Morgunblaðið - 05.03.2016, Side 48
48 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2016
BÚÐU VEL
UM GESTINA
ÞÍNA
Verið velkomin í verslun okkar
að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8:30 - 17:00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Hafðu samband við sölufólk okkar í síma 580 3900 sem aðstoðar þig með ánægju.
Fastus býður upp á vandað lín fyrir hótel, ferða-
þjónustur og heilbrigðisstofnanir á sanngjörnu verði.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú átt það sameiginlegt með maka
þínum að laðast sterklega að allsnægtum.
Gakktu hægt um gleðinnar dyr.
20. apríl - 20. maí
Naut Ef gamla góða ástin gæti bara komið og
dregið athygli þína frá viðskiptum og daglegu
lífi. Mundu að ekki eru allir viðhlæjendur vinir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að standa á rétti þínum en
gæta þess um leið að gera ekki meira úr hlut-
unum en nauðsyn krefur. Með góðri skipu-
lagningu tekst þér að koma miklu í verk.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú skalt halda óhikað til streitu
áformum þínum varðandi heimilið eða hvað
eina sem hefur með fasteignir að gera. Lífið
heldur áfram þó þú tapir stundum, það gerir
sigrana bara sætari.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það myndi æra óstöðugan að leita að or-
sökum allra hluta. Þú ættir ekki að fresta því
að láta athuga torkennileg hljóð í bílnum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ó, dásamlega fortíð! Líklega mun for-
tíðarþráin toga þig baka til áranna þegar þú
hafðir fáar skyldur. Líttu á björtu hliðarnar, líf-
ið verður betra með hækkandi aldri.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú færð óvænta athygli sem þú kærir þig
alls ekki um. Sköpunarkrafturinn flæðir í
gegnum þig. Stappaðu stálinu í sjálfa/n þig
með að viðurkenna að þú hefur eitthvað að
sanna.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þig langar til að flýja hversdags-
leikann, læra eitthvað nýtt og víkka sjóndeild-
arhringinn. Ef þú ert í þörf fyrir að ræða málin
skaltu gera það á réttum forsendum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú gleðst yfir því að fá einhvern í
lið með þér í áætlunum þínum – svo lengi
sem þú færð að ráða. Fólki finnst þú full sam-
úðar, góðleg og umhyggjusöm manneskja
þessa dagana.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samtöl við vini og fjölskyldu-
meðlimi ganga ekki sem skyldi í dag. Varastu
að láta tilfinningarnar hlaupa með þig í gönur.
Einhver brennur í skinninu eftir að mega segja
frá leyndarmáli.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Manneskjan sem þú ert að bíða
eftir er líka að bíða eftir þér. Þú þarft að brjót-
ast út úr mynstrinu. Hafðu hugfast að allt á
sér sinn stað og sína stund.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver sem virðist ekki hafa áhuga á
því sem þú segir mun brátt skipta um skoðun.
Aukið annríki og óreiða halda þér við efnið.
Síðasta gáta var sem endranæreftir Guðmund Arnfinnsson:
Bungu á landi lítum vér.
Leynist undir höfuðskel.
Víða snýst á vegum hér.
Í vegg íbogið skarð það tel.
Þannig svarar Guðrún Bjarna-
dóttir og má til sanns vegar færa:
Keilir er keilulaga.
Keilur í heila bæta sjón.
Vegskemmd með keilukraga.
Keilu í vegg hjó spætuflón.
Þessi er hins vegar lausn Hörpu
á Hjarðarfelli og ber saman við
höfund gátunnar:
Gátu að ráða víst ég vel
og visku minni flíka.
Tvö ég hef í kolli hvel
og kannast við hin líka.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Hvel nefnd bunga ávöl er.
Í okkur leynist heilahvel.
Hvel snýst víða á vegum hér.
Í veggjum hvel nefnt skarð ég tel.
Og fylgir svarinu eftir með
limru:
„Allt er á hverfanda hveli,
æ, hvar er minn brennivínspeli?
Hann léttir mér lund
á líðandi stund,“
segir hinn kófdrukkni Keli.
