þessi leið sé spennandi,
þar sem hún sé í raun forsala á því
efni sem verið sé að gefa út.
„Kerfið er þannig að þú ákveður
upphæðina í upphafi og ef það safn-
ast bara saman til dæmis 60%, þá
verður ekkert úr verkefninu. Þetta
er því ekki þannig að fólk sé að gefa
pening sinn, heldur er það að kaupa
vöruna í „allt eða ekkert“ forsölu,“
segir Jóhann.
Býður upp á kennslutíma
Þeir sem vilja geta þannig sett
meiri pening í verkefnið og fengið til
baka frekara efni. Jóhann segir að í
sínu verkefni sé hann til að mynda
ekki bara að selja sólóplöturnar
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016
Líf og fjör verður í Hörpu alla helgina.
Auk matarmarkaðar Búrsins, Food
and Fun og kynningar frá íslenskum
sjávarútvegi og landbúnaði munu
Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO
og Penninn Eymundsson taka hönd-
um saman og bjóða gestum að hlýða
á átta rithöfunda spjalla um verk sín
við sjónvarpsmanninn Egil Helgason.
Höfundarnir munu einnig lesa upp
úr verkum sínum. Höfundarnir sem
koma fram eru Jónína Leósdóttir sem
á fyrstu bók ársins, spennusöguna
Konan í blokkinni, Guðmundur Andri
Thorsson sem fjallar um nýútkomna
bók í ritröðinni Íslensk klassík, verkið
Örlagaþættir eftir Sverri Krist-
jánsson, ungskáldið Eydís Blöndal
ræðir um sína fyrstu ljóðabók, Tíst
og bast, og les úr bókinni, Dagur
Hjartarson les úr nýútkominni skáld-
sögu sinni, Síðasta ástarjátningin.
Ragnar Helgi Ólafsson og Dagur
ræða um forlagið Tunglið og nýjustu
útgáfur þess. Ný skáld Tunglsins, þau
Sólveig Johnsen, Þórdís Helgadóttir
og Björn Halldórsson, verða kynnt og
lesa þau úr smásögum sínum sem
birtust í Skíðblaðni, tímariti Tungls-
ins forlags. Spjallið fer fram á sunnu-
daginn í fyrirlestrarsalnum Vísu á 1.
hæð og hefst klukkan 14.
Matur og menning í Hörpu alla helgina
Ljósmynd/Matarmarkaður Búrsins
Margmenni Matarmarkaður Búrsins í Hörpu er ávallt mjög vel sóttur.
Bókmenntir krydda matarhátíð
Ein skemmtilegasta lúðrasveit lands-
ins heldur tónleika kl. 14, sunnudaginn
6. mars, í Háskólabíói. Þarna verða á
ferðinni 160 börn og ungmenni úr
Kópavogi sem leika saman í Skóla-
hljómsveit Kópavogs. Hópnum er
skipt í þrjár lúðrasveitir eftir aldri og
getu og kemur hver sveit fram með
sína efnisskrá. Mikið af kvikmynda-
tónlist verður í boði í þessari tónlist-
arveislu og ættu flestir að þekkja
mörg þeirra laga sem þarna verða
flutt. Stjórnendur sveitanna eru Þórð-
ur Magnússon og Össur Geirsson.
Í febrúar á næsta ári verður Skóla-
hljómsveit Kópavogs 50 ára og er mik-
il tilhlökkun hjá hópnum að fagna
þeim merku tímamótum.
Endilega …
… takið þátt í tónlistarveislu
Skólalúðrasveitir Þrjár sveitir koma
fram með sína efnisskrá.
Söguhringur kvenna er fjölmenning-
arlegt verkefni Borgarbókasafns og
samstarfsverkefni safnsins við Sam-
tök kvenna af erlendum uppruna.
Undanfarna mánuði hefur verið
boðið upp á stórskemmtilegt nám-
skeið í trúðatækni. Konur af íslensk-
um sem og erlendum uppruna hafa
tekið þátt undir vandaðri leiðsögn
Virginiu Gillard og hefur tekist afar
vel að tengjast gegnum húmor og
skapandi æfingar. Í dag, laugardag,
klukkan 13:30, verður síðasta trúða-
stundin í bili haldin í Borgarbóka-
safninu í Tryggvagötu 15. Á nám-
skeiðinu kynnir Virginia trúðatækni
fyrir byrjendur sem langar að spreyta
sig á ögrandi og skemmtilegan hátt.
Hún nýtir eingöngu „rauða nefið“,
minnstu grímu í heimi, sem er grunn-
urinn í evrópskri trúðahefð.
Markmiðið er að finna leiðir til að
leysa ímyndunarafl okkar úr læðingi
með notkun trúðatækninnar. Þannig
má styrkja sjálfstraust hvers og eins
og efla andann í hópnum. Þátttaka er
ókeypis. Nánari upplýsingar má finna
á heimasíðu Borgarbókasafns.
Trúðatæknin eykur sjálfstraustið
Rauða trúðsnefið leiðir konur
saman í Söguhring kvenna
Ljósmynd/Borgarbókasafn
Sköpunargleði Á námskeiðinu er notast við rauða nefið, minnstu grímu
heims, og trúðstækni er beitt í þeim tilgangi að styrkja sjálfstraustið.
Glæsilegur bíll með
miklum aukabúnaði!
M.BENZ C 220 BLUETEC AVANTGARDE
Nýskráður 10/2014, ekinn 9 Þ.km, dísel 170hö, sjálfskiptur 7 gíra. Bakkmyndavél, lyklalaust
aðgengi og start, Íslenskt leiðsögukerfi, krómpakki, öryggispakki , LED ljósapakki, inrétting-
arpakki, rafmagnsopnun/-lokun á skottloki, USB, bluetooth og aux tengi og fleiri aukahlutir.
Verð 7.990.000. OKKAR BESTAVERÐ 6.990.000 kr.
Raðnr. 254705 á www.BILO.is
Sími: 567 4840 • Funahöfði 1 • 110 Rvk. • bilo@bilo. is • www.bi lo. is