Morgunblaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 4. M A R S 2 0 1 6
Stofnað 1913 61. tölublað 104. árgangur
HAFÐI EKKI
HREYFT SIG AÐ
RÁÐI Í 30 ÁR
LEIKUR Í NÝJU
VERKI Í NOR-
RÆNA HÚSINU
ÞARF AÐ EFLA
MÁLÞROSKA
FYRSTU SEX ÁRIN
NÝ SÝN EFTIR SVÍÞJÓÐARDVÖL 26 PRÓFESSOR Í ÍSLENSKU 6JÁRNMAÐUR 12
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Rýma þurfti 21 hús á Patreksfirði í
gærkvöldi vegna mikils óveðurs sem
gekk yfir landið. Hætta var talin á að
vatn hefði safnast fyrir í snjónum í
Geirseyrargili, ofan byggðarinnar
þannig að krapi gæti hlaupið fram.
Íbúum húsanna bauðst að gista á
hóteli í bænum. Alls gistu þar um 40
manns en um 10 manns leituðu til
fjölskyldna og ættingja í bænum, að
sögn Helgu Gísladóttur, formanns
Rauða krossins á Patreksfirði.
Verst var veðrið í gærkvöldi á
Norður- og Vesturlandi, en fyrsta
asahláka ársins gerði rækilega vart
við sig enda mikill hiti á landinu, en
hann var á nokkrum stöðum yfir
fimmtán gráðum. Rennsli í ám og
vatnsföllum jókst verulega og á
Bíldudal féll krapaflóð á hús við jað-
ar bæjarins.
Björgunarsveitir voru víða annars
staðar kallaðar út í gærkvöldi, m.a. á
höfuðborgarsvæðinu, Snæfellsnesi,
á Akranesi og í Borgarnesi. Flest út-
köllin voru þó á Vestfjörðum og
vörðuðu mörg þeirra fjúkandi þak-
plötur og brotnar rúður.
Á Ísafirði var björgunarsveit köll-
uð út vegna báts sem hafði losnað frá
bryggju og einnig vegna þaks sem
fokið hafði af fjárhúsi í Bolungarvík.
Öllu innanlandsflugi var aflýst í
gærkvöldi vegna óveðursins, en flog-
ið var um Keflavíkurflugvöll.
21 hús rýmt á Patreksfirði
Um 50 íbúar á Patreksfirði þurftu að yfirgefa hús sín Krapaflóð féll á hús á
Bíldudal Öllu innanlandsflugi aflýst Talsverðir vatnavextir í asahláku
Morgunblaðið/Golli
Óveður Ferðaþjónustufyrirtæki þurftu mörg að aflýsa ferðum sínum í gær vegna óveðursins. Meðal annars var hætt við ferðir að Gullfossi og Geysi.
Ljósmynd/Guðmundur Magnússon
Krapaflóð Tjón varð á húsi á Bíldudal þegar krapaflóð féll úr Búðargili.
Að sögn Helga Gunnlaugssonar, af-
brotafræðings og prófessors við Há-
skóla Íslands, er margt líkt með
skotárás á Akureyri í fyrrinótt og
Hraunbæjarmálinu svokallaða í des-
ember 2013. Í báðum tilvikum skaut
andlega veikur maður úr haglabyssu
sinni í íbúðarhverfi. Endalok málsins
á Akureyri urðu þó öllu betri en í
Hraunbæ, byssumaðurinn var hand-
tekinn óvopnaður á Akureyri en hinn
var felldur.
„Ég held að menn hljóti að velta
því fyrir sér núna, þegar svona
skammt er liðið frá Hraunbæjarmál-
inu, að kortleggja betur hvar skot-
vopnin eru, hvar leyfin liggja og
kanna málið af fullri alvöru. Það eru
byssur víða í íbúðarhverfum og að-
gát er nauðsynleg,“ segir Helgi. »2
Líkindi með
Hraunbæjar-
málinu 2013
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Skotárás Maður skaut fjórum skot-
um úr haglabyssu sinni í fyrrinótt.
Bændur á þremur bæjum í Árnes-
hreppi á Ströndum hyggjast bregða
búi næsta haust; á Bæ, Finnboga-
stöðum og Krossnesi. Þetta er hátt
hlutfall bænda í þessu fámenna
sveitarfélagi, eða um 30%, en nú er
búið þar með sauðfé á tíu bæjum.
Bændurnir á Bæ og Finnboga-
stöðum eru meðal yngstu bænda í
Árneshreppi og ljóst að meðalaldur
íbúanna hækkar talsvert við brott-
flutning þeirra.
„Ég óttast að það sem er að gerast
hér í þessu litla, afskekkta samfélagi
sé nákvæmlega sama sagan og í svo
mörgum öðrum sveitum landsins áð-
ur,“ segir Þorsteinn Guðmundsson á
Finnbogastöðum. „Að lokum verða
svo fáir eftir að þeir einfaldlega
neyðast til að fara þó svo að þeir vilji
alls ekki fara í burtu.“
„Það má mikið breytast til að það
verði áfram heilsársbyggð í Árnes-
hreppi eftir tíu ár. Fólk er að eldast
og endurnýjun er lítil,“ segir Pálína
Hjaltadóttir á Bæ, aðspurð hvernig
hún sjái framtíð byggðar í Árnes-
hreppi. » 10-11
Ljósmynd/Oddný
Í Árneshreppi Í vetur hefur verið unnið að úrbótum í höfninni í Norðurfirði
á Ströndum, en þaðan er talsverð sjósókn yfir sumartímann.
Bændum í Árneshreppi fækkar um 30%
„Að lokum verða svo fáir eftir að
þeir einfaldlega neyðast til að fara“
Stjórnarandstöðuflokkarnir eru
klofnir í afstöðu sinni til tillagna
stjórnarskrárnefndar. Björt framtíð
og Vinstri grænir hyggjast að öllum
líkindum styðja þinglega meðferð
málsins þannig að þjóðin fái að segja
síðasta orðið í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Píratar hafa fellt tillögur
nefndarinnar í rafrænni kosningu og
hyggst þingflokkur þeirra ekki
styðja þinglega meðferð málsins.
Innan herbúða Samfylkingarinnar
gætir óánægju með tillögurnar og
létu fundarmenn á flokksstjórnar-
fundi Samfylkingarinnar á laugar-
dag hana í ljós. Þingmenn Samfylk-
ingar hafa því ekki tekið afstöðu til
þess hvort þeir muni styðja málið.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG
og fulltrúi flokksins, gagnrýndi í
samtali við mbl.is að flokkar álykt-
uðu um tillögur nefndarinnar fyrr en
nefndin hefði lokið störfum. VG vilja
að þjóðin hafi síðasta orðið.
Tveir þriðjuhlutar þingmanna
þurfa að samþykkja tillögurnar á Al-
þingi eigi þjóðin að fá að kjósa um
þær. »4
Klofnir í
afstöðu til
tillagna
Ótímabært að
álykta um ákvæðin