Síðan kemur ný gáta eftir Guð-
mund:
Í fjárhúskrónni kusk hún er.
Kóklast í berjalyngi.
Grær á velli, er vora fer.
Vel ég tel hún syngi.
Ingólfur Ómar heilsaði leir-
verjum á fimmtudag, – „veðrið
leikur við okkur nú þessa dagana,“
sagði hann, „og sólin lætur sig ekki
vanta.“
Vekur gleði, vermir brá,
vonar birtu gefur.
Sólin guðar gluggann á,
geislum landið vefur.“
Sigurlín Hermannsdóttir var líka
í sólskinsskapi:
Sólarljósið leitar vars,
lengist geisli fagur.
Viku eftir miðjan mars
mætast nótt og dagur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Allt er á hverfanda hveli
Í klípu
„HÆRRA, TIL VINSTRI – JÁ, ÞARNA.
TAKK – ÞESSI KLÁÐI VAR
AÐ GERA MIG ÓÐAN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG HRINGDI Í LÆKNINN. HANN SAGÐI
AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ FÁ NÓG AF VÖKVA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að nudda auma fætur
hennar.
SEGJUM BARA AÐ
ÉG HAFI GELT Á
ÞIG Í DAG
ÓKEI
ÞVÍ AÐ Í SANN-
LEIKA SAGT, ÞÁ
HEF ÉG BETRI
HLUTI AÐ GERA
SAMA
HÉR
AF HVERJU
ERT ÞÚ SVONA
GLAÐUR?
ÉG HEF ALLTAF
VILJAÐ VERA
VINSÆLL!
Gamlar fermingarmyndir. Þærgleðja alltaf jafn mikið. Fátt er
skemmtilegra en að fletta í gegnum
myndir af þessu einstaka tímabili í
lífi fólks. Tískan og unglingalegt út-
lit kveikir alltaf einhverjar kenndir í
brjósti og fiðiring í maga þegar þær
eru skoðaðar.
Það er því ekkert skrýtið við það
að sumir eiga í einkennilegu sam-
bandi við myndir af þessu tímabili
langt fram á fullorðinsárin. Systir
Víkverja er nýhætt að fela ferming-
armyndirnar en þær lágu lengi vel
undir sófa og enginn vissi um þær.
x x x
Víkverji var sjálfur ekki alslæmur,nokkuð fínt fermingarbarn ef út
í það er farið. Fötin voru hefð-
bundin, blár kjóll, hvít skyrta og
þykkbotna skór í stíl. Það sem stóð
upp úr eða skagaði/skaraði fram úr
var þetta líka ákaflega fallega stóra
nef sem hefur fylgt honum æ síðan
og hann ber með stolti.
x x x
Einu sinni á ári þá kemur stærðþess honum í koll. Það er um
áramótin þegar skálað er og nýju ári
er fagnað með kampavíni í tilheyr-
andi kampavínsglösum. Víkverji
þarf að drekka úr þeim með ein-
stakri lagni. Þegar hann leggur
barminn við varir sínar þá rekst
hinn barmurinn alltaf í nefið á hon-
um þegar hann reynir að dreypa á
víninu. Það verður til þess að hann
nær ekki að drekka freyðivínið í
fyrstu atrennu. Heldur þarf hann
nokkrar tilraunir.
x x x
Þá kemur að góðum notum aðmunnur Víkverja er nokkuð
stór. Hann opnar því glasið bara vel
og skellir öllu glasinu upp í sig í einu.
Þá er það búið og gert. Þessar aðfar-
ir minna hann á þegar börn eru að
drekka í fyrsta skipti kók í gleri og
setja allan munninn yfir stútinn og
þamba.
x x x
Sem betur fer eru áramótin baraeinu sinni á ári. Það heyrist að
minnsta kosti í sambýling Víkverja
sem verður alltaf jafn hissa þegar
hann horfir á þessar aðfarir við
drykkjuskapinn. víkverji@mbl.is
Víkverji
Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver
annan, eins og ég hef elskað yður.
(Jóh. 15:12)
Þjónustuauglýsingar
Fáðu tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1100 eða á augl@mbl.